Læknaneminn - 01.01.2017, Page 56
Ri
trý
nt
ef
ni
55
í gegnum munninn en það tókst að lokum
með aðstoð netháfs. Æxlið var vel afmarkað,
7x3 cm að stærð og staðfesti vefjagreining
að um góðkynja fituvefsæxli væri að ræða
(myndir 3 og 4). Sjúklingur náði sér vel af
aðgerð og var útskrifaður næsta dag. Við
eftirlit nokkrum dögum síðar var sjúklingur
mun betri af bakflæðiseinkennum sínum og
bar sig vel.
Umræður
Góðkynja fituvefsæxli í maga er sjaldgæf
orsök magaopsstíflu. Undir 1% af magaæxlum
eru fituvefs æxli3. Þau eru algengust milli
fimm tugs og sextugs og eru ívið algengari hjá
konum. Æxlin eru oftast staðsett í slímubeði
en geta einnig sést í hálu (e. serosa). Þegar
æxlin liggja yfirborðs lægt við vöðvalagið
valda vöðva samdrættir því að æxlið skagar
út í maga holrúmið á svo kölluðum gervi stilk
(e. pseudopedicle)4. Æxlin geta fundist hvar
sem er í maga en í 75% tilvika eru þau
staðsett í magahelli (e. antrum)4. Æxlin
saman standa af vel þroskuðum fituvefs
frumum sem eru um vafðar trefja ríkum
bandvefs hjúp (e. fibrous capsule) og hafa gul
leitt hnút ótt útlit í þverskurðar plani4. Þau
eru oftast lítil og einkenna laus en stærri æxli
geta valdið einkennum eins og magaops
stíflu, kviðverkjum, meltingarvegs blæðingum,
hægða tregðu og niður gangi57. Magaopsstífla
verður vegna þess að æxli í magahelli gengur
fyrir og lokar portvarðaropinu. Oftast er
stíflan ekki viðvarandi þar sem æxlið er
hreyfanlegt4, það færist því til og lokar
fyrir portvarðaropið við þarma hreyfingar
líkt og í ofangreindu tilfelli. Stífla getur
einnig orðið vegna garnar smokkunar
(e. intussusception) þar sem æxlið smokk ast
gegnum portvarðaropið4. Helstu ein kenni
stíflu eru ógleði, uppköst, uppþemba og kvið verkir. Lang
varandi stífla getur leitt til þyngdar taps og of þornunar. Þar
sem stíflan er fyrir ofan skeifu görn eru upp köstin án galls
og tapar líkaminn því fyrst og fremst miklu magni af maga
sýru sem leiðir til efnaskipta lýtingar (e. metabolic alkalosis)
með blóðkalíum lækkun og blóðklóríð lækkun8. Annar
algengur fylgikvilli góðkynja fituvefsæxlis er blæðandi
magasár og sést þetta einkum hjá æxlum sem eru stærri en
3 cm6. Ástæðan er sú að við stærri æxli getur bláæðastöðnun
(e. venous stasis) orðið og valdið bláæðarofi. Oftast er um að
ræða langvarandi duldar blæðingar og getur þetta komið
fram sem járnskortsblóðleysi7.
Algengustu orsakir magaopsstíflu og blæðinga frá efri
meltingarvegi eru illkynja æxlisvöxtur og H. pylori sýkingar.
Það er því mikilvægt að útiloka slíkt við klíníska uppvinnslu
sjúklings. Í ofangreindu tilfelli var tekið sýni til að skima
fyrir H. pylori og reyndist það vera neikvætt.
Til greiningar á góðkynja fituvefsæxli í maga liggur tvennt
til grund vallar; magaspeglun með vefjasýnatöku og tölvu
sneiðmynd. Í ofan greindu tilfelli var sjúklingur tvívegis
speglaður og vefjasýni tekið. Í bæði skiptin fannst ekkert
nema eðlilegur vefur. Þessu hefur verið vel lýst og stafar
af því að æxlið liggur djúpt í slímubeðnum og nægur
vefur fæst því ekki til greiningar5. Tölvusneiðmynd sýndi
einsleitt vel afmarkað fituríkt æxli. Rannsóknir hafa sýnt
að tölvusneiðmynd er nægjanleg til greiningar á góðkynja
fituvefsæxli, er þá miðað við að æxli sé einsleitt og hafi
röntgenþéttni milli 70 og 120 Hounsfield6,9,10. Ef vafi
liggur á greiningu er mælt með að allar fyrirferðir neðan
þekjufrumulags yfir 1 cm að stærð séu rannsakaðar með
holsjárómskoðun (e. endoscopic ultrasound)11. Nokkur
atriði í magaspeglun er hægt að nýta sér til þess að
greina góðkynja fituvefsæxli frá öðrum hnútum í maga.
Fituvefsæxli eru almennt slétt og vel afmörkuð. Þau eru
mjúk og eftirgefanleg og breyta um lögun og staðsetningu
við eðlilegar þarmahreyfingar maga. Ef þrýst er á æxlið
gefur það eftir og hefur dæmigerða svampkennda áferð.
Auk þess er oft eftirgefanleg slímhúð fyrir ofan æxlið og
hefur það verið kallað tjaldmerki (e. tenting)10.
Í ofangreindu tilfelli voru staðsetning og útlit æxlis ásamt
aldri sjúklings dæmigerð fyrir góðkynja fituvefsæxli.
Tölvusneiðmynd sýndi dæmigert útlit fituvefsæxlis og var
því hægt að staðfesta greininguna þó að vefjasýni hafi ekki
Mynd 2. Mynd tekin í magaspeglun sem sýnir góðkynja fituvefsæxli sem teygir sig
inn í magahelli. Við magahreyfingar smokkaðist æxlið yfir portvarðaropið og hindraði
flutning fæðu niður í skeifugörn.
Mynd 3. Mynd tekin eftir að æxli hafði verið fjarlægt í magaspeglunaraðgerð. Æxlið
var vel afmarkað í trefjaríkum bandvefshjúp og reyndist um 7x3 cm á stærð.