Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Page 26

Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Page 26
Sitt af hver Ju Jósef Krips, stjórnanda filharmónisku hljómsveitarinnar í Vín, var synjað um dval- arleyfi af amerískum yfirvöldum er hann kom til New York s.l. sumar og varð að snúa við til Evrópu aftur. En honum hafði verið boðið af amerískum listbræðrum að stjórna Sinfoníuhljómsveit Chicago-borgar. Yfirlýsing hans um það að hann tilheyrði engum stjórnmálaflokki og að hann væri að- eins listamaður var ekki tekin til greina. * Einn af mörgum góðum eiginleikum bý- flugunnar er hreinlæti. Hún þolir ekki nein minnstu óhreinindi í húsakynnum sfnum. Fyrir kemur að snígill villist inn í býkúp- una og staðnæmist þar. Þá ráðast býflug- urnar strax á þennan óhrjálega og óvel- komna gest og drepa hann með broddi sín- um. En af því að snígillinn er alltof stór til þess að flugumar geti komið lionum út og þær vita að hann muni rotna og eitra fyrir þeim andrúmsloftið, þá taka þær sig til og þekja hann með vaxi sínu. Og þar fær hann svo að liggja balsameraður upp frá því. * Fyrir 96 áruin boðaði kaþólska kirkjan trúarsetninguna um hreinleikafrjóvgun jóm- frú Maríu. Nú hefur páfinn boðað nýja trú- arsetningu um líkamlega himnaför jómfrú- arinnar strax eftir dauðann. Páfinn lét fara fram atkvæðagreiðslu meðal kaþólska bisk- upa um þetta mikilvæga atriði og var himna- förin samþykkt með miklum atkvæðamun. Það getur verið býsna þægilegt að ákveða þannig „sögulegar staðreyndir‘“ með at- kvæðagreiðslu. * Það eru sjálfsagt ekki margir sem hafa hugsað út í það hvemig kóngulóin fer að Steinþór Guðmundsson sextugur 1. desember s.l. varð Steinþór Guðmunds- son kennari sextugur.. Steinþór er einn af fyrstu og atkvæðamestu brauðtryðjendum sósíaliskra lífsskoðana hér á landi. Hann hefur frá fyrstu jafnan staðið í fremstu víg- línu í baráttunni og verður eigi enn séð, að baráttuþrek hans og frábærir eiginleikar í starfi hafi látið á sjá. Þessum ágætismanni eiga íslenzk verkalýðssamtök upp að unna meira en reynt verður að lýsa hér. Megi þau njóta atgervis hans og mannkosta sem allra lengst. þvi að spinna net sitt milli tveggja trjáa, þegar lækur er á milli, sem hún kemst ekki yfir. Þá hagar hún sér eins og reyndur eðlis- fræðingur og af slíkri þolinmæði að margir gætu öfundað hana af. Hún spinnur þráð, ekki einfaldan eins og venjulega, heldur tvö- faldan, festir annan enda hans í tréð, sem hún er í, lætur hinn lafa og bíður þess að hjálpsamur vindgustur feiki honum yfir í hitt tréð svo að hann festist þar. Þegar þetta hefur gerzt, skundar hún eftir þræð- inum yfir í tréð hinumegin og festir hann þar betur í mátulegri hæð. Síðan tekur hún til við að vefa net sitt. * Um miðjan nóvember bárust fréttir frá Canberra af verkfalli 26.000 hafnarverka- manna og stöðvun á afgreiðslu 2000 skipa af völdum þess. Skýrt er ennfremur frá því, að flutningaverkamenn hafi gripið til samúðaraðgerða með miklum árangri, eink- um í Suður-Ástralíu. 20 VlNNAN OG VERKALÝÐURINN

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.