Læknaneminn - 01.01.2017, Síða 33
Ri
trý
nt
ef
ni
3232
Inngangur
Starfræn einkenni (e. functional symptoms) eru
einkenni sem ekki finnst vefræn (e. organic) eða
almenn læknisfræðileg skýring á með líkamsskoðun
og þeim rannsóknaraðferðum sem nútímalæknisfræði
býður upp á. Slík einkenni sjást í mörgum sérgreinum
læknisfræðinnar1,2 en það er reynsla höfunda að
fyrstu kynni læknanema af þeim verði gjarnan
í taugalækningum. Þar eru starfrænar truflanir
tiltölulega algengar og oft á tíðum sýnilegri en í öðrum
sérgreinum. Hugbrigðaröskun (e. conversion disorder)
er einn af undirflokkum starfrænna truflana og tekur
til starfrænna einkenna frá taugakerfi. Röskunin
felur í sér einkenni sem við fyrstu sýn virðast tengjast
skemmd eða truflun í taugakerfinu, svo sem máttminnkun, lömun, flog,
skjálfti eða skyntruflun. Eftir sögutöku, skoðun og rannsóknir er hins
vegar ekki hægt að rekja einkenni sjúklings til vefræns taugasjúkdóms.
Því má segja að um útilokunargreiningu sé að ræða en þó er vert að
hafa hugfast að einkennin hafa stundum á sér sérstakan blæ og útlit
sem heimila jákvæða klíníska greiningu. Fjallað verður nánar um þessi
einkenni hér á eftir. Til að setja starfræn einkenni í samhengi fyrir
tölvuvæddar kynslóðir samtímans „má líkja þeim við hugbúnaðartruflun
fremur en vélbúnaðartruflun“ ( Jon Stone, taugalæknir).
Sagan
Starfræn einkenni frá taugakerfi eru ekki ný af nálinni í læknisfræði.
Áður fyrr var talað um móðursýki eða sefasýki (e. hysteria, komið af
gríska orðinu hystera sem merkir leg) en líkt og orðsifjar hugtaksins
gefa til kynna var þetta upphaflega talinn sjúkdómur kvenna eingöngu.
Þessi hugtök tilheyra fortíðinni enda merking þeirra bæði neikvæð og
gildishlaðin. Starfrænar truflanir eru í raun samtvinnaðar upphafi sögu
taugalæknisfræðinnar á seinni hluta 19. aldarinnar. Í þessu samhengi er
rétt að minnast á tvo sögufræga lækna, annars vegar franska taugalækninn
JeanMartin Charcot (18251893) og hins vegar lærisvein hans,
Þjóðverjann Sigmund Freud (18561939). Charcot hafði mikinn áhuga
á hugbrigðaröskun og taldi sig geta framkallað og læknað einkennin
með dáleiðslu. Freud taldi hugbrigðaröskun orsakast af umbreytingu
sálrænnar togstreitu í líkamleg einkenni. Hugmyndir þessara tveggja
lækna hafa lengi verið ráðandi í skilningi okkar á sjúkdómnum og eimir
enn af þeim í dag3.
Skilgreiningar
Líta má á starfrænar truflanir frá taugakerfi sem hluta af rófi raskana.
Í fimmtu og nýjustu útgáfu bandaríska greiningarkerfisins DSM
(Diagnostic and Statistical Manual of Mental Disorders) heyrir
hugbrigðaröskun (tafla I) undir sjúkdómaflokk er kallast líkamleg
einkennaröskun og skyldar raskanir (e. somatic symptom and related
disorders). Í þessum flokki eru einnig:
• Somatic symptom disorder
Einstaklingur með ýmis óútskýrð líkamleg einkenni þar sem
áhyggjur og kvíði beinist aðallega að einkennunum sjálfum fremur
en ákveðnum sjúkdómi.
• Illness anxiety disorder
Heilsukvíði sem einkennist af áhyggjum og þrálátum kvíða um að
fá alvarlegan sjúkdóm eða vera haldinn alvarlegum sjúkdómi.
• Psychological factors affecting other medical conditions
Tilvist klínískt mikilvægra hegðunarmynstra eða sálfræðilegra þátta
sem hafa neikvæð áhrif á undirliggjandi sjúkdóm með því að auka
hættu á þjáningu, fötlun eða dauða.
• Factitious disorder (Munchausen heilkenni)
Einstaklingur gerir sér eða öðrum upp veikindi án þess að augljós
ávinningur eða umbun hljótist af því. Þessu skal ekki rugla saman
við veikindauppgerð (e. malingering) þar sem einstaklingur gerir sér
upp veikindi vegna ávinnings sem af því hlýst4.
Starfræn einkenni
frá taugakerfi
Olga Sigurðardóttir, fimmta árs læknanemi 2016-2017
Valgerður Bjarnadóttir, fimmta árs læknanemi 2016-2017
Finnbogi Jakobsson, sérfræðingur og dr. med. í taugalækningum við Landspítala
Haukur Hjaltason, sérfræðingur og dr. med. í taugalækningum við Landspítala og Læknadeild HÍ
Yfirlitsgrein