Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Qupperneq 17

Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Qupperneq 17
/Ó N JÓHANNESSON: H átíða- búningur kvenna á miðöldum tók hún að halda hátíölegan 25. des. sem hinn sanna fæðingardag Jesús Krists. Þegar stundir liðu, tók kirkja Austurlanda einnig upp hátíðahöld þennan dag, og var hann lögfestur sem fæðingardagur Krists í Antíokkíu árið 375. Kristinn Sýrlendingur ritar á einum stað um þær orsakir, sem urðu til þess, að kirkjan tók upp hátíðahöld á jólunum. Hann segir: „Orsakir þess, að kirkju- feðurnir lögðu niður þrettándahátíðina og tóku upp hátíðahöld þann 25. des., voru þessar. Það var siður heiðingja að halda hátíðlegan fæðingardag sólar- innar þann 25. des. og kveikja þá Ijós hvarvetna í hátíðaskyni. Kristnir menn tóku þátt í þessum hátíðahöldum. Þegar leiðtogar kirkjunnar komust að því, að kristnir menn aðhylltust þessa hátíð, skutu þeir á ráðstefnu og ákváðu, að þessi dagur skyldi talinn hinn sanni fæðingardagur Krists, en þrettándinn haldinn helgur til minningar um opinberun dýrðar hans. Samkvæma fornri venju hefur þess vegna haldizt, að eldar væru kyntir, þangað til þann sjötta.“ Ágústínus (354—430) kirkjufaðir viðurkennir hreinlega, að jólin séu upp- haflega heiðin hátíð, og hvetur kristna meðbræðui sh i3 til þ iss að halda þau ekki hátíðleg eins og heiðingjar sólinni til dýrðar, heldur þeim, sem skóp Á Norðurlöndum er jólahátíðin miklu eldri en kristindómurinn þar um slóðir, en hin heiðnu norrænu jól áttu auðvitað ekkert skylt við dýrkun gyðj- unnar Míþra eða persneskan átrúnað. Mönnum kemur ekki gjörla saman um, hvað norræna heitið jól merkir, en á öðrum málum eru jólin nefnd messa Krists (e. Christmas). Algengust mun skýring sú, að jól sé skylt mánaðar- heitinu ýlir (= janúar) og orðinu él. Jól ætti þess vegna að tákna ártíð hríða og bylja. Kaldranalegt heiti á þessari ginnhelgu hátíð. Norðurlandabúar höfðu fremur óljósar hugmyndir um lífið eftir dauðann, en þeir álitu þó, að langt í norðri og niður í undirdjúpunum byggju sálir framliðinna við þröng- an kost. Oðru hverju vitjuðu þær mannheima og reyndu að komast í samband við lifendur. Á næturnar, þegar kyrrð var komin á, fóru vofurnar á kreik og sveimuðu um þá staði, þar sem þær höfðu dvalið í lifenda lífi, þangað til haninn gól. Skammdegið var uppáhaldstími hinna framliðnu. Þá leituðu þeir einkum þeirra staða, þar sem þeir höfðu búið í líkamanum, og menn urðu að þoka fyrir þeim eina nótt á ári (á jólanóttina) og lofa þeim að njóta fornra heimkynna. Til þess að komast hjá reiði þeirra og forðast refsiaðgerðir af þeirar hálfu, urðu menn að undirbúa komu þeirra og taka vel á móti þeim, prýða hýbýlin eftir beztu föngum og slá upp veizlu þeim til heiðurs. Af þess- ari hátíð eru hin norrænu jól sprottin. VÍSNABÁLKUR BreiSfirzkir órabátar 1 Þarna syngur kvik og kát kvœðahendinguna aldan kringum árabát inn við lendinguna. 2 Hajið greiðir hadd við sker, hrönnum eyða látur; gott er leiði, leiktu þér litli veiðibátur. 3 Titrar rökkur, tómlátt hrökkva tár úr mökkvanum; þarna sökkur djúpið dökkva dimma nökkvanum. Þrísiikla Felur móða farna slóð, fölnar gróður dagsins, tárast blóði heitu hljóð huldur sólarlagsins. Tví-skorhenda Burtu hviklát hverfa ský, hví skal hika þegar stilltu bliki stjarna ný stajar ryk þíns vegar? Að sumbli Sit ég Borgar sölum í, sýp í Borgar Ijósi svikið Borgar-champagní, síðan borgar Dósi. Sorg í abstrakt Flœkingsþulu fram ég græt; jlóir í gulum tárurti léreftsdulusíldin sœt, sorgar hulin bárum. Amúrates hilmir hét, hann um guð ei skeytti; andskotanum Mahómet mesta þjónkun veitti. y Ur Amúrates-rímum. Höf. ókunnur, 11 VlNNAN OG VERKALÝÐURINN

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.