Læknaneminn - 01.01.2017, Side 144

Læknaneminn - 01.01.2017, Side 144
Sk em m tie fn i 14 3 Ragnheiður Vernharðsdóttir Fyrirhugað útskriftarár úr Læknadeild: 2018 Frumburður fæddur: Ég átti Vernharð (Venna) í lok fyrsta námsársins, 21. maí 2012. Hverjir eru helstu kostir þess að hefja barneignir á þessum tíma? Maður er einfaldlega yngri. Það verður allt erfiðara með aldrinum. Ég áttaði mig hins vegar ekki á þessu fyrr en ég eignaðist Viðar, yngri son minn, í nóvember 2015, þá á fjórða ári. Það helsta sem mér finnst erfiðara núna en áður er svefninn, ég átti mun auðveldara með að sofa lítið og læra mikið þegar ég var 21 árs en 24 ára. Annar kostur þess að byrja barneignir snemma er sá að þá er hægt að klára þær fyrr. Hvað var erfiðast? Að finnast ég ekki geta sinnt náminu, félagslífinu og hvað þá foreldrahlutverkinu eins vel og ég vildi. Á tímabili fannst mér rosalega erfitt að finna alltaf fyrir svona mikill togstreitu. Þetta hefur hins vegar orðið auðveldara með tímanum. Ég hef lært að njóta fjölskyldunnar, skólans og vinanna, allt á sinn hátt. Hvaða áhrif hafði þetta á þinn námsferil? Ég seinkaði mér ekki eftir að ég átti Venna. Hann fæddist rétt fyrir sumarfrí, ég var heima um sumarið og hélt síðan áfram á öðru ári um haustið. Planið var að barnsfaðir minn yrði heima með hann þessa önn. Það gekk hins vegar ekki upp, samband okkar var erfitt og ég sá því um Venna ein. Ég var mjög heppin að besta vinkona mín bauðst til að vera með hann á morgnana meðan ég var í skólanum. Önnin hefði algjörlega klúðrast ef ekki hefði verið fyrir hana. Venni byrjaði síðan hjá dagmömmu eftir áramótin. Undir lok annars námsársins slitum við faðir hans samvistum og var ég því einstæð í um ár, þar til ég kynntist núverandi unnusta mínum. Þegar ég eignaðist Viðar tók ég annan pól í hæðina, ákvað að róa mig aðeins niður og njóta tímans með strákunum mínum. Æskuárin þeirra koma ekki aftur. Einkunnirnar hafa þó fengið að finna fyrir barneignunum. Í fyrstu fóru þær hratt niður á við en svo verður maður einhvern veginn skipulagðari og nú eru þær meira að segja hærri en áður. Á heildina litið hafa barneignirnar því haft jákvæð áhrif á námsferil minn. Maður þroskast og öðlast mikla reynslu af því að eiga börn. Hversu þétt stuðningsnet hafðirðu? Ég hafði mjög gott stuðningsnet sem samanstóð af góðum vinkonum, systur, bróður, móður og yndislegum föður. Í mínu tilviki var það að minnsta kosti nauðsynlegt að eiga þau að þar sem ég var ein með Venna. Þetta er hins vegar allt annað þegar maður hefur maka til að deila foreldrahlutverkinu með. Hvað myndirðu gera öðruvísi í dag? Ég gerði þetta nú öðruvísi þegar ég eignaðist Viðar. Þá fór ég í námsleyfi og hafði barnsföður minn með mér í þessu. Það er líklega það sem skiptir mestu máli til að þetta gangi smurt ­ að vera gott teymi, mamman og pabbinn. Það sem maður getur þó alltaf gert betur er að vera meðvitaður um að njóta dagsins í dag, njóta litlu augnablikanna. Þau eiga sér nefnilega stað á hverjum degi. Hefurðu einhver ráð til læknanema/ unglækna í barneignahugleiðingum? Fara eftir því sem hjartað segir. Langi þig í barn þá mæli ég með því að slá til. Hlutirnir ganga upp ef þú ætlar þér það. Heimurinn ferst ekki þó maður þurfi að fresta náminu um einhvern tíma. Svo stend ég líka í þeirri trú að það sé ekkert auðveldara að byrja barneignir þegar maður er loksins kominn á vinnu­ markaðinn og byrjaður að feta sín fyrstu fótspor þar. Margir bíða eftir „rétta tímanum“ til að eignast barn. Ef einhver finnur þennan rétta tíma má sá hinn sami segja mér hvenær hann er. Rósamunda Þórarinsdóttir Fyrirhugað útskriftarár úr Læknadeild: 2019 Frumburður fæddur: Fæddist 20. janúar 2016. Vorönn á þriðja ári, tíu dögum fyrir lokaprófið í faraldsfræði. Hverjir eru helstu kostir þess að hefja barneignir á þessum tíma? Það var ekki skyldumæting í tíma þannig að ég gat verið heima með barninu og lært án þess að seinka mér í náminu. Áfangarnir á þessum tíma voru faraldsfræði og tölfræði, ekki jafn yfirgripsmiklir og aðrir áfangar í læknisfræði. Auk þess var ég þegar langt komin með rannsóknarverkefnið mitt og gat verið heima að skrifa BS ritgerðina mína. Hvað var erfiðast? Það að við erum bæði í læknisfræði var erfitt. Pabbinn var á fjórða ári sem krefst mikillar viðveru á spítalanum auk þess sem hann sinnir atvinnufótbolta meðfram náminu. Fyrsta árið eftir barneignir er alltaf það viðkvæmasta og var lífið oft tilfinningalegur rússíbani með tilheyrandi brjóstaþoku. Hann var þó alltaf með okkur mæðgur í fyrsta sæti og þannig tókst þetta. Seinna var það erfiðasta að eiga eins árs gamalt barn á fjórða ári og pabbinn á fimmta ári. Eftir kl. 16.00 á daginn og um helgar er enginn tími til að hvíla eða læra þegar maður á barn á þessum aldri. Auk þess var hún á ungbarnaleikskóla en því fylgja oft mikil veikindi sem herjuðu þá oftast á alla fjölskyldumeðlimi. Hvaða áhrif hafði þetta á þinn námsferil? Ég þurfti ekki að seinka mér og naut þess að vera í sumarfríi með barninu eftir þriðja ár. Þetta hefur haft sín áhrif á einkunnir en með tímanum lærir maður að skipuleggja sig betur. Hversu þétt stuðningsnet hafðirðu? Ég er með mjög þétt stuðningsnet en þurfti ekki mikið að stóla á það. Ég hafði mjög lítinn áhuga á að fara frá barninu fyrstu mánuðina og nýtti tímann meðan hún svaf til að læra. Um haustið var hún orðin tæplega átta mánaða og þá hentaði mér vel að byrja aftur í náminu og pabbinn tók við. Hann frestaði einni önn hjá sér í læknisfræðinni en mun samt útskrifast með sínum árgangi 2018. Hann fékk valtímabilið á sjötta ári metið vegna fyrra náms og mun því taka geð/tauga/ augn á síðustu önninni. Hvað myndirðu gera öðruvísi í dag? Ég myndi skipuleggja mig betur á fjórða ári, það er erfitt að setjast niður og læra t.d. um helgar þegar mann langar helst að vera með barninu en ég mæli með að fá góða pössun í nokkrar klukkustundir og gefa sér tíma í að lesa. Hefurðu einhver ráð til læknanema/ unglækna í barneignahugleiðingum? Bara „go for it!“ Ekkert toppar það að eignast afkvæmi í lífinu og þú græðir ekkert á því að bíða. Það gerði mig að betri og sterkari manneskju. Ég er með þykkari skráp fyrir vikið og sé miklu skýrar hvað það er sem skiptir mig máli í lífinu. Ólýsanleg hamingja en auðvitað er þetta oft erfitt.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.