Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Side 29
'i
V
HEIMAN
Frá friSarhreyfingunni
Kína: 13. nóv. s.l. höfðu yfir 223.5 milljónir
manna undirirtað Stokkhólmsávarpið eða
nálægt 47% íbúanna.
Italía: 10. nóv. s.l. höfðu undirritað Stokk-
hólmsávarpið 10.884.787 manns.
Japan: 19. nóv. s.l. höfðu 6 milljónir manna
undirritað Stokkhólmsávarpið.
Viet-nam: í októberlok höfðu 3.871.298 und-
irritað Stokkhólmsávarpið.
Burma: Þar hófust undirskriftir fyrst um
miðjan júní og höfðu um miðjan sept-
ember fyllt 3 milljónir.
England: 9. nóv. s.l. höfðu 1.175.475 manns
skrifað undir Stokkhólmsávarpið.
Austurríki: 19. nóv. s.l. hafði verið safnað
946.813 undirskriftum. Það þýðir að
þriðji hver kosningabær maður í land-
inu hefur þegar undirritað ávarpið.
Finnland: 18. nóv. s.l. höfðu 950.150 manns
undirritað ávarpið.
SvíþjóS: 9. nóv. s.l. hafði verið safnað
268.079 undirskriftum.
Sviss: 1. nóv. höfðu safnazt 250.000 undir-
skriftir.
*
Fyrri helming þessa árs hefur tala inn-
flytjenda til Ástralíu verið 91.000 manns.
Er það miklu meira en dæmi eru til áður.
JAMES CAREY
einn af aSal hvatamönnum aS klofningi al-
þjóSasamtaka verkalýðsins. Hann lýsti því
yfir nýléga, aS hann vildi heldur samstarf
viS fasista en þá róttæku í verkalýSssamtök-
unum.
Klæðskerar í New York héldu nýlega
fund, þar sem mættir voru 1500 manns.
Fundurinn sendi til höfuðstöðva Sameinuðu
þjóðanna í Lake Success bréf, þar sem kraf-
ist var friðsamlegrar lausnar Kóreudeil-
unnar.
*
Tillaga Jakobs Malik, fulltrúa Ráðstjórn-
arríkjanna um friðsamlega lausn Kóreudeil-
unnar var feld með 6 atkv. er höfðu á bak
við sig 252 milljónir manna. Með tillögu
Maliks greiddu atkvæði 3 fulltrúar í öryggis-
ráðinu með 568.500.000 manna á bak við
sig. Með Kínveldi, sem var útilokað frá
þátttöku í örygigsráðinu, hefðu staðið á bak
við tillögu fulltrúa Ráðstjómarríkjanna
1043 milljónir manna.
*
„Eg þekki áhuga amerískra stjórnarvalda
fyrir velferð barna. 40 þús. börn eru sett þar
í fangelsi á ári hverju. 011 hjál'parstarfsemi
stendur ráðþrota gagnvart afbrotum þeirra,
því að vandamálið er ekki börnin sjálf,
heldur atvinnuleysi, húsnæðisvandræði,
yfirfullir skólar og siðspillandi blöð og kvik-
myndir. (Herbert Lass form. hjálparstofn-
unarinnar C. A. R. E.)
*
Aðalritari grísku sjómannasamtakanna,
Kalutis, hefur verið tekinn fastur af ame-
rískum yfirvöldum og verður afhentur grísk-
um yfirvöldum, sakaður um „landráð". —
Hinir grísku útgerðarmenn vinna að því í
nánu samstarfi við amerísk yfirvöl,d að
semja svarta lista yfir stéttvísa sjómenn.
*
Árið í ár er heilagt í Róm og fjöldi rétt-
trúaðra hefur streymt þangað úr öllum átt-
um. Austurrísk fjölskylda, sem farið hefur
hvorki meira né minna en 16 pílagrímsferð-
ir til borgarinnar á árinu, hefur verið tekin
föst og ákærð fyrir smygl á sígarettukveikj-
urum, að upphæð 130 þús. krónur. Fjöl-
skyldan, Josep Hold, kona hans og sonur,
virðist hafa verið trúuð á fleira heldur en
óskeikulleika hins heilaga föðurs í Róm.
*
32 ára sjómaður, Lloyd Hill, hefur ákveð-
ið að fara niður Niagarafossinn í tunnu.
Fimm ofurhugar hafa freistað þess á undan
honum og þrír þeirra látið lífið. Síðasta til-
raunin var gerð 1930 af Georg Stathakis.
Tunna hans fór boðleið rétta niður fossinn
til botns og skilaði svo innihaldinu upp á yf-
irborðið dauðu.
*
Fimm af átta frönskum fjallgöngugörp-
um er höfðu ætlað sér að klýfa tinda Him-
alaya-fjalla, komu með flugvél til Parísar
frá Saigon í aprílmánuði s.l. Foringi leið-
angursins, Maurice Herzog, var borinn úr
flugvélinni í börum, þar eð hann hafði kal-
ið mjög á fótum og höndum. Fleiri leiðang-
ursmenn voru með kalsár. — Þetta var hin
mesta svaðilför. Eftir vikuerfiði og mann-
raunir varð leiðangurinn að hætta við að
klífa 8050 m. hátt fjalllendi, Dalanghari-
tind. Hins vegar tókst leiðangrinum með
óstjórnlegu erfiði að klýfa svonefndan Ana-
pume-tiiid í 8950 m. hæð. Eftir 6 vikna
hrakninga um torsóttar vegleysur, með hina
kalsáru menn á hestum í eftirdragi tókst
leiðangursmönnum að ná til landamæra
Nepal og Indlands. Þrír leiðangursmanna
urðu eftir í Indlandi til hressingar.
*
Sænskur útvarpsnotandi hefur farið fram
á helmings afslátt afgjalds síns vegna heyrn-
arleysis á öðru eyranu.
VlNNAN OG VERKALÝÐURINN
23