Læknaneminn - 01.01.2017, Page 90

Læknaneminn - 01.01.2017, Page 90
Fr óð lei ku r 89 Atvinnulækningar Atvinnu- og umhverfissjúkdómar Helgi Guðbergsson Hvar stundaðir þú sérnám? Ég stundaði sérnám í Finnlandi. Stofnunin heitir Työter veys laitos eða Institute for Occu pational Health og er stað sett á lóð Háskóla spítalans (HYKS) í Helsinki en er einnig með svæðis stöðvar í nokk rum öðrum borgum. Upp bygging nám sins endur speglast í þeim deild um sem starf ræktar eru: Eiturefnafræði­ deild, lífeðlis fræði­ og vinnuvistfræði­ deild, sálfræði deild, faraldsfræði deild og loks atvinnu sjúkdóma deild sem skiptist í almenna göngu deild atvinnu sjúkdóma, göngudeild húð sjúkdóma, klíníska lífeðlis­ fræði og legu deild. Stærsti hluti námsins fer fram á atvinnu sjúkdóma deildinni. Kennt var sérstak lega að meta örorku með hlutlægum að ferðum. Námið fer að öðru leyti fram á skipu lögðum nám skeiðum líkt og í Svíþjóð. Ég fékk deildarlæknis störf á lyflækningadeild Land spítala viðurkennd sem hluta af sérnámi sem tók samtals fimm ár. Í Finnlandi þurfa sérgreinalæknar að standast skriflegt próf í grein inni í lok námstíma. Hvað felur sérgreinin í sér? Viðfangsefni greinarinnar eru víðtæk og má segja að þau snúi fyrst og fremst að því að leita leiða til að fyrirbyggja áhrif umhverfisins á heilsu manna í hinu alkunna samspili erfða, hegðunar og umhverfis sem veldur sjúkdómum. Oft er skaðinn skeður þegar sjúklingarnir koma en markmiðið er að fást við fyrsta stigs og annars stigs forvarnir ekki síður en þriðja stigs forvarnir og aðgerðir. Á starfsævinni hef ég fengist við atvinnusjúkdómagreiningu og eftir atvikum meðferð, ekki síst á atvinnuhúðsjúkdómum og –öndunarfærasjúkdómum, vinnuvistfræði (e. ergonomics), margs konar forvarnir og hvers kyns kennslu og fræðslu. Einnig margvísleg embættisstörf í stofnunum eins og Embætti Landlæknis, Heilbrigðiseftirliti ríkisins (nú Umhverfisstofnun), Borgarlæknis­ embætti, Heilsugæslunni í Reykjavík og Sjúkratryggingum Íslands. Ég hef einnig unnið mikið við atvinnuheilsugæslu og trúnaðarlæknisstörf. Ég starfa nú hjá Sjúkra­ tryggingum Íslands og hjá Vinnuvernd ehf. Hvað finnst þér skemmtilegast við vinnuna þína? Það besta við þessa sérgrein er hversu fjölbreytileg viðfangsefnin geta verið og hve miklir möguleikar eru á að skapa viðfangsefni og verksvið sjálfur. Ekki er óalgengt að ferðamannaheilsuvernd sé rekin af sérfræðingum í atvinnu­ og umhverfis­ sjúkdómum og hef ég verið með slíka þjónustu í yfir tuttugu ár. Án efa er það einn af skemmtilegustu þáttunum í minni vinnu þegar litið er yfir sviðið en markvisst tóbaksvarnastarf í 12 ár var einnig mjög gefandi viðfangsefni. Blóðg jafafræði Anna Margrét Halldórsdóttir Hvar stundaðir þú sérnám? Ég stundaði sérnám mitt í sex ár við Washington University/ Barnes­Jewish Hospital í St. Louis, Missouri í Bandaríkjunum. Þar fékk ég sérfræðiviðurkenningu (e. board certification) í laboratory medicine (clinical pathology) og transfusion medicine. Að loknu námi í Bandaríkjunum hélt ég austur um haf til Svíþjóðar þar sem ég stundaði doktorsnám við háskólann í Uppsölum samhliða störfum sem sérfræðilæknir við blóðbankann á Akademiska Sjukhuset. Hvað felur sérgreinin í sér? Blóðgjafafræði er sú sérgrein innan læknisfræðinnar sem fjallar um inngjöf blóðs og blóðhluta. Sérfræðingar í blóðgjafafræði starfa yfirleitt í blóðbönkum sem geta verið sjálfstæðar stofnanir eða deildir innan sjúkrahúsa eins og raunin er hér á landi. Undir blóðgjafafræði heyra ýmis undirsvið eins og hefðbundin blóðsöfnun, sértæk blóðsöfnun með blóðskilju, blóðhlutavinnsla, rannsóknir á blóðflokkum og blóðflokkamótefnum, eftirlit með blóðhag/veiruskimprófum blóðgjafa og gæðaeftirlit á blóðhlutum. Einnig fer fram á vegum Blóðbankans tengd starfsemi eins og söfnun og geymsla blóðmyndandi stofnfruma, vefjaflokkunarrannsóknir og vísindarannsóknir. Víða sjá blóðbankar einnig um meðhöndlun sjúklinga með blóðskiljuvélum (plasmaskipti, rauðkornaskipti o.s.frv.), meðhöndlun sjúklinga með ýmis konar frumum (e. cellular therapy) og koma að ráðgjöf vegna blóðstorkuvandamála. Læknar sem eru sérfræðingar í blóðgjafafræði þurfa því að búa yfir þekkingu á öllum þessum sviðum. Þeir bera lokaábyrgð á rannsóknarniðurstöðum og eru öðrum læknum til ráðgjafar varðandi meðhöndlun sjúklinga með blóðhlutum. Hvers vegna valdir þú þessa sérgrein? Ég komst í kynni við blóðgjafafræði á náms árum mínum í Bandaríkjunum þegar ég lagði stund á laboratory medicine. Mér fundust blóðgjafa fræði sameina áhuga minn á lækninga rannsóknum og sjúkdóma fræði, þá sérstak lega blóð sjúkdómum. Sérnáms læknar voru þar í mjög lifandi tengslum við klínískar deildir í gegnum meðhöndlun sjúklinga með blóðskiljum og blóðmyndandi stofnfrumum. Auk þess komu þeir að úrlausn margra vanda­ mála á rannsókna deildinni. Það var því oftast nóg að gera á vöktunum en jafnframt var vinnan gefandi. Hvað finnst þér skemmtilegast við vinnuna þína? Mér finnst kostur að ég get skipulagt daginn að miklu leyti eftir mínu höfði sem væri erfiðara ef ég ynni á klínískri deild. Það er einnig skemmti legt að við vinnum með ýmsum ólíkum fagstéttum, svo sem hjúkrunar fræðingum, lífeinda fræðingum, náttúru fræðingum og auk þess öðrum læknum bæði innan Blóð bankans og utan. Stór hluti vinnunnar felst í því að þróa áfram starf Blóð­ bankans með því að innleiða nýjar aðferðir og betrumbæta verkferla í samstarfi við annað starfsfólk Blóðbankans. Ætli það sé ekki skemmtilegasti hlutinn við starfið – að kynna sér nýjungar á sviðinu og koma að því að innleiða þær á Íslandi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.