Læknaneminn - 01.01.2017, Qupperneq 150
Ra
nn
só
kn
ar
ve
rk
ef
ni
3
. á
rs
ne
m
a 2
01
6
14
9
Árangur ósæðarlokuskipta hjá
konum á Íslandi
Anna Guðlaug Gunnarsdóttir1,
Sindri Aron Viktorsson2, Arnar Geirsson2,
Tómas Guðbjartsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Hjarta- og
lungnaskurðdeild Landspítala
Inngangur: Erlendis eru konur 3050% sjúklinga sem
gangast undir lokuskipti vegna ósæðarlokuþrengsla.
Árangur þessara aðgerða hjá konum hefur ekki verið
rannsakaður sérstaklega hér á landi og var markmið
rannsóknarinnar að bæta úr því.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn
og náði til allra sjúklinga sem gengust undir
ósæðarlokuskipti á Íslandi vegna ósæðarlokuþrengsla
á árunum 20022013, en útilokaðir voru 94 einstak
lingar sem áður höfðu farið í hjartaaðgerð, ónóg
gögn lágu fyrir eða ef ábending fyrir aðgerð var
ósæðarlokuleki eða hjartaþelsbólga. Úr sjúkraskrám
voru skráð einkenni og áhættuþættir hjartasjúkdóma,
fylgikvillar aðgerðar og farið var yfir hjartaómanir
fyrir og eftir aðgerð. Heildarlifun var metin með
aðferð KaplanMeier og forspárþættir dauða innan
30 daga metnir með lógitískri aðhvarfsgreiningu.
Meðal eftirlitstími var 6,2 ár (bil 113,9).
Niðurstöður: Af 433 sjúklingum voru 151 konur
(34,9%) og var meðalaldur þeirra 2,5 árum hærri
karla (72,6 sbr. 70,1 ár, p=0,01). Einkenni beggja
kynja voru sambærileg nema hvað konur höfðu
martækt oftar sögu um hjartabilun (27,8% sbr.
16,4%, p=0,0071) og sjaldnar blóðfituröskun (39,1
sbr. 50,7%, p=0,027) eða sögu um reykingar (43,9
sbr. 55,2%, p=0,034). Karlmenn virðast um 8%
líklegri til að hafa tvíblöðkuloku (22,4% hjá konum
sbr. 30,8%, p=0,089). Hámarks þrýstingsfallandi
yfir lokuna var 74,6 mmHg hjá konum borið
saman við 67,9 mmHg hjá körlum (p=0,016).
Tíðni snemmkominna fylgikvilla, bæði minniháttar
(72,2% sbr. 69,6% karla) og alvarlegra (30,5% sbr.
27,8% karla) var sambærileg fyrir konur og karla
(p=0,66 og p=0,63). 30 daga dánartíðni var 8,6%
fyrir konur en 3,9% fyrir karla (p=0,068) og eftir
5 ár var lifun kvenna 78,6% miðað við 83,1% hjá
(p=0,245). Sterkustu forspárþættir dauða innan 30
daga voru aldur og NYHA flokkar 3 eða 4. Kvenkyn
reyndist ekki sjálfstæður forspárþáttur eftir að leiðrétt
var fyrir öðrum forspárþáttum (OR: 2,28, 95%ÖB:
0,935,77).
Ályktanir: Á Íslandi eru konur um þriðjungur
þeirra sem gangast undir ósæðarlokuskipti vegna
ósæðarloku þrengsla. Þær eru rúmlega tveimur árum
eldri en karlar þegar kemur að aðgerð og virðast
hafa lengra genginn sjúdóm en karlar. Hjá konum
er tilhneiging til hærri 30 daga dánartíðni en tíðni
fylgikvilla og langtíma lifunar er þó svipaður fyrir
bæði kyn.
Áhætta á blóðsegum hjá sjúk
lingum með nonHodgkin’s
eitilfrumu krabbamein
Lýðgrunduð rannsókn
Anna María Birgisdóttir1, Ingigerður
Sólveig Sverrisdóttir1, Sigrún Helga Lund1,
Sigurður Yngvi Kristinsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands,
2Blóðlækningadeild Landspítala
Inngangur: Eitilfrumukrabbamein eru hópur ill
kynja meina sem eiga upptök sín í eitlum og eitilvef
og skiptast í nonHodgkin’s (NHL) og Hodgkin’s
eitilfrumukrabbamein. Flest NHL eiga uppruna
sinn í B eða Teitilfrumum og eru þau um 3%
krabbameina á Íslandi. Sum þeirra vaxa hratt og eru
ágeng, en önnur vaxa hægt og þarf jafnvel ekki að
meðhöndla því sjúklingar geta verið einkennalausir
í fjölda ára. Vel er þekkt að krabbamein auki áhættu
á blóðsegum, sérstaklega bláæðasegum, en lítið er
vitað um segahneigð sjúklinga með NHL. Markmið
rannsóknarinnar er að meta áhættu á blóðsegum hjá
sjúklingum með NHL miðað við samanburðarhóp
og athuga hvort breyting hafi orðið á áhættunni
undanfarin ár.
Efniviður og aðferðir: Þýði rannsóknarinnar saman
stóð af einstaklingum sem greindir höfðu verið með
NHL í Svíþjóð á árunum 19802013 og allt að
fjórum viðmiðum sem pöruð voru við hvern NHL
sjúkling á aldri og kyni (n=156.031, tilfelli=40.354,
Helga Þórunn Óttarsdóttir 154
Trends in Mode of Access of Benign
Hysterectomy Following the FDA
Power Morcellation Advisory
Hildur Þóra Ólafsdóttir 155
Gastrointestinal stromal tumor á
Íslandi 20042015
Hilmar Leonardsson 155
Lifrarbólga af völdum EpsteinBarr
og cytomegaloveira
Ingvar Ásbjörnsson 155
Gildi berkjuómspeglunar í greiningu
og stigun lungnakrabbameins á Íslandi
Íris Kristinsdóttir 155
Methicillin ónæmur Staphylococcus
aureus: Faraldur á Vökudeild Barna
spítala Hringsins 2015
Ívar Elí Sveinsson 156
Rannsókn á kennslu Bjargráðs
– Félags læknanema um endurlífgun
Jóhanna Brynjarsdóttir 156
Nýting biofilm matrixpróteins sem
sérstaks miðlara mótefnavaka
í lifandi veikluðu bóluefni við kóleru
Jón Ágúst Stefánsson 156
Mikilvægi DNA bindisvæðisins fyrir
flutning MITF inn í kjarna.
Jónas Ásmundsson 156
Krabbamein í leghálsi á Íslandi
20012015
Jónas Bjartur Kjartansson 157
Sýkingar hjá sjúklingum með Hodgkin
eitilfrumukrabbamein
Kjartan Þórsson 157
Sarkmein í stoðkerfi á Íslandi
19862015
Kristín Fjóla Reynisdóttir 157
Gastroschisis og omphalocele: Tíðni,
sjúkdómsgangur og árangur meðferðar
Kristján Orri Víðisson 158
Árangur ósæðarlokuskipta vegna
ósæðarlokuþrengsla á Íslandi
20022013
Matthías Örn Halldórsson 158
The risk of developing a mismatch
repair deficient (dMMR) colorectal
cancer (CRC) after undergoing
cholecystectomy (CCY)
Rakel Nathalie Kristinsdóttir 158
Langlíf mótefnaseytun B frumna og
áhrifavaldar hennar: Lærdómur dreginn
af sértækum IgA skorti
Salvör Rafnsdóttir 159
Miðla utangenaerfðir kæliviðbragði
í frumum?
Sigmar Atli Guðmundsson 159
Hefur notkun ceftriaxone breyst á
bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins?
Signý Malín Pálsdóttir 159
Changes in protein expression
and activation in rat arteriovenous
fistula in vitro
Steinunn Birna Sveinbjörnsdóttir 160
Kynáttunarvandi á Íslandi
1997 2015: Aldur, kynjadreifing,
lífsvenjur, lyfjameðferð, skurðaðgerðir
og notkun á annarri þjónustu
Valur Guðnason 160
The use of highdensity EEG to map
out cortical motor activity and
reorganization following lowerlimb
amputation