Læknaneminn - 01.01.2017, Page 27

Læknaneminn - 01.01.2017, Page 27
Ri trý nt ef ni 2626 einkenni eru enn til staðar þrátt fyrir þrjár vikur af lyfjameðferð. Meðferð við langvinnu formi af ofnæmistengdri slímhimnubólgu getur reynst erfið og eru fáir góðir meðferðarmöguleikar í boði. Í ákveðnum tilvikum getur augnlæknir reynt staðbundna barksterameðferð en vitað er að slíkar meðferðir auka líkurnar á gláku og skýmyndun á augasteini (e. cataracts). Því er stöðugt verið að leita að nýjum leiðum til að meðhöndla þessar tegundir af slímhimnubólgum3,29.Jafnframt er mikilvægt að almennir læknar vísi sjúklingum áfram til augnlæknis þegar upphafleg meðferð hefur ekki skilað tilætluðum árangri. Augnþurrkur Augnþurrkur (e. keratoconjunctivitis sicca) er algengt vandamál sem orsakast af minnkaðri fram leiðslu á tárum og/eða galla í uppbyggingu táranna sem veldur því meðal annars að þau gufa of fljótt upp. Megnið af tárum líkamans eru framleidd í tárakirtlunum sem eru staðsettir í augnlokum og slím himnum augna. Þaðan renna tárin niður framhluta augans og út um lítil útflæðisop sem kölluð eru táragangaop (lat. punctum lacrimale) en þau eru staðsett í miðlægum augnkrókum, eitt op í efra augnloki og eitt í því neðra. Tárin flæða síðan niður táragöng (lat. lacrimal canaliculus) og inn í nefið í hæð við neðri nefskel (e. inferior turbinate). Þessi líffræðilega uppbygging útskýrir af hverju við fáum nefrennsli þegar við grátum. Til að einstaklingur sé með eðlilega sjón er mikilvægt að táraframleiðsla sé eðlileg, samsetning táranna sé rétt og að augnlokin lokist eðlilega. Þessir þættir gegna lykilhlutverki í að viðhalda réttu jafnvægi tárafilmunnar og heilbrigðri sjón31. Nákvæm tíðni á augnþurrki er ekki þekkt einkum vegna margvíslegra aðferða við að skilgreina sjúkdóminn og skorts á nægilega nákvæmum og magngreinandi greiningarprófum. Auk þess eru faraldsfræðilegar rannsóknir sem hafa skoðað tíðni á augnþurrki nokkuð sjaldgæfar. Þó er talið að augnþurrkur hrjái um eða yfir 20% einstaklinga einhvern tímann á lífsleiðinni. Rannsóknir hafa jafnframt sýnt að tíðni augnþurrks eykst með aldri og er augnþurrkur mun algengari hjá konum en körlum, hugsanlega vegna táraframleiðsluhvetjandi áhrifa testósteróns. Ýmsir aðrir undirliggjandi þættir geta valdið því að einstaklingar kljást við augnþurrk. Þar má nefna inntöku á ákveðnum lyfjum (til dæmis Tafla I. Helstu mismunagreiningar slímhimnubólgu. Einkenni/tengsl Baktería Veira Ofnæmi Kláði Minniháttar Minniháttar Meiriháttar Útsett auga Annað/bæði augu Annað/bæði augu Bæði augu Útferð Þykk graftrar­ og/eða slímgraftrarkennd Mikil vatnskennd Tær eða hvít slímkennd Tengsl við aðra sjúkdóma Efri öndunarfærasýkingar, eyrnabólgur Efri öndunarfærasýkingar, almenn flensa Aðrir undirliggjandi ofnæmissjúkdómar, til dæmis exem og astmi Faraldsfræði Algengasta sýkingin hjá börnum Algengasta sýkingin hjá fullorðnum, talið valda um eða yfir helmingi allra tilfella Algengt í sjúklingum með undirliggjandi ofnæmi Aldur Sést helst hjá nýburum, börnum yngri en 5 ára og öldruðum Börn á skólaaldri og fullorðnir Getur komið fyrir á hvaða aldri sem er, sérstaklega algengt hjá börnum á skólaaldri Árstíðir Árið um kring Árið um kring Vor og haust Eitlastækkanir Sjaldgæft Algengt Sjaldgæft Mynd 5. Áberandi dreifður augnþurrkur eftir litun með lissamine grænuiv. Mynd 6. Sjúklingur með hvarmabólgu og vanstarfsemi í fitukirtlum hvarmac.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.