Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Side 23
Vestrœnt heiðingjatrúboð i Asíu. (Úr Neues Deutschland.)
virðast þegar hafa skilið að nokkru hin pólitísku
aldaskil, sem kínverska byltingin hefur þegar
valdið. Bandaríkin hafa til þessa virzt nokkuð
treg til skilnings í þessit efni, en líklegt er, að
raunveruleiki hernaðarlegra og pólitískra við-
burða komandi vikna muni tendra þeim Ijós til
skilningsauka á ltinni breyttu taflstöðu heims-
veldanna.
Kalda stríðið að leiðarlokum
Allt frá þeiiTÍ stundu, er hinni síðari lteims-
styrjöld lauk, hafa Bandaríkin leitazt við að ein-
angra Ráðstjórnarríkin og hlaða múr á milli
þeirra og umlteimsins. Bandaríkin virðast hafa
ætlað sér þá dul að gera Ráðstjórnarríkin áhrifa-
laus á þróun lieimsmálanna eftir styrjöldina. Og
ekki nóg með það. Þau héldu, að {reirn mundi
takast að afstýra liinni pólitísku og félagslegu
þróun nútímans til sósíalisma í öllum löndum
utan endimarka Ráðstjórnarríkjanna. Allar fé-
lagslegar og pólitískar hreyfingar, sem vaknað
hafa eftir styrjaldarlokin, hvar sem var í heirnin-
um, urðu í hinum bandaríska áróðri að djöful-
legum vélabrögðum rússneska utanríkisráðuneyt-
isins. Bandarískir leiðtogar virðast alls ekki geta
skilið, að undirokaðar stéttir auðvaldsheimsins
og kúgaðar þjóðir liins gamla nýlenduheims fái
risið upp til að heimta frelsi sitt nema eftir vald-
boði frá Moskvu. Leiðtogum Bandaríkjanna virð-
ist vera varnaður allur skilningur á djúptækum
sögulegum fyrirbrigðum okkar tíma. Þeir skipa
því öllum frelsishreyfingum nútímans á bekk
með hinum pólitíska erfðafjanda sínum í Ráð-
stjórnarríkjunum, og á þann hátt hefur þeim tek-
izt að samfylkja gegn sér höfuðvígi sósíalismans,
Ráðstjórnarríkjunum og hverri einustu hreyf-
ingu, sem berst fyrir pólitísku og félagslegu frelsi
á jörðinni. Af þessu hefur einnig leitt það, að
Bandaríkin hafa orðið að svínfylkja öllu því aft-
urhaldi, sem upp verður grafið á jörðinni, jafnt
í nýlendum sem sjálfstæðum auðvaldsríkjum.
Hvergi ber liðsbón Bandaríkjanna árangur nema
meðal fulltrúa deyjandi og úrkynjaðra stétta. Sag-
an er alls staðar s*ú sama, á Spáni og á Grikk-
landi, í Kína og Japan.
I 5 ár hafa Bandaríkin háð sitt kalda stríð við
Ráðstjórnarríkin og öll Jaau öfl í öðrum lijndum,
er af sögulegri nauðsyn hafa háð baráttu sína til
að hrista af sér hlekki auðvaldsánauðarinnar.
Bandaríkin hafa komið sér upp fullkomnara og
þéttriðnai'a herstöðvakerfi en dæmi eru til um
nokkurt einstakt ríki í veraldarsögunni. Þetta
kerfi hringar sig eins og bandormur um Ráð-
stjórnarríkin. Þau hafa stofnað hernaðarbandalag
með ríkjurn Vestur-Evrópu, „Atlanzhafsbanda-
lagið“ og búið þessi ríki vopnum í svo stórum
stíl, að dæmalaúst er. Þessi vígbúnaður Vestur-
Evrópu hefur truflað allt atvinnukerfi bandalags-
ríkjanna og gert að engu allar vonir þeirra um
atvinnulega endurreisn. í faðmi hinnar banda-
rísku Marshallhjálpar hefur efnahagslegt líf
hinna vestrænu ríkja verið kæft, atvinnuleysið
Sjálfsblekking. — „Ekki verður kastað kjarnorkusprengju á
okkur, ópólitískt fólk.“ (Úr Neues Deutschland.)
VlNNAN OG VERKALÝÐURINN
17