Læknaneminn - 01.01.2017, Síða 85
Fr
óð
lei
ku
r
84
vill halda áfram á sömu braut eða skipta yfir
í aðra sérgrein. Lengsta og um margt besta
þróunarferli sérnáms í læknisfræði hefur verið
í Bretlandi. Önnur lönd, svo sem Norðurlöndin
og mörg Evrópusamtök sérfræðilækna, hafa
tekið mið af því sem þar hefur verið gert, þó
í mismiklum mæli.
Tvær sérgreinar bjóða nú fullt sérnám á Íslandi;
heimilislækningar og geðlækningar. Þá þarf
að taka út námsstaði með tilliti til að stöðu og
mann afla, kennslustjórnar og álits sérfræði
lækna (e. trainers) og sérnámslækna (e. trainees)
á staðnum. Viðmið um úttektir munu koma
frá Bretlandi og Norðurlöndum. Þriðja endur
skoðun marklýsingar heimilislækna hefur
verið samþykkt og verið er að vinna að úttekt
náms staðanna. Brýnt er að koma á fót einum
bakgrunni fyrir alla heilsugæsluna í landinu
sem hefði það markmið að halda utan um þessa
starfsemi (Þróunarstofa heilsugæslunnar).
Í geðlækningum er endurskoðun
mark lýsingar lokið og námið
hefur verið viðurkennt. Í lyf
lækningum var viðurkennt
23ja ára upphafs sérnám í lok
nóvember 2016 (afturvirkt fyrir
allt nám sem þar hófst eftir
1. september 2016). Þetta nám
er sett upp í náinni samvinnu við
Royal College of Physicians (RCP)
í Bretlandi. Þar með varð það fyrsta viðurkennda
sérnámið á Íslandi samkvæmt reglugerð nr.
467/2015. Land spítalinn og Sjúkrahúsið
á Akur eyri eru viðurkenndir náms staðir
á Íslandi. RCP gerði úttekt á nám inu sumarið
2016 sem mats og hæfisnefnd studdist við.
Mark lýsingin er hin sama og notuð er í Bret
landi og er á ensku með for mála á íslensku.
Mats og hæfis nefnd álítur að þó marklýsing
starfs námsins (kandídatsársins) eigi að vera á
íslensku þá sé í sérnámi komið inn í alþjóð
legra umhverfi og ekkert mæli gegn því að nota
annað tungumál, svo sem ensku eða sænsku.
Marklýsingin verður líkt og upplýsingar um
námsstaðina birt á heimasíðu spítalanna/
heilsu gæslunnar og Embættis Landlæknis.
Í sam vinnu við RCP hafa nú verið haldin
þrjú nám skeið til að kenna kennurum að
kenna (e. train the trainers). Þau hafa verið
fjölsótt af læknum úr öllum meginsérgreinum
læknisfræðinnar á Íslandi enda námskeiðin
opin öllum sérfræðilæknum á væntanlegum
námsstöðum.
Svæfinga og gjörgæslulækningar hafa sömu
leiðis leitað samvinnu við viðkomandi stofnun
í Bretlandi, Royal College of Anaesthetists. Þar
verður notuð bresk marklýsing en einnig boðin
nýstárleg bráðakjarnaleið með lyflækningum
og bráðalækningum (e. acute care common stem).
Bráðalækningar eru einnig að þróa sitt sér nám
í samvinnu við bresku fagsamtökin. Fæðinga
og kvensjúkdómalækningar höfðu árið
2013 fengið viður kenningu Evrópusamtaka
fæðinga og kvensjúkdóma lækna (EBCOG)
fyrir tveggja ára námsbraut eftir formlega
úttekt. Það þarf nú að endurmeta en líka er
verið að semja um aðild að breska námskerfinu
við Royal College of Obstetricians and
Gynaecologists. Skurðlækningar eru í
viðræðum við Royal College of Surgeons í
Bretlandi og barna lækningar stefna í svipaða
átt. Í þessum tveim greinum er eins og í
bráðalækningum að vænta ákvörðunar um
viðurkennt nám haustið 2017.
Bæklunarlækningar hafa haft nokkuð ítarlega
og vel gerða námsskrá/marklýsingu að sænskri
fyrirmynd. Hún hefur nú verið endurskoðuð.
Barna og unglingageðlækningar munu miða
við staðla sem Evrópusamtök þeirra hafa sett
fram. Í augn lækningum er unnið að endur
mati mark lýsingar. Í meinafræði hefur verið
lögð fram nokkuð góð marklýsing sem er
í endurskoðunarferli.
Því má gera sér vonir um að við lok árs
2017 verði unnt að sækja um inntöku í fullt
sérnám með marklýsingum og viðurkenndum
náms stöðum í heimilis lækningum og geð
lækningum, viður kennt sérnám að hluta til í lyf
lækningum (í gildi nú þegar), barna lækningum,
barna og unglinga geðlækningum, bráða
lækningum, bæklunar lækn ingum, fæðinga
og kvensjúkdóma lækn ingum, meina fræði,
skurð lækningum og svæfinga og gjörgæslu
lækningum.
Ekki er að sinni áformað að bjóða nám
í undir sérgrein á Íslandi. Undantekningin kann
að verða héraðslækningar sem undirgrein
heimilis lækninga, m.a. í samvinnu við bráða
lækninga námið og fleiri stofn anir. Þá er
sam kvæmt reglu gerðinni mögulegt að sækja
um svo kallaða viðbótar sérgrein sem eru nú
heilbrigðis stjórnun, lýðheilsufræði, öldrunar
lækningar fyrir heimilislækna, líknar
lækningar og verkja lækningar. Er þá unnt að
bæta við tveggja ára námi og fá þessa nýju
sérgrein viðurkennda til viðbótar sinni fyrri
sérgrein. Þessa möguleika þarf að víkka og
rætt hefur verið um fíknilækningar í þessu
sambandi. Viðbótarsérgreinanám þarf einnig
marklýsingar og viðurkennda námsstaði.
Mikilvæg viðbót í sérnáminu verður svo
rannsókna tengt nám á meistara og doktors
stigi á vegum háskólanna í landinu. Læknadeild
Háskóla Íslands kæmi með því að sérnáminu.
Rannsóknatengdan tíma í sérnámi þarf að efla
og sérnámslæknar eiga að leitast við að nýta sér
þá möguleika sem best. Það lengir sérnámið en
er mikils virði.
Að lokum
Oft er sagt að sérnám eigi ekki að stunda
á Íslandi. Við séum of lítið samfélag, verðum
of heimóttarleg ef við dveljum ekki einhver
ár erlendis eða að sérnámið verði ekki nógu
gott. Því má til svara að samfélagið hér er ekki
síður fjölbreytt en víða erlendis, heilsugæslan
ekki verri en erlendis og háskólasjúkrahúsið,
Landspítalinn, er á stærð við meðalstórt
háskólasjúkrahús á Norðurlöndum þar sem
upptökusvæði eru ekki endilega stærri en
hér. Við höfum burði til að
mennta sérfræðilækna að miklu
leyti í flestum stærri sérgreinum
læknisfræðinnar og í fæstum
undirsérgreinum. Ekki skal gert
lítið úr því að heimdraganum sé
hleypt og að menn eyði að minnsta
kosti 12 árum við erlenda stofnun
til að víkka sjóndeildarhringinn og
bæta í reynslubankann. Aðstæður
yngri lækna eru misjafnar og
ekki er endilega eins sjálfsagt eða auðvelt og
áður að fara til langdvalar erlendis. Sérnám á
Íslandi kemur samfélaginu vel því áhugasamur
og ötull starfskraftur er mun lengur á landinu,
afföll vegna langtíma búsetu erlendis ættu
að minnka og starfsemi heilbrigðisstofnana
styrkist. Aðrar heilbrigðisstéttir munu fylgja
og styrkja sitt sérnám. Þarna er allt að vinna
og engu að tapa.
Sérstaklega þarf að huga að læknum sem eftir
gildistöku reglugerðarinnar í apríl 2015 hófu
sérnám þar sem viðurkennd marklýsing eða
viðurkenndur námsstaður var ekki til staðar.
Þar kann að þurfa millibilsaðgerðir svo nám
þeirra fáist a.m.k. að hluta til viðurkennt.
Ekki ætti að koma á óvart að heilbrigðis
ráðuneytið sem setti reglugerðina lagði ekki til
fé í framkvæmd hennar. Landspítalanum var
gert að útvega það sem til þurfti. Framkvæmda
nefndirnar („blokkanefnd“ og mats og hæfis
nefnd) njóta þó velvildar í ráðu neytinu og
jafnvel fjárstuðnings. Það er ljóst að botninn
mun detta úr sérnáminu ef ekki eru til staðar
stöður kennslustjóra og ritara eða umsjónar
fólks. Að fá prógrömm og aðra aðstoð frá
nágrannalöndum kostar líka peninga. En allt
þarf að byrja og hér hefur byrjunin verið góð.
Framhaldið ætti því að verða það sömuleiðis.
„Sérnám á Íslandi kemur samfélaginu
vel því áhugasamur og ötull starfskraftur
er mun lengur á landinu, afföll vegna
langtíma búsetu erlendis ættu að minnka
og starfsemi heilbrigðisstofnana styrkist.“