Það bezta - 15.01.1948, Síða 17
ím
ÓTRÚLEGUSTU HLUTIR ÚR GLERI
15
leiðslur úr gleri. sem þolir högg
og þrýsting, og svo er nýjum raf-
suðuaðferðum fyrir að þakka, að
það er jafnauðvelt að sjóða
leiðslurnar saman og þó að þær
væru úr málmi. í efnaverksmiðju
voru dælur úr ryðlausu stáli van-
ar að endast í nálægt 60 daga.
Fyrir þremur árum var skipt á
þeim og glerdælum, sem ennþá
eru ekki farnar láta neitt á
»j*-
V ísindamenn Corning-verk-
smiðjanna Iiafa búið til kúlu-
legur úr gleri. Þær þola þrýst-
ing, sem mundi bræða venjuleg-
ar kúlulegur eins og vax. Ég
sá glergorm, sem við tilraunir
Var þvingaður . saman nokkiu'
milljón sinnurn. Stálgormur
mundi aldrei hafa rétt sig upp
aftur; en hér benti ekkert til
þess, að slaknað hefði á fjöðr-
inni. Ég sá líka miðstöðvarofn
úr gleri. Hann var nálægt 50
sentímetrar á hverja hlið og
fóðraður með mjög þunnum
málmdúk að neðan. Kannske
verða húsin hituð upp á þenn-
an hátt í framtíðinni — með raf-
magnsglerþynnum í veggjum og
gólfi.
Drykkjarglös úr þessu nýja
efni eru mjög sterk. í verksmiðju
einni í Iílinois missti ég glas á
steingólfið. En í staðinn fyrir
að mölbrotna, hoppaði það eins
og gúmknöttur þrem-fjórum
sinnum, áður en ég gat gripið
það. Og það vottaði ekki einu
sinni fyrir sprungu á því.
Fyrir stríðið var fyrirtækið
Libby-Owens-Ford þegar búið
að framleiða gler, sem var svo
sterkt, að það mátti setja á það
lamir og nota fyrir hurðir. Þeg-
ar þess konar gler hefur verið
valtað nægilega oft, verðttr það
svo seigt, að allkröftugar sprengi-
kúlur vinna ekki á því..
Þá vekur það ekki minni
furðu, hve mikinn viðnámskraft
þetta nýja gler hefur gegn mikl-
um hita og kulda. Það má taka
íshellu, lá ta ;r,úðu úr T uf-f lexgleri
ofan á og hella síðan bráðnu
blýi yfir hana, og rúðan er al-
Veg jafngóð eftir sem áður. I
bandaríska hernum er þetta gler
notað í Ijóskastara með 800 miilj.
kerta ljósmagni. Þó að tuttugu
stiga frost sé, þegar slökkt er á
Ijóskastaranum, springur glerið
ekki.
Á stríðsárunum tókst vísinda-
mönnunum að framleiða í stór-
um stíl fhvolft gler með 100%
gagnsæi; það er eins og að Iiorfa