Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Page 21

Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Page 21
treystir hann íslandi til þeirrar þróunar, sem heilbrigðust er, og þannig falla orð iians nm Reykjavik í samanburði við aðrar borgir: Þó hinar fái frægra orð, sem fleiri unnu barnamorð, en hafa völd um stærri storð, þar stattu baldaminnst sem allsnægjan er yfirborð, en ofan á skortinn grynnst. Á ríkisborga breiðastig í blindri ös mig dreymir þig og finnst ég fari þar sá eini, er þekki sjálfan sig í samki þvögunnar. Eða í Þingvallaljóðum: Þú munt, æska, á þessurn reit þagga kveinstaf ættlerans, er hann sjálfur sér og veit, sé á lokum öldin hans, sem við höftin heirnakröpp hafði týnt að renna í köpp. Eða í kvæðinu Óskasteinninn, þar sem allar vonir smaladrengs rætast í náinni framtíð: Hann stóð hjá nýrri öld og æsku í efstu sporum, seinna á tíð, og ferðbúna skipið á firðinum beið hans. I fjarsýni blánaði runnur við hlíð. Hver smali gat brugðið upp flugskóm á fætur, þó fjöll væru hnarreist og vorsvalar nætur . . . Hann kysi að vera ungur aftur í firðinum: Til lags við þig lífsþráin vaknar, og landelska gerir þú samferðamenn, átt ágæti alls, er þú saknar og afl þess og hamingja í vitum þér enn. Sé uppi svo eflandi kraftur, að ellibelg tímans liann varpaði af mér, og þyrfti eg að yngjast upp aftur og ósk mína fengi, — það kysi ég hjá þér! Það er ekki framtíðin, sem dregur að sér allan hug Stefáns við heimkomuna, þótt mjög beri á vonum og ugg, heldur víða fortíðin, bernsku- landið, eins og hann mundi það sjálfur. Upp úr liafi, yfir sollin djúpin, öldugrafin, týnd og drukknuð lönd, þarna lít ég þokast fjallagnúpinn, það er íslands hvíta móðurhönd! Feðrajörðin yfir bláauðn boðans breiðir faðm, og ljósið, sem liún á, hefst við sól í möttli morgunroðans. Mér að baki er gærdags sunna lág. . . . Lánsæld er það, létthlaðinn að mega lækka segl í feginshöfnum skjótt. Hvað er heimvon, örbirgð manns né eiga eftir langa hungurvökunótt? Vitkað barn með tveimur tómum mundum til þín sný ég, æskudrauma grund. Það var stundum flónsgull, sem við fundum fyrir liandan þetta breiða sund. Fegurð þessa ljóðs og líkingamálið taka hugann fastan. Morgunroðinn er það tákn, sem skáldið sér yfir landinu, og þótt kvöldblær sé á síðara er- VlNNAN OG VERKALÝÐURINN 15

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.