Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Side 24
hefur fylg't Marshallhjálpinni eins og skugginn
eltir sól. Loks hafa Bandaríkin breytt Sameinuðu
þjóðunum í ósjálfstæða stjórnardeild bandaríska
utanríkisráðuneytisins og eru komin vel á veg
með að gera Sameinuðu þjóðirnar að sams konar
stofnun og Heilaga bandalagið var á 19. öld að
böðli og lögregluliða hins pólitíska afturhalds
gegn frelsishreyfingu þjóðanna. Þetta er í stuttu
máli árangurinn af 5 ára köldu stríði Banda-
ríkjanna gegn heimskommúnismanum. Fyrir
tæpum sex mánuðum kviknaði í tundurþræðin-
um, sem Bandaríkin höfðu lagt að púðurtunnun-
um. Borgarastyrjöldin í Kóreu varð Bandaríkj-
unurn kærkomið tilefni til að sýna hernaðarmátt
sinn á þeim slóðum, þar sem þau töldu að garð-
urinn væri lægstur. Síðan í júnílok hafa Banda-
ríkin háð styrjöld við Kóreumenn. Það ríkið,
sem mest hefur lagt til hernaðaxþarfa eftir styrj-
öldina og gleiðgosalegast talað um yfirburði
kjarnorkusprengju sinnar og hertækni, liefur nú
um hálfs árs skeið haft tækifæri til þess að sýna
bandamönnum sínum hvers það er megnugt í
styrjöld. Eg hygg að það sé ekki ofmælt, að sjald-
an hafi stórveldi farið slíkar hrakfarir gegn mátt-
arminni andstæðing en Bandaríkin í Kóreustyrj-
öld sinni. Bandaríkin hafa nú fengið smérþefinn
af því hvað það er að berjast við þjóð, sem heyir
baráttu fyrir frelsi sínu, þótt lítt sé búin vopnum.
Þegar hinar bandarísku sveitir flýja nú sem skjót-
ast suður Kóreuskaga, þá mættu leiðtogar Banda-
ríkjanna minnast þess, að „heita stríðið“ er ekki
eins auðvelt og hnökralaust og ætla mætti af orð-
um þeirra og ummælum hin síðari ár. Bandaríkin
hafa verið vanin við styrjaldarmöguleikann sem
sjálfsagðan hlut, styrjöldinni við „heimskommún-
ismann“ hefur verið lýst sem skemmtilegu, tækni-
legu ævintýri, þar sem hinar amerísku hetjur
þyrftu ekki annað en að þrýsta á hnapp, kasta
nokkrum kjarnorkusprengjum til þess að allur
„Sjáðu, mamma, hvað ég hef teiknað fallega dúfu.“ „Hamingj-
an hjálpi pér, drengur, eyðileggðu þelta strax og láttu engan
sjá þetta, svo þú verðir ekki tekinn fastur fyrir kommúnisma
(Úr Neues Deutschland.)
Alþýðnsambandsþing móÉ-
mælir afskiptum atvinnurek-
enda af innri málum verka-
lýðssamtakanna
22. Alþýðusambandsþingið samþykkti eftirfar-
andi tillögu, er borin var fram af Sigurði Guðna-
syni, formanni Dagsbrúnar, og mörgum öðrum:
„22. þing ASÍ mótmœlir harðlega liverskyns
afskiptum atvinnurekenda af innri málefnum
verkalýðssamtakanna, svo sem afskiptum af kosn-
ingum í verkalýðsfélögunum.
Sérstaklega fordœmir þingið tilraunir einstakra
atvinnurekenda og verkstjóra til þess að nota at-
vinnuleg völd sín til að hafa áhrif á atkvœða-
greiðslur verkafólks, m. a. með stofnun pólitískra
félaga innan samtakanna i þeim tilgangi að
tryggja ákveðnum hópi sambandsmeðlima at-
vinnuleg sérréttindi.
Þingið skorar á öll verkalýðsfélög að vera vel á
verði gegn öllum tilraunum í þessa átt og standa
saman sem einn maður um þá meðlimi samtak-
anna, sem kunna að verða beittir atvinnu- og
skoðanakúgun af hálfu atvinnurekenda eða full-
trúa þeirra.“
heimurinn félli þeim til fóta. Kóreustyrjöldin ætti
að hafa fært Bandaríkjunum sanninn um það, að
leiðin frá landsenda Kóreu til Jarlúfljóts, er æði
löng amerískum her, þótt vélbúinn sé, en þó er
leiðin lengri til amerískra heimsvalda.
Hvað er framundan?
Síðustu viðburðir Kóreustyrjaldarinnar hafa í
fyrsta skipti skapað nokkurn glundroða í herbúð-
um þeirrar samfylkingar, sem Bandaríkin hafa
skapað, síðan þau hófu sitt kalda stríð fyrir 5 ár-
um. Máttugasti bandamaður Bandaríkjanna,
Bretaveldi, hefur hina síðustu daga látið í 1 jós
nokkurn ugg og ótta yfir því, hvað verða mundi,
ef Bandaríkin binda meginþorra herafla síns í
slíku útnesi sem Kóreu eða flæki sér í vonlausa
styrjökl við Kína. Vígreifustu menn Bretlands,
svo sem Churchill, vara Bandaríkin við þeirri
liættu, að Asíustyrjöld mundi gera Vestur-Evrópu
berskjaldaða, ef svo skyldi takast, að Rússar lentu
í styrjöld vegna skuldbindinga sinna við Kína.
Það er von að Bretar óttist þessa hættu. En það
er einnig von mannkynsins, sem þráir frið, að þær
þjóðir, sem hafá glæpzt til að bindast Bandaríkj-
unum hernaðarbandalagi, sjái að sér í tíma og
18
VlNNAN OG VERKALÝÐURINN