Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Síða 22

Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Síða 22
indinu, sem varðar sjálfan hann gamlan, er þar bjartsýni og þakkarhugur. Draumar hans og óska- skip handa þjóðinni eiga að sigla hvert haf og lenda síðan í feginshöfnum átthaganna. En daprari geta Ijóð hans verið: Á fjallstindi er fölnunarblærinn af fjarandi dagsljósi og komandi nótt, og skuggsjá þú skjálfandi særinn af skýlofti því, sem er haustnáttarótt, og innstreymu öldurnar þínar mér úrvinda fylgja sem vogrek í land. Hvort eru það útþrárnar mínar frá erindisleysu að hníga við sand? Orsökin er sú, þó að lágt fari, að hann saknar þess þjóðlífs sveitar sinnar, sem nú er að liverfa eða horfið. Inni fyrir er eitthvað klökkt og sárt, en kvæðið er haustnáttarótt eins og ský, sem speglast í skugg- sjá hafs, og fegurð einlægninnar er djúp. í hljóðri einlægni reynir hann að sjá fram í tímann í heimabyggðum sínum, og án gildrar ástæðu bregzt lionum ekki andartak bjartsýnin. í sama kvæði sem skáldið telur fjörðinn sinn eiga óeydda orku og hamingju þeirra skörunga, sem eru látnir og menn sakna, grípur hann þó undarlegur uggur með „fjarandi dagsljósi og komandi nótt“, og óvart leiðir hann hugann að „höggstokknum danska í landráðasveit“. Honum finnst líkast sem landráðamorðin í Skálholti eigi eftir að endurtakast, Jón Arason verði höggvinn oftar: Hvort er liún ei gengin sú ganga, svo göfug, en harmsamleg, fjörðurinn minn, sem gerði þín líkfylgdin langa í legreit til Hóla með biskupinn þinn? I sama kvæði sem skáldið telur fjörðinn sinn . . Þegar við hugleiðum, að hernaðarofstækið, sem Stefán yrkir um í Heimleiðis, Vígslóða og víðar, færist dag frá degi í auka og heimtar morð, getur enginn verið svo bjartsýnn, ekki einu sinni Stef- án, að íslandi verði jafnan hlíft. Við trúum á framtíðina. Við treystum því einn- ig, að þjóð okkar verði að því leyti rík, eins og með yfirlæti var sagt, „að hún eigi menn að missa / missa meiri og betri en aðrar þjóðir.“ En við viljum ekki missa þá. Við viljum ekki láta líflát Hólafeðga fyrri hervaldsböðli endurtakast. Til þess var Klettafjallaskáldið að vara okkur við helstefnu auðvaldsins eins og hann liafði kynnzt henni voðalegastri og vesturheimskastri. 16 SVERRIR KRISTJÁNSSON: Að áramótum Hugleiðingar um alheirnsmál Nú hefur 20. öldin runnið skeið sitt hálft. Ár- ið, sem er að líða hefur verið viðburðaríkast allra ára síðan heimsstyrjöldina síðari leið. Aldrei hafa átökin verið harðari, og á þessum áramótum á öldinni miðri spyrja menn skelkaðir, livort ný heimsstyrjöld sé í vændum og ótti grípur hugi manna við livert skref, sem heimssagan stígur. Hin breytta taflstaða Það mun ekki leika á tveim tungum, að þeir viðburðir, sem gerðust á síðara hluta árs 1949 í Asíu, stofnun hins kínverska alþýðuríkis, hafi breytt svo allri taflstöðu heimsstjórnmálanna, að síðan liafa menn orðið að endurskoða mat sitt á öllum högum og háttum alþjóðlegra samskipta. Fyrst í stað fór því þó fjarri, að menn hafi al- mennt gert sér grein fyrir þeim umskiptum, er urðu með sigri alþýðuhreyfingarinnar kínversku. Á Vesturlöndum og í Ameríku voru menn orðnir því svo vanir, að Kína og Austur-Asía væru póli- tísk tómarúm, án áhrifa á umheiminn, og litlu skipti, hvað gerðist á þeim slóðum. En viðburðir síðustu vikna munu hafa fært vestrænum mönn- um heim sarininn um það, að hér höfðu orðið aldaskipti. Þegar kínverskir herir stöðvuðu sókn bandarískra herja og bandarískra leppa í Kóreu, þá var það tákn þess, að Asía ætlaði ekki lengur að þola fulltrúum hins hvíta imperí- alisma að regsa og ráða að fornum hætti í heimahög- um hinna aust- rænu þjóða. Hin gömlu nýlendu- veldi Evrópu virð- VlNNAN OG .VERKALÝÐURINN

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.