Læknaneminn - 01.01.2017, Side 145

Læknaneminn - 01.01.2017, Side 145
Sk em m tie fn i 14 4 Klínísku árin Áslaug Baldvinsdóttir Útskriftarár úr Læknadeild: 2017 Frumburður fæddur: Ég eignaðist tvíburana mína í mars 2014, var þá á fimmta ári. Hverjir eru helstu kostir þess að hefja barneignir á þessum tíma? Ég veit ekki hvort einn tími sé eitthvað betri en annar ef maður ætlar sér að hefja barneignir í náminu. Til að svara spurningunni þá er kannski helsti kosturinn við að eignast barn á fimmta ári sá að maður er búinn með stóru fögin á fjórða ári í lyf­ og skurðlæknisfræði og fögin á fimmta ári eru kennd fjórum sinnum yfir námsárið. Því er auðveldara að púsla saman framhaldinu ef maður tekur sér frí frá námi. Hvað var erfiðast? Svona námslega séð þá var erfiðast að þurfa að fresta sér og horfa á eftir bekkjarfélögunum en að sama skapi var líka mjög gaman að fara í nýjan bekk og kynnast fleira skemmtilegu fólki. Hvaða áhrif hafði þetta á þinn námsferil? Ég tók mér rúmlega eitt ár í hlé frá náminu. Ég þurfti að taka mun lengra hlé en ég hafði ætlað mér, bæði vegna veikinda á meðgöngu og erfiðleika við að fá dagvistun fyrir krakkana. Ég var svo heppin að geta fengið valtímabilið metið vegna fyrra náms og gat því útskrifast aðeins einu ári seinna en ekki einu og hálfu ári. Hversu þétt stuðningsnet hafðirðu? Bæði fjölskylda mín og mannsins míns búa úti á landi svo stuðningsnetið var ekki mjög mikið hér í bænum. Þetta var því talsvert púsluspil, sérstaklega eftir að ég byrjaði aftur í náminu og krakkarnir komnir í dagvistun. Maðurinn minn þurfti að sjá um að skutla og sækja í dagvistun og vera heima með krakkana ef þau voru lasin þar sem það er almennt mikil viðveruskylda og lítill sveigjanleiki í verklegu námi í Læknadeild. Hvað myndirðu gera öðruvísi í dag? Mér dettur ekkert í hug. Hefurðu einhver ráð til læknanema/ unglækna í barneignahugleiðingum? Bara láta verða af því :). Sindri Aron Viktorsson Útskriftarár úr Læknadeild: 2013 Frumburður fæddur: Vorönn á fimmta ári (barna/kvenna). Hverjir eru helstu kostir þess að hefja barneignir á þessum tíma? Mikið svigrúm á bróðurparti sjötta árs til að haga hlutunum eins og maður vildi. Allur munur samanborið við að vera í þungu verknámi á fjórða ári eða byrjaður að vinna sem kandídat. Hvað var erfiðast? Mikil viðvera á kvennadeildinni skömmu eftir fæðingu var íþyngjandi á tímum. Óheppilegt var líka að þurfa að fara út á land í eina viku á sjötta ári. Þá var ekkert svigrúm til að fara erlendis á valtímabili sjötta árs sem hafði verið stefnan. Hvaða áhrif hafði þetta á þinn námsferil? Lítil sem engin, tók þrjá mánuði í fæðingarorlof að loknu sjötta ári og hóf kandídatsár því ekki fyrr en 1.ágúst. Hversu þétt stuðningsnet hafðirðu? Mjög þétt. Maki var líka í læknisfræði og seinkaði sér, hún skipti fjórða árinu upp í tvennt. Mestu munaði um að vera enn í HÍ þannig að við fengum pláss á ungbarnaleikskóla FS. Þannig þurfti hún ekki að seinka sínu námi frekar og ég ekki neitt. Hvað myndirðu gera öðruvísi í dag? Ekkert. Hefurðu einhver ráð til læknanema/ unglækna í barneignahugleiðingum? Það er óneitanlega heppilegt að hafa svigrúmið sem námið veitir samanborið við það þegar kandídatsár og deildarlæknastörf hefjast en á móti kemur að í náminu er oftast einungis í boði fæðingarstyrkur námsmanna sem er ekki upp á marga fiska. Í mínu tilfelli spilaði það sína rullu að við vorum þegar að ala upp annað barn (úr fyrra sambandi hennar) og vorum því bundin að því leytinu til. Hluti ákvörðunarinnar var því á þeim rökvísu nótum að það væri betra að gera þetta fyrr en seinna. Nú þegar sérnám er handan við hornið er ég ánægður að hafa gert þetta á sínum tíma þannig að nægur tími er liðinn fyrir góð fjölskyldutengsl að hafa myndast við t.d. ömmur og afa, frændur og frænkur, að ógleymdu tungumálinu sem er nú búið að mótast mjög vel, áður en út er haldið. Fæðingarstyrkur Læknafélags Íslands Læknir sem eignast barn, tekur barn til ættleiðingar eða í varanlegt fóstur getur sótt um fæðingarstyrk að fjárhæð kr. 520.000 (fyrir skatt). Ef foreldrar barns eru báðir læknar greiðist vegna hvers barns öðru foreldri fullur styrkur en hinu foreldrinu hálfur styrkur. Ef um fjölbura er að ræða hækkar fjárhæðin um 50% fyrir hvert barn. Eingöngu læknar sem starfa og fá greidd laun á Íslandi eiga rétt á styrknum. Þeir þurfa að hafa starfað í a.m.k. 6 mánuði á Íslandi og sama gildir um kandídata, þ.e. kandídat sem hefur starfað á Íslandi í a.m.k. 6 mánuði á rétt á styrknum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.