Læknaneminn - 01.01.2017, Qupperneq 45
Ri
trý
nt
ef
ni
4444
Hjartastopp og
skyndilegur hjarta-
dauði hjá ungum
einstaklingum
Tilfelli af hjartadeild
Haukur Einarsson, fimmta árs læknanemi 2016-2017
Hjörtur Oddsson, sérfræðingur í lyflækningum og hjartalækningum
Saga og skoðun
36 ára gamall karlmaður með sögu
um sára ristilbólgu (e. ulcerative
colitis) en að öðru leyti heilsuhraustur
var fluttur á Hjartagátt vegna
hjartastopps. Maðurinn hafði
verið að þreyta próf þegar hann
fann fyrir skyndilegum svima og
hneig niður meðvitundarlaus.
Vitni að atburðinum þreifuðu ekki púls hjá honum og
var umsvifalaust hringt á sjúkrabíl og hafin endurlífgun
með hjartahnoði. Þegar sjúkraflutningamenn komu
á staðinn reyndist maðurinn vera með sleglatif
(e. ventricular fibrillation) og var hann stuðaður í tvígang
og fór þá í sínustakt. Við komu á Hjartagátt var maðurinn
vel vakandi og skýr, púls var reglulegur og mældist 92
slög/mín, blóðþrýstingur var 111/75 mmHg. Hjartalínurit
sýndi sínustakt án breytinga á STbili og T bylgju, leiðrétt
QT bil mældist 476 msek. Hann kvartaði um brjóstverk sem
þó var ekki dæmigerður fyrir kransæðasjúkdóm og var talið
að um hnoðverk væri að ræða. Við hjartahlustun heyrðust
báðir hjartatónar og hvorki auka né óhljóð. Enginn
bjúgur var á fótum og ekki aukinn bláæðaþrýstingur á hálsi.
Lungnahlustun og kviðskoðun voru án athugasemda og
taugaskoðun var eðlileg.
Þau lyf sem maðurinn tók að staðaldri voru mesalazín
(Asacol®) og azatíóprín (Imurel®) vegna sáraristilbólgu.
Hann reykti ekki en notaði munntóbak, ekki var saga um
sykursýki, blóðfituröskun eða háþrýsting og hann var ekki
í ofþyngd. Við sögutöku kom í ljós að afi hans hafði látist
skyndilega, 62 ára að aldri, eftir að hafa verið með brjóstverk
í nokkra daga.
Rannsóknir og frekari uppvinnsla við komu
Hjartaómskoðun við rúmstokk sýndi mjög óverulega
samdráttar skerðingu á framvegg vinstri slegils, veggþykkt
slegla var eðli leg, ósæðar loka og míturloka virtust eðlilegar
og útstreymisbrot reiknaðist 5060%. Maðurinn fékk
hleðslu skammt af magnýli og fór í kjöl farið í hjarta
þræðingu sem sýndi eðli legar krans æðar án þreng inga.
Niður stöður úr blóð rannsóknum sem teknar voru við komu
má sjá í töflu I.
Tafla I. Niðurstöður úr blóðrannsóknum sjúklings við komu.
Rannsókn Eining Mælt
gildi
Viðm.
gildi
Hvít blóðkorn x109/L 9,0 4,010,5
Hemóglóbín g/L 144 134171
Blóðflögur x109/L 282 150400
Natríum mmól/L 144 137145
Kalíum mmól/L 3,6 3,54,8
Kreatínín µmól/L 75 60100
ALP U/L 41 35105
Gamma GT U/L 35 <80
ASAT U/L 275 <45
ALAT U/L 256 <70
LD U/L 373 105205
Trópónín T ng/L 103 <15
Bilírúbín µmól/L 14 525