Læknaneminn - 01.01.2017, Side 157
Ra
nn
só
kn
ar
ve
rk
ef
ni
3
. á
rs
ne
m
a 2
01
6
15
6
Rannsókn á kennslu Bjargráðs –
Félags læknanema um endurlífgun
Ívar Elí Sveinsson1, Hjörtur Oddsson2, Felix
Valsson3, Bergþór Steinn Jónsson1
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Hjartadeild
Landspítala, 3Svæfingadeild Landspítala
Inngangur: Haustið 2013 var stofnað félag að
frumkvæði Bergþórs Steins Jónssonar í Læknadeild HÍ
sem hafði það markmið að fræða menntaskólanema
um skyndihjálp. Félagið fékk nafnið Bjargráður og
hefur frá stofnun sótt marga skóla heim þar sem
að fluttir hafa verið u.þ.b. klukkustundar langir
fyrirlestar um endurlífgun ásamt sýnikennslu á
endurlífgunardúkkum. Markmið félagsins er að auka
meðvitund í samfélaginu um mikilvægi endurlífgunar
nærstaddra (e. Bystander CPR) og leggja grunn
að kunnáttu í endurlífgun. Markmið þessarar
rannsóknar er að athuga hversu vel efni fyrirlestrarins
situr eftir hjá nemendum, hvert almennt viðhorf
þeirra til ýmissa atriða endurlífgunar er og hvað mætti
betur fara í kennslu Bjargráðs.
Efniviður og aðferðir: Lagt var 15 spurninga
krossapróf fyrir nemendur á fyrsta, öðru og
þriðja námsári í Menntaskólanum í Reykjavík og
Verslunarskóla Íslands í október 2015 og febrúar/
mars 2016. Þýði var samtals 1513 nemendur á
framhaldsskólastigi. Prófað var úr undirstöðuatriðum
endurlífgunar til þess að meta kunnáttu nemenda.
Nemendum á fyrsta námsári í báðum skólum var skipt
í tvennt, annar helmingurinn prófaður fyrir fræðslu
Bjargráðs og hinn helmingurinn fjórum mánuðum
eftir fræðsluna. Þeir hópar voru bornir saman ásamt
því að athuga hvað sat eftir af þekkingu hjá öðru og
þriðja námsári sem fengu fræðslu Bjargráðar fyrir
einu og tveimur árum.
Niðurstöður: Samtals tóku 1218 nemendur prófið
í rannsókninni og var því svarhlutfall 80,5%.
Mikil grunnþekking í skyndihjálp var til staðar
hjá þýði og hafði 46,6% nemenda áður farið á
skyndihjálparnámskeið fyrir fræðslu Bjargráðs.
Einkunn var reiknuð fyrir alla nemendur út frá
spurningum 113 á prófinu. Nemandi taldist hafa
staðist prófið ef hann svaraði 7 eða fleiri spurningum
réttum sem jafngildir 5.38 í einkunn eða hærra. Við
skoðun gagna kom í ljós að fyrir fræðslu Bjargráðs
var grunnþekking meiri hjá þeim hóp sem áður
hafði farið á námskeið í endurlífgun (45,5% stóðust,
p<0.001) heldur en hjá þeim hóp sem ekki hafði farið
á námskeið í endurlífgun (30,0% stóðust, p<0.001).
Fjórum mánuðum eftir kennslu jókst þekking
beggja hópa mikið og stóðust u.þ.b. 80% (p<0.001)
nemenda í þeim báðum prófið sem lagt var fyrir. Yfir
tveggja ára tímabil dalaði þekking þess hóps sem
hafði einungis fengið fræðslu Bjargráðs um 16,4%
en þess hóps sem einnig hafði sótt annað námskeið í
endurlífgun um 4,5%. Jákvæð fylgni sást einnig milli
þess að nemendur fengu hærri einkunn og að þeir
treystu sér til þess að hnoða ókunnugan einstakling
og beita AED tæki ef þyrfti.
Ályktanir: Kennsla Bjargráðs eykur þekkingu á
endurlífgun hjá þeim nemendum sem sátu námskeið
Bjargráðs. Nemendur sem fá hærri einkunn á prófinu
telja sig sömuleiðis líklegri til þess að beita hjartahnoði
og AED tæki á ókunnugan einstakling sé þess þörf.
Einnig virðist sem að meiri þekking á endurlífgun sitji
eftir hjá þeim sem farið hafa á fleiri en eitt námskeið
í endurlífgun. Mikilvægt er að kenna endurlífgun
í skólum, ef til vill einu sinni á grunnskólastigi við
12/13 ára aldur og aftur á framhaldsskólastigi við
15/16 ára aldur. Það ýtir undir góða þekkingu sem
nemendur geta tileinkað sér til lengri tíma ásamt því
að vekja áhuga þeirra á endurlífgun. Nemendur fá
þannig góðan grunn í endurlífgun og sækja vonandi
upprifjunarnámskeið af sjálfsdáðum.
Nýting biofilm matrixpróteins sem
sérstaks miðlara mótefnavaka í
lifandi veikluðu bóluefni við kóleru
Jóhanna Brynjarsdóttir1, Julie Liao2,3,
Paula I. Watnick2,3
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Boston
Children’s Hospital, 3Harvard Medical
School
Inngangur: Kólera á stóran þátt í dauða ungra barna af
völdum niðurgangspesta, sérstaklega í þróunarlöndum
þar sem viðeigandi heilbrigðisþjónusta er af skornum
skammti. Dukoral® er annað af tveimur bóluefnum
við kóleru á markaðnum í dag. Það inniheldur dauðar
Vibrio cholerae bakteríur ásamt einangruðum hluta
af eitri bakteríunnar, cholera toxin subunit B (CTB).
Þessi viðbót af CTB virkar sem ónæmisglæðir fyrir
bóluefnið ásamt því að veita að hluta vörn gegn
enterotoxigenískum E. coli (ETEC) sem er önnur
algeng ástæða fyrir niðurgangi hjá ungum börnum.
En einangrað CTB gerir bóluefnið of dýrt fyrir
þróunarlöndin. Shanchol® bóluefnið inniheldur
hins vegar einungis dauðar V. cholerae og er því
notað í þróunarlöndum. Þessi rannsókn skoðaði
hversu áhrifaríkt lifandi veiklað bóluefni, með
biofilm matrix próteinið RbmA sem miðlara fyrir
mótefnavakann CTB, er í myndun ónæmissvars við
CTB í músamódeli.
Efniviður og aðferðir: 10 BALB/c mýs fengu
sublingual bólusetningu með V. cholerae stofninum
MO10 DctxA/prbmactxB þrisvar með tveggja
vikna millibili. Blóðsýnum var safnað fyrir fyrstu
bólusetningu (D1), fyrir hverja endurbólusetningu
(D14, D28) og svo tveimur vikum eftir síðustu
endurbólusetningu (D42). Saursýnum var safnað
fyrir fyrstu bólusetningu (D1), daginn eftir
endurbólusetningar (D15, D29) og svo D42. Kinetic
ELISA var notuð til að greina CTB sértæk IgG og
IgA mótefni í sýnum. Einnig var fylgst með útskilnaði
bóluefnisins í saursýnum fyrstu 23 dagana eftir
hverja bólusetningu mælt í CFU/gr saur.
Niðurstöður: CTB sértækt IgA í saur var marktækt
hærra D15, D29 og D42 miðað við D1, p<0.0001.
Sértækt IgA í sermi var marktækt hærra D28 og D42
miðað við D1, p=0.002 og p=0.03. Engin marktæk
aukning mældist á sértæku IgG í sermi. Útskilnaður
bóluefnisins var ávallt bundinn við fyrsta dag eftir
bólusetningu, eða tímapunkta D1, D15 og D29. Þar
sem 5 mýs af 10 skildu út lifandi veiklaða bóluefnið
eftir fyrstu bólusetninguna en aðeins ein mús af 10
eftir báðar endurbólusetningarnar. Tímapunktana
D2, D3, D16 og D29 var enginn útskilnaður
bóluefnisins.
Ályktanir: Þessi aðferð virðist ekki eins áhrifarík í
myndun sértækra mótefna við CTB eins og þegar
hreint CTB er gefið. Það gæti t.d. stafað af of þéttri
tengingu bakteríufruma sem gæti valdið því að
ónæmiskerfið sér ekki antigenið nógu vel. Engin
aukning var á IgG það þarfnast frekari rannsókna
en skoða þarf sérstaklega áhrif þess að gefa bóluefnið
sublingualt. Með frekari rannsóknum væri svo hægt
að kanna hvort bóluefnið veiti vörn gegn kóleru
Mikilvægi DNA bindisvæðisins
fyrir flutning MITF inn í kjarna.
Jón Ágúst Stefánsson1,2,3, Valerie Fock1,2,
Margrét Helga Ögmundsdóttir1,2, Eiríkur
Steingrímsson1,2,3
1Læknadeild HÍ, 2Lífefna- og
sameindalíffræðistofa, 3Lífvísindasetur
Inngangur: Umritunarþátturinn MITF (microph
thalmiaassociated transcription factor) er tjáður
í lit frumum og er mikilvægur fyrir þroskun frum
nanna, sérhæfingu þeirra og framleiðslu á melan íni.
MITF tilheyrir basic helixloophelix leucine zipper
fjölskyldunni en basíska svæðið (e. basic region) binst
við DNA og hvetur umritun ýmissa gena. Til eru
nokkur ísóform af MITF en styst þeirra er MITFM
sem er 419 amínósýrur að lengd. Í mönnum hafa
sjúkdómarnir Waardenburg syndrome (WS), Tietz og
sortuæxli verið tengdir við stökkbreytingar í MITF.
Kjarnastaðsetningarmerki (e. nuclear localization
signal) eru mikilvæg fyrir flutning próteina inn
í kjarna. Markmið rannsóknarinnar var að kortleggja
hvaða svæði MITFM próteinsins hafa áhrif
á flutning þess inn í kjarna.
Efniviður og aðferðir: Útbúnar voru genaferjur
sem tjáðu EGFPMITFM og MITFMFLAG
samrunaprótein. Einnig voru útbúnar stökkbreytingar
í genaferjunum sem breyta tilteknum hlutum MITF
próteinsins. Genaferjunum var síðan komið fyrir
í bæði 501Mel sortuæxlisfrumum og HEK293T
frumum og staðsetning samrunapróteinsins ákvörðuð
með lagsjá (e. confocal microscopy).
Niðurstöður: MITFM fannst aðallega í kjarna en
einungis lítill hluti þess var í umfrymi. Þegar hlutar
MITFM próteinsins voru fjarlægðir af amínó eða
karboxýlenda próteinsins og stökkbreytingarnar
NDel120, NDel170, 298X og 316X útbúnar var
próteinið einungis staðsett í kjarna. Þegar fjórum
arginínum í DNAbindisvæðinu (amínósýrum 214
217) var breytt í alanín (B4RA), glútamat (B4RE) eða
þeim eytt (B4RDel) kom í ljós að MITFM er nær
eingöngu að finna í umfrymi. Niðurstöðurnar voru
þær sömu hvort sem samruni MITFM var við EGFP
eða FLAG próteinin. Tvöfalda stökkbreytingin
B4RA+316X sýndi punktað mynstur í umfrymi.
Stökkbreytingin E318K svipaði til villigerðarinnar
og fannst próteinið fyrst og fremst í kjarna. Tvöfalda
stökkbreytingin B4RA+E318K olli ekki punktuðu
mynstri heldur leit út eins og B4RA og var nær
eingöngu staðsett í umfrymi.
Ályktanir: DNAbindisvæði MITF inniheldur
fjögur arginín sem gegna mikilvægu hlutverki í
að flytja MITF inn í kjarna frumna. Við teljum
að MITF sé flutt inn í kjarnann með klassísku
innflutningsleiðinni þar sem arginínin fjögur í DNA
bindisvæðinu virka sem kjarnastaðsetningarmerki.
Mögulega er MITFM að hluta til brotið niður með
sjálfsáti og hugsanlega gegna svæði í karboxýlenda
próteinsins hlutverki í þessu ferli.
Krabbamein í leghálsi á Íslandi
20012015
Jónas Ásmundsson1, Ásgeir Thoroddsen2,
Þóra Steingrímsdóttir1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Kvennadeild
Landspítalans
Inngangur: Á Íslandi greinast árlega um 15 konur
á ári með krabbamein í leghálsi. Talsvert er vitað um
orsakir leghálskrabbameins. HPVveirur (e. human
papilloma virus), sem smitast við kynmök, eru í lang
flestum tilfellum nauðsynleg forsenda fyrir myndun
ill kynja æxla í leghálsi. Sem dæmi um helstu áhættu
þætti má nefna fjölda rekkjunauta, önnur kynsmit
og reykingar. Leghálskrabbamein er í langflestum
tilfellum af flöguþekjuuppruna. Kjörmeðferð fer eftir
stigun krabbameins hverju sinni en algengast er að
framkvæmd sé skurðaðgerð ef krabbameinið greinist
nógu snemma. Litlar upplýsingar liggja fyrir um
leghálskrabbamein á Íslandi. Tilgangur rannsóknar
þessarar var að fá yfirsýn yfir sjúkdóminn hér á landi,
s.s. aldursdreifingu, einkenni, greiningaraðferðir,
meingerð, meðferð og horfur.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn
og náði til allra kvenna sem greindust með legháls
krabbamein á Íslandi á árunum 20012015. Klín
ískar upp lýsingar um sjúklingana og sjúkdóm
þeirra fengust úr sjúkra skrám, aðgerðar lýsingum,