Læknaneminn - 01.01.2017, Page 84
Fr
óð
lei
ku
r
83
tíma ramma, náms framboði og kennslu
stjórn. Um gjörðin var vönduð og námið naut
skilnings stjórnvalda sem sáu að fram takið
féll vel að eflingu heilsu gæslunnar. Fjár veiting
fékkst til að kosta námsstöður. Heilsu gæslan
á höfuðborgar svæðinu lagði til hlutastöðu
kennslustjóra. Síðan hefur orðið metnaðarfull
framþróun námsins þar sem þriðju endur
skoðun er nýlokið. Á sjúkrahúsunum var
fram þróun sérnáms skrykkjóttari, m.a. af
því að kennslustjóra störfin voru aukastörf
ofan á aðra vinnu og marklýsingar engar eða
ófullkomnari en hjá heimilislæknum.
Undantekning voru geðlækningar þar
sem fram vinda hefur orðið síðustu
1015 árin og fullt sérnám verið í boði.
Í mörgum öðrum greinum má segja
að stöðurnar hafi verið eins konar
kynning á sérgreininni. Erfitt gat
verið að fá þær viðurkenndar erlendis
nema að hluta. Fagleg umgjörð
(marklýsing og námsskipulag) og
grunnstoðir (fjármunir til að kosta námið,
ritarar, kennslustjórar) voru ófullnægjandi.
Áhuginn einn var ekki nóg.
Reglugerð um kandídatsárið og kröfur til sér
náms (nr. 305/1997 og 1222/2012) var löngu
úrelt í ljósi þróunar í nágrannalöndunum
þangað sem læknar sóttu í framhalds nám. Ný
lög um heilbrigðisþjónustu voru sett 2007 og
lög um heilbrigðisstarfsmenn 2012. Í fram
haldi af því var stofnuð nefnd sem færði
reglugerðina að nútímanum og framtíðinni í
apríl 2015.
Starfsnámið
Með reglugerð um menntun, réttindi og
skyldur lækna og skilyrði til að hljóta almennt
lækningaleyfi og sérfræðileyfi (nr. 467/2015)
voru stigin grundvallarskref til að aðlaga
kröfur um frekara viðurkennt nám lækna
eftir kandídats próf að því sem gildir almennt
í nágranna löndunum, einkum í Evrópu. Kröfur
eru gerðar um inntöku, fastákveðin markmið
og fullnustu náms. Námsstaði hérlendis þarf að
viðurkenna. Þrjár nefndir sjá um mismunandi
þætti í framkvæmd reglugerðarinnar. „Blokka
nefndin“ sér um skipulagningu kandídats ársins
og viðurkenningu þess. Mats og hæfisnefnd
hefur ákvörðunarvald um form námsins og
námsstaði. Umsagnarnefnd landlæknis veitir
sérfræðileyfi að námi loknu.
Í reglugerðinni er fyrst kveðið á um kandídats
árið sem nú heitir „starfsnám til al menns
lækninga leyfis.“ Það er eitt ár í 100% starfi
og jafn framt klínískt nám þar sem dvöl
á lyfl ækninga deild og í heilsugæslu er fjórir
mánuðir á hvorum stað, tveir mánuðir þurfa
að vera á skurð eða bráðadeild og tveir
mánuðir eru dvöl að eigin vali. Námið hefst í
kringum 15. júní ár hvert og blokkirnar skal
auglýsa í lok ársins á undan. Heimilt er að vera
í hlutastarfi að lágmarki 50% en tíminn lengist
sem því nemur. Starfs námið verður að vera
á viður kenndri heilbrigðisstofnun með tilvísun
í mark lýsingu og með virkri hand leiðslu. Mats
og hæfisnefnd viðurkennir námsstaði og listi
yfir þá er birtur á vef Embættis Landlæknis.
Námsstöður í boði eru nú allt að 103104,
þ.e.a.s. 4041 í heilsugæslu, 49 á Landspítala,
12 á Sjúkra húsinu á Akureyri og tvær
á sjúkra húsinu á Akranesi. Framkvæmda
stjórar viðkomandi heilbrigðis stofnana bera
ábyrgð á að starfs þjálfunin sé góð og í samræmi
við kröfur mark lýsingarinnar. Heilbrigðis
stofnunin og náms læknirinn eiga að hafa
skrifl egan samning um náms tíma og innhald
náms. „Blokkanefndin“ þarf að fá vottorð frá
framkvæmda stjórunum um skil á náminu
og á grund velli þess ákveður hún hvort það
sé full nægjandi. Land læknir veitir almenna
lækningaleyfið.
Mats og hæfisnefnd getur dregið til baka
viður kenningu á námsstað ef námið reynist
ekki gott og skilyrðum um handleiðslu, náms
skil og námsaðstöðu er ekki fullnægt, til dæmis
að mati „blokkanefndarinnar.“
Marklýsingin fyrir kandídatsárið er rúmar 60
auð lesnar blaðsíður og tekur til bæði spítala
deilda og heilsugæslu. Hún er aðlöguð að
íslenskum aðstæðum úr breskri marklýsingu
fyrir starfsnám sem þar er tvö ár (e. foundation
years). Marklýsingin er vegvísir um hvernig
læknakandídat færist frá háskólanema í fag
mann sem bæði kann læknisfræði og er
starfsmaður heilbrigðiskerfisins með ábyrgð,
kunnáttu og góða starfshætti. Starfsmaður
sem samfélagið, samstarfsfólk og umfram allt
skjólstæðingar geta treyst.
Nú er fyrsta kandídatsárið í nýrri mynd liðið.
Taka þarf út í samvinnu „blokkanefndar“,
framkvæmda stjóra á heilbrigðisstofnunum og
mats og hæfis nefndar hvernig til hefur tekist.
Svo virðist sem margir kandí datar hafi eftir
kynningar fundi í júní 2016 ekki notað mark
lýsinguna sem skyldi. Þá vantar líka að kennarar
læknakandídatanna, sérfræðilæknar á deildum
og í heilsu gæslu, kynni sér marklýsinguna.
Þeirra er að veita læknakandídötunum aðhald
í starfs náminu með hliðsjón af marklýsingunni.
Því verður litið á liðinn vetur sem aðlögunartíma
en frekari afslættir eru ekki fyrirhugaðir. Þróa
þarf „spítala kúltúrinn“ þannig að fag mennska
og hæfnis kröfur verði í fyrirrúmi. Það er hagur
heilbrigðis yfirvalda, stofnana, deilda, starfs
manna, skjólstæðinga og samfélagsins að vel
takist við að lyfta kandídatsárinu á nýjan stall.
Sérnám á Íslandi
Sérnám þarf samkvæmt nýju reglugerðinni
að vera að lágmarki 60 mánuðir eða fimm ár
í fullu (100%) starfi í aðalgrein eins
og annars staðar í Evrópu. Leyfi
eða hlutastöður lengja tímann.
Sérgreinarnar eru taldar upp í reglu
gerðinni (alls 54 auk undirsérgreina)
og eru sniðnar að því sem er í Evrópu
með hliðsjón af lista Evrópusambands
sérfræðilækna (Union Européenne
des Médecins Specialistes, UEMS).
Lækna félag Íslands er aðili að þeim
sam tökum fyrir hönd Íslands og einnig að
Evrópu samtökum heimilis lækna (Union
Européenne des Médecins Omnipraticiens
/ Médecins de Famille, UEMO). Sérfræði
leyfi miðast við að læknir fái leyfið
í því ríki þar sem sérnámið fór fram, a.m.k.
að meiri hluta og þar sem því lauk. Læknir
sem til dæmis tekur tvö ár á Íslandi og
bætir við þremur árum erlendis sækir um
sérfræðileyfi í því landi þar sem hann lauk
náminu. Það leyfi yrði viðurkennt á Íslandi
í kjölfarið.
Til gagnkvæmra viðurkenninga þarf alls staðar
að vera opinberlega viðurkennt nám og viður
kenndir námsstaðir. Annars er hætt við að nám
á deild sem ekki hefur hlotið viðurkenningu
muni ekki teljast með þegar sótt er um
sérfræði leyfi. Þess vegna er brýnt að skipuleggja
námið og námsstaðina hér á landi. Auðvitað
nýtist þekking og reynsla af deild sem ekki
hefur form lega viður kenningu en best er samt
að læra á viður kenndum námsstöðum. Þannig
er auðveldast að vinna að því að námstími
á Íslandi nýtist til fulls, a.m.k. í Evrópu.
Skilyrt er í reglugerðinni að marklýsing fyrir
nám á Íslandi skuli taka mið af viðurkenndu
námi í nágrannaríkjum NorðvesturEvrópu.
Staðlar fyrir námið og breidd námsins verða
að vera áþekk því sem þar er. Ekki er nóg að
lýsa eingöngu því sem boðið hefur verið upp
á til þessa heldur á að miða við að sérnám
feli í sér þekkingaröflun og leiðir til að ná
hæfni. Þekking merkir breiða grunnþekkingu
í sérgreininni og hvernig hún tengist öðrum
þáttum læknisfræðinnar, heilbrigðiskerfinu og
samfélaginu. Það þarf gagnsætt inntökuferli
í námið, skýra áfangaskiptingu, mat á fram
gangi frá einum áfanga til þess næsta og
lokamat. Áfangaskiptingin þarf að gefa grunn
sem nýtist til að ákveða hvort sérnámslæknirinn
„Sérnám þarf samkvæmt nýju
reglugerðinni að vera að lágmarki 60
mánuðir eða fimm ár í fullu (100%)
starfi í aðalgrein eins og annars staðar
í Evrópu.“