Læknaneminn - 01.01.2017, Page 89
Fr
óð
lei
ku
r
88
Líknarlækningar
Undirsérgrein almennra
lyflækninga
Arna Dögg Einarsdóttir
Hvar stundaðir þú sérnám?
Var í lyflækningaprógrammi
Landspítalans og lauk svo
samnorrænu framhaldsnámi
í líknarlækningum, Nordic
Specialist Course in Pallia
tive Medicine.
Hvað felur sérgreinin í sér? Ég starfa
á Líknardeild Landspítala sem er staðsett
í Kópavogi. Þar sinnum við inniliggjandi
sjúklingum, bæði við lífslok og einnig
sjúklingum sem koma tímabundið í meðferð
vegna erfiðra einkenna. Þá erum við ráðgefandi
fyrir Líknarráðgja fateymi Landspítala og þar
af leið andi allan spítalann. Að miklu leyti eru
þetta almennar lyflækningar, þó minna um
uppvinnslu og greiningarvinnu en kannski
flóknari einkennameðferð. Þá er mikil áhersla
lögð á að sinna fjölskyldunni sem á oft í erfið
leikum þegar ástvinir eru mikið veikir og
jafnvel deyjandi.
Við störfum einnig náið með báðum sérhæfðu
líknarheimaþjónustunum, Heimahlynningu
Landspítala og Karitas, sem þjóna 150170
sjúklingum í heimahúsum. Þar erum við
læknarnir ráðgefandi varðandi lyfjameðferð
og aðra einkennameðferð, förum í vitjanir
heim eftir þörfum og höldum fjölskyldufundi.
Að lokum sinnum við göngudeildarþjónustu
í tengslum við einkennameðferð, bæði
á líknardeildinni og á 11B Dag og göngudeild
krabbameinslækninga.
Hvers vegna valdir þú þessa sérgrein? Það er
sennilega röð tilviljana eins og oft er. Ég held
ég hafi verið þessi týpa sem fannst gaman á
öllum deildum lyflækningasviðs en ég fann
mig sérstaklega í „rotation“ á Krabbameins
deildinni og var þar deildarlæknir um tíma.
Valgerður Sigurðardóttir yfirlæknir Líknar
deildarinnar hafði svo samband við mig
2010 þegar ég var heima í fæðingarorlofi og
bauð mér að koma að vinna. Ég hugsaði með
mér að það gæti verið góð reynsla í starfi ef
ég færi í krabbameinslækningar. Mér hafði
satt best að segja aldrei dottið í hug að vinna
á Líknardeildinni. Síðan ég kom hef ég
eiginlega ekki getað slitið mig frá deildinni.
Þegar ég áttaði mig á því að ég þyrfti að velja
þá tók ég ákvörðun um að fara alla leið og
ljúka framhaldsnámi í líknarlækningum. Ég sé
sannarlega ekki eftir því og vona innilega að
fleiri bætist í hópinn.
Hvað finnst þér skemmtilegast við vinnuna
þína? Mér fannst alltaf gaman og gefandi að
vinna með krabbameinssjúklingum, í líknar
lækningum fæ ég að miklu leyti að halda því
áfram þó við sinnum einnig öðrum sjúklinga
hópum. Vitanlega er maður að sinna fólki
á mjög erfiðum tíma í lífi þeirra. Þetta getur
verið mjög krefjandi en tilfinningin þegar
maður sér árangur í bættri líðan fólks bætir það
upp og heldur manni gangandi. Þá myndar
maður oft sérstaklega náin tengsl við sjúklinga
og fjölskyldur þeirra í þessu fagi og það er
einstaklega gefandi.
Endurhæfingar lækningar
Stefán Yngvason
Hvar stundaðir þú sérnám?
Bænum Borås í Svíþjóð.
Hvað felur sérgreinin í sér?
Mat og meðferð á færni
skerðingu af ýmsum toga
hjá fólki sem komið er af
bráðastigi á sjúkrahúsi.
Hvers vegna valdir þú þessa sérgrein? Mikil
fjölbreytni í verkefnum samhliða góðum
möguleikum á sérhæfingu. Sérgreinin byggir
á heild rænni sýn á úrlausnarefni þar sem starf
í teymi er lykilatriði.
Hvað finnst þér skemmtilegast við vinnuna
þína? Skemmtilegast er vinna með góðu
teymi. Góðir vinnufélagar og létt andrúmsloft
á vinnu stað gera gott enn betra.
Sérgreinar sem
minna er talað um
Það kannast allir læknanemar við þessa spurningu: „Og ertu svo búin(n) að
ákveða í hvaða sérgrein þú ætlar?“ Flestir hafa svarið ekki á reiðum höndum
og dvelja löngum stundum við að velta því fyrir sér. Fyrst þarf að ákveða hvort
viðkomandi sé lyf- eða skurðmegin. Síðan fara að bætast við fleiri sérgreinar eins
og röntgen, geð-, barna- og kvenlækningar, sem eykur enn frekar á valkvíðann.
Það eru þó margar sérgreinar sem minna ber á í umræðunni og vert er að velta
fyrir sér. Hér er kynning á nokkrum þeirra.