Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Qupperneq 9

Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Qupperneq 9
Af skaða vér nemnm hin nýtustn ráð Það er óumdeilanlegt, að kjörum vinnandi fólks í landinu hefur hrakað meir síðastliðin tvö ár en nokkru sinni áður á jafn skömmum tíma. — En það sem er mest vert athygli af öllu er, að heildarsamtök íslenzkrar alþýðu hafa á þessum tíma ekkert aðhafzt til viðnáms; þvert á móti hefur forysta þeirra greitt götu ýmiss konar ófarnaði í búi alþýðunnar, þótt undarlegt sé, fljótt á Iitið. Hvílík umskipti í lífi heildarsamtaka íslenzkrar alþýðu. — Höfðu þau ekki árum saman fram til þessa með lifandi árvekni og skjótum viðbrögðum svarað dýrtíðarárásum auðstéttarinnar og kveðið niður gengislækkunardrauginn um leið og hann skaut upp kollinum? Hvað hefur skeð ? Einfaldlega það, að í stjórn og rekstri Alþýðusambands íslands hef- ur orðið kúfvending. Þar sem áður var greipt kjörorðið: stéttarleg ein- ing um daglega hagsmuni verkafólksins án tillits til mismunandi stjórn- málaskoðana, hefur verið sett nýtt kjörorð, sem Helgi Hannesson núver- andi forseti Alþýðusambandsins orðaði þannig: „útrýming kommúnista úr verkalýðssamtökunum“. — En núverandi ritari A. S. í., Ingimundur Gestsson, útskýrði á síðasta sambandsþingi kjörorðið þannig: „Komm- únistar, það eru aktivistarnir í verkalýðssamtökunum“. Sem sé komúnistar skulu kallaðir og meðhöndlaðir sem slíkir, allir þeir, sem bezt ganga fram (aktivistarnir) í hinu stéttarfélagslega starfi alþýðunnar, hvað sem stjórnmálaskoðun þeirra líður. Og hvers vegna skal orðinu ,,kommúnisti“ gefin svona rúm merking í verkalýðssamtökunum ? Af þeirri einföldu ástæðu, að þeir sem lögðu þetta kjörorð í munn þeim Helga og Ingimundi, vita að í verkalýðssam- tökunum eru fleiri trúir og ötulir menn (aktivistar) en kommúnistar. Takmarkið á bak við kjörorðið er það að vernda og auka pyngju þeirra er nú hagnast mest á gengislækkun, dýrtíð og ófarnaði alþýðunnar. Til þessa er nauðsynlegt að fá bugað stéttarsamtök alþýðunnar á einhvern hátt, en þá þarf að ryðja úr vegi öllum mönnum, sem hún getur treyst í hagsmunabaráttunni, öllum ,,aktivistum“, og þá er ekki spurt um stjórnmálaskoðun heldur hitt: stendur þessi maður í vegi fyrir „vin- samlegri“ eða óvinsamlegri framkvæmd gengislækkunarinnar o. s. frv.! Og í stað slíkra skulu settir Ingimundar og Helgar. í kaupdeilunni miklu 1947 um sumarið öskruðu blöð auðstéttarinnar og agentar: „Kommúnistar", „Rússar“! — Allir vita nú, að hið raun- verulega ásteytingsefni þeirra var það, að verkalýðssamtökin, sem þá lutu stjórn sameiningarmanna (,,aktivistanna“) voru að hrinda af sér Vestur-Evrópu landanna er einbeitt að undirbúningi styrjaldar, blómgast hagur verkalýðsins í alþýðulýðveldum Austur- Evrópu við friðsamleg störf í þágu framtíð- arinnar. * „Framleiðsla kjarnorkusprengjunnar var upphafið að endalokum amerísku stórvelda- stefnunnar. Hún setur traust sitt á sprengj- una, en ekki á fólkið. Það verður ekki hún sem tortímir fólkinu, heldur fólkið sem tor- tímir henni." (Mao Tse Tung.) * Frá Río de Janeiro berast fregnir um að nýlega hafi 2000 iðnaðarverkamenn frá For- taleza í fylkinu Ceara gert verkfall, sem lyktað hafi eftir fjórtán daga með miklum árangri fyrir verkamenn. — Kröfur þeirra voru: 100% launahækkun, tafarlaus greiðsla á vangreiddum vinnulaunum og ógilding ó- hagstæðra ákvæða um vinnuskilyrði. — At- vinnurekendur gengu að kröfunum í megin- atriðum. —• Þennan mikla sigur ber að þakka öflugum samúðaraðgerðum viðkom- andi verkalýðssambands, sem er deild í Verkalýðssambandi Brasilíu. * „Þið (óánægðir verkamenn hjá Ford) segið að vinnuhraðinn sé óhóflegur, fyrir- tækið segir nei. Hverjum á eg að trúa? — (Walter Reuther.) Mál verkalýðsins á Alþingi Togaravökulögin Strax og Alþingi kom saman fluttu þeir Sigurður Guðnason og Einar Olgeirsson að nýju frumvarp um 12 stunda hvíld togara- sjómanna. Þrátt fyrir það þó togaraverkfallið stæði þá enn, og samþ. Alþingis á þessu frv. hefði sennilega getað leitt til skjótrar lausnar þess, velktist frumvarpið um mánaðartíma í þingnefnd. Og þegar nefndin svo skilaði áliti, lagði meiri hluti hennar til að frumv. yrði vísað frá með eftirfarandi, fáránlegri, dagskrártillögu: „Þar sem Alþingi hefur þegar sett lög um lágmarkshvíldartíma háseta á botnvörpu- skipum og aðilar hafa nýlega orðið ásáttir um að gera nánari ákvörðun hvíldartímans að samningsatriði, telur deildin ekki rétt að svo stöddu, að ríkisvaldið hafi frekari af- skipti af þessu máli, og tekur fyrir næsta mál á dagskrá." ' VlNNAN OG VERKALÝÐURINN 3

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.