Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Qupperneq 18

Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Qupperneq 18
Frá stjórnarkosnmgnm Sjómamiafélags Reykjavíkur Skilið auðu Svo sem alkunnugt er orðið hafa menn þeir er um langt skeið hafa stjórnað Sjómannafélagi Reykjavíkur setið þar við völd í fullri óþökk sjó- manna almennt enda varið völd sín fyrir sjó- mönnum með aðstoð hundraða manna úr ýms- um stéttum úr iandi, manna, er hafa félagsrétt- indi í stéttarfélagi sjómanna vegna rangra skipu- lagshátta og láta yfirleitt ekki sjá sig á félagsfund- um nema þegar þeir eru kallaðir til að verja völd sæmundanna og sigurjónanna í félaginu fyrir hin- um eiginlegu félagsmönnum: sjómönnunum. Þetta hefur þeim landherforingjum útgerðarauð- valdsins í Sjómannafélagi Reykjavíkur tekizt í skjóli þess kosningafyrirkomulags sem hér skal lýst: 1. Á fundi í Sjómannafélagi Reykjavíkur er kjörin nefnd til að ákveða uppstillingu tveggja manna í hvert sæti á lista við stjórnarkjör. Fund þennan heldur stjórn félagsins yfirleitt ekki nema þegar sjómenn eru sem mest fjarverandi og geta ekki sótt fund. Þannig tryggir hún sér menn þá er fundurinn kýs í uppstillingarnefnd. 2. Þegar uppstillingarnefnd hefur lokið starfi kallar stjórn S. R. saman félagsfund er stillir þriðja manni í hvert stjórnarsæti. Fundur þessi er haldinn að jafnaði á þeim tíma er félags- t Reykjavikurhöfn stjórninni kemur bezt en sjómönnum verst eins og fyrri fundurinn. Þannig ræður stjórnin sjálf yfirleitt hverjir eru í stjórnarkjöri. Sjómönnum er raunverulega varnað þess að hafa nokkur áhrif á þetta. Af sérstökum ástæðum henti það undur á þessu félagsheimili í fyrra, að sjcpnenn komust nógu margir á félagsfund til þess að geta stillt einum manni af þremur í hvert stjórnarsæti. Sjómönn- um var við þessar kosningar neitað um að fá af- not kjörskrár ennfremur að fá fulltrúa til að fylgj- ast með kosningunni; loks var þeim einnig neit- að um að hafa fulltrúa við talningu atkvæða og kosningatilburðir landklíkunnar voru það ófrjáls- mannlegar að allir sáu sekt hennar. Þrátt fyrir svona meðhöndlun á rétti sjómanna í kosningunum í fyrra hafði atkvæðakassi land- hersklíkunnar það trúnaðarmál að geyma, er henni líður seint úr minni. Að þessu sinni leið heill mánuður fram yfir venjulegan tíma áður en kosning uppstillingarnefndar fór fram, því sjó- menn voru í landi vegna verkfallsins. Loks var svikist að sjómönnum með því að safna óvígum her landmanna á fund til að kjósa uppstiflingar- nefnd og í fundarboði vandlega þagað yfir því að þessi nefndarkosning væri á dagskrá. Á síðari fundinum sem stilla skyldi upp þriðja manni í hvert stjórnarsæti var einnig smalað landher en sjómenn þá almennt komnir út á sjó. Fer hér á eftir ávarp nokkurra sjómanna er lýs- ir skoðun þeirra á yfirstandandi stjórnarkjöri S. R. og afstöðu þeirra: I tilefni þess stjórnarkjörs, sem nú fer fram í Sjómannafélagi Reykjavíkur viljurn við nokkrir togarasjómenn taka fram eftirfarandi: Uþpstillingarnefnd sú er ráðið hefur tveimur af hverjum þrernur sem nú skal kosið um i stjórn félagsins, var kosin á fundi, er hundruðum land- manna var smalað á af fráfarandi félagsstjórn í þeim tilgangi að bera sjóm. ofurliði í atkvatða- greiðslu og hindra þar með áhrif þeirra á kjör uppstillingarnefndarinnar. Þetta var gert án þess að málið hefði verið auglýst í dagskrá í fundar- boði, á sama landmannafundi sem látinn var ráða úrslitum í togaradeilunni gegn vilja og hags- munum togarasjómanna. Sá félagsfundur sem stillti upp i þriðja sætið var einnig fundur landmanna, haldinn þegar vit- að var að sjómenn gátu ekki sótt fund. — Af þessu má sjá að enginn hinna 15 manna, sem eru i kjöri nú til stjórnar i Sjómannafélagi Reykjavikur, eru bornir fram af sjómönnum, og er það mála sann- 12 VlNNAN OG VERKALÝÐURINN

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.