Læknaneminn - 01.01.2017, Side 29
Ri
trý
nt
ef
ni
2828
í tengslum við röskun í hársekkjum augnhára og Demodex brevis
hefur verið tengdur við aftari hvarmabólgu, vanstarfsemi í fitu kirtlum
hvarmanna og hornhimnu og slímhimnubólgu. Meðferð með olíu (e.
tea tree oil) hefur sýnt fram á góðan árangur við Demodex hvarmabólgu
með því að draga úr fjölda mítla, hafa neikvæð áhrif á bakteríur og
sveppi auk þess að búa yfir bólgueyðandi áhrifum40.
Hornhimnufleiður
Hornhimnufleiður (e. corneal abrasion) eru afar algeng og eitt algengasta
viðfangsefni augnlækna á bráðamóttökum. Hornhimnufleiður koma
einkum fram við slys og geta leitt til mynd unar hornhimnusárs
(e. corneal ulcer) sem getur sýkst. Hornhimnu fleiður eru greind út
frá klínískri birtingarmynd og augnskoðun (mynd 7). Hornhimnan
inniheldur fleiri taugaenda en nokkuð annað svæði í líkamanum. Þannig
getur lítil rispa valdið miklum verk og ekki er óalgengt að sjúklingar
kvarti undan ljósfælni og tilfinningu um að það sé sandkorn undir
augnlokinu. Í ákveðnum tilvikum getur því verið nauðsynlegt að styðjast
við skammvirka staðdeyfingu til að geta framkvæmt augnskoðun.
Jafnframt ætti alltaf við minnsta grun um hornhimnusár að skoða
viðkomandi sjúkling með flúresín (e. fluorescein) litun undir kóbalt
blárri síu. Mikilvægt er að hafa í huga að greinótt mynstur bendir til
herpessýkingar og sjáist slíkt ætti viðkomandi aðili að sjá augnlækni sem
fyrst. Í öðrum sjúklingum með hornhimnufleiður ætti ávallt að leita eftir
aðskotahlut og ekki má gleyma að skoða undir augnlokin til að útiloka
aðskotahlut þar (láta sjúkling horfa niður og snúa við augnlokum).
Meðferð við hornhimnusárum þegar búið er að útiloka undirliggjandi
sýkingar felst fyrst og fremst í stuðningsmeðferð. Efsta lag hornhimnu
grær oftast á einum til tveimur dögum. Oft á tíðum eru einnig gefnir
staðbundnir sýklalyfjadropar á borð við levofloxacín til að koma í veg fyrir
sýkingu. Þó hefur ekki verið sýnt fram á þörf sýklalyfjagjafar við einföld
hornhimnufleiður41,42. Jafnframt ber að nefna að við hornhimnufleiðri
ætti aldrei að gefa steradropa, það gæti hæglega gert ástandið verra þar
sem sterar hægja á vexti þekjufrumna. Enn fremur má aldrei meðhöndla
hornhimnufleiður með deyfidropum þar sem droparnir eru eitraðir fyrir
hornhimnu auk þess að hægja á vexti þekjufrumna. Lýst hefur verið
gatmyndun (e. perforation) á hornhimnu í kjölfar slíkrar meðferðar43.
Í þeim tilvikum sem bakteríusýking kemst í hornhimnufleiður getur
hornhimnusár myndast. Einstaklinga með hornhimnusár ætti þegar
í stað að senda til augnlæknis þar sem meðhöndla þarf slíkt með tíðum
sýklalyfjadreypingum þar til sárið hefur lokast. Í þeim efnum er gott að
hafa í huga að sjúklingar sem nota snertilinsur eru líklegri til að sýkjast
af Pseudomonas aeruginosa og því þarf lyfið að verka á þá bakteríu, svo
sem levofloxacín. Hornhimnufleiður sem orsakast af óhreinum hlutum
í umhverfi, til dæmis eftir trjágrein eða fingurnögl, ætti að meðhöndla
með breiðvirkum sýklalyfjum.
Blæðing undir slímhimnu augans
Væg blæðing undir slímhimnu augans (e. subconjunctival hemorrhage)
er algeng þar sem rof verður á smáum, viðkvæmum æðum undir
slímhimnunni. Slímhimnan inniheldur fjölmargar slíkar æðar sem
rofna auðveldlega og getur blætt úr þeim í kjölfarið. Þegar blæðir
undir slímhimnnu lekur blóð inn í svæðið á milli slímhimnu augans
og hvítunnar (e. sclera). Slímhimnan frásogar blóð hægt og rautt auga
kemur fram. Blæðing undir slímhimnu er ein helsta ástæðan fyrir
skyndilegu rauðu auga.
Greining byggist á því að fylgjast með einkennum blæðingarinnar.
Yfirleitt er blæðingin eingöngu staðsett á öðru auganu, afmörkuð og
undirliggjandi hvíta sést ekki. Jafnframt er aðlæg slímhimna bólgufrí
og ekki eru nein merki um útferð úr útsettu auga (mynd 8). Sjúklingar
með blæðingu undir slímhimnu kvarta sjaldnast um sársauka og sjónin
helst óskert. Þannig er blæðing úr smáæðum undir slímhimnu augans
venjulega áhættulítið ástand þrátt fyrir að útlitið geti bent til annars.
Ýmsar ástæður geta legið að baki blæðingu undir slímhúð augans, allt frá
léttum hnerra yfir í beinan skaða á augað sjálft. Í rannsókn sem skoðaði
ástæðu komu 8726 sjúklinga á augnlæknastofur í Bandaríkjunum
kom í ljós að 225 einstaklingar (2,9%) komu vegna blæðingar undir
slímhimnu augans. Algengustu ástæðurnar fyrir blæðingu undir
slímhimnu auga í þýðinu reyndust vera minniháttar áverkar á auga,
kerfisbundinn háþrýstingur og bráð slímhimnubólga. Auk þess kom
í ljós að blæðingar undir slímhimnu auga í kjölfar minniháttar áverka
voru algengari á sumrin og blæðingar undir slímhimnu augans
í kjölfarið af kerfisbundnum háþrýstingi jukust með aldri. Því ætti alltaf Mynd 7. Áberandi hornhimnufleiður eftir flúresín litunvi.
Mynd 8. Blæðing undir slímhimnu augans.
Blæðingin hefur ekki áhrif á sjón og hverfur nær
undantekningarlaust án inngripavii.
Mynd 9. Staðbundin utanhvítubólgaviii.