Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Síða 37
Nýsköpunartogarinn Bjarni Ólafsson
in skal uppstillingarnefnd félagsstjórnar og er þá
samstundis dreift um salinn hundruðum seðla
með fjölrituðum nöfnum þeirra á sem stjórnin
vildi láta kjósa. Ef um fleiri uppástungur yrði að
ræða skyldu þær skrifaðar fyrir neðan og strikað
út það sem breytingunum svaraði. Þessu mót-
mæltu sjómenn og kröfðust listakosningar þar eð
aðstaða til að skrifa fyrir þá sem óskuðu breyt-
inga, væri með öllu ófær. Og þegar þeir sjá að
kröfur þeirra um jafnrétti í kosningunni eru
hundsaðar og þessi fjölmenni landher hafði verið
kvaddur á vettvang til að bera sjómenn ofurliði
í eigin félagi þeirra, ganga þeir af fundi í mót-
mælaskyni, allflestir.
Framhald fundarins er eftir þessu. — Land-
menn gera sig heimakomna, setja af nefnd er
togarasjómenn höfðu sjálfir kosið úr eigin hópi á
síðasta félagsfundi og kjósa aðra nefnd til samn-
ingaumleitana með félagsstjórn, eftir geðþótta
hennar.
6. nóvember er borin fram þriðja miðlunartil-
lagan, og felst í henni sú meginbreyting frá þeim
fyrri að í stað ákvæðisins um mat aflans upp úr
skipi á saltveiðum og verðflokkun frá 5 kr. pr.
tonn af 1. flokki og þaðan niður í 4.00 kr. á
þorski og löngu og kr. 2.50 af 1. fl. ufsa niður í
kr. 2.25 af II. og III. fl. var nú komið ákvæði um
kr. 4.75 á tonn af fiski upp og ofan úr skipi. Enn
er ófullnægt kröfunni um 12 st. hvíld á ísfisk-
veiðum yfirleitt, enn voru hin óhagstæðu ákvæði
um flokkun lýsis, launakjör að öðru leyti einkum
þó á saltfiskveiðum mjög óliagstæð o. s. frv.
Stóðu nú orðið mörg járn á togarasjómönnum.
mannafélags Reykjavíkur eindregið með
því að hún verði samþykkt.
Utan Reykjavíkur hefur það borið til
tíðinda að stjórn Sjómannafélags Reykja-
víkur hefur með aðstoð fulltrúa sinna á
Akranesi fengið því til leiðar kornið að
sjómenn þar hafa fallizt á þetta óhag-
stæða sáttatilboð og láta skrá sig á veiðar
á b.v. Bjarna Ólafsson. — Þar með hefur
stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur raun-
verulega skipulagt verkfallsbrot á sjálfa
sig. , ‘
Um svipað leyti lýsa sjómenn og út-
gerðarmenn í Neskaupstað sig fúsa til að
semja upp á 12 stunda hvíldina á öllum
veiðum og vitna í því sambandi í fengna
reynslu á Bjarnareyjarveiðum. Á Akur-
eyri og í Neskaupstað er leitazt við að fá
að semja heima, en það strandar á F. I.
B., sem heldur samningunum í sínum höndum í
Reykjavík.
Afdrif þessarar miðlunartillögu verða þau að
hún er felld með yfirgnæfandi meirihluta víðast
hvar. í Keflavík tekst þó að fá hana samþykkta, —
og í Vestmannaeyjum er hún úrskurðuð af sátta-
nefnd sem samþykkt þótt sjómenn hafi fellt hana
með eins atkvæðis meirihluta. Þegar hér er komið
hafa bætzt tveir stórútgerðarmenn í sáttanefnd-
ina, þeir Ólafur Thors og Emil Jónsson. Er nú
liðið hátt á fjórða mánuð í verkfalli.
Fundurinn í listamctnnaskálanum
Má nú heita kyrrt um hríð, en sjáanlega mikill
viðbúnaður í herbúðum andstæðinga sjómanna.
Mátti það marka af mannaferð og öðru tilstandi
þessa daga í kringum bækistöðvar stjórnar sjó-
mannafélags Reykjavíkur og samkomuhúsið Hol-
stein í Thorvaldsensstræti.
Hjá stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur liggja
enn áskoranir frá togarasjómönnum um fund til
að ræða kjaramálin og viðhorfin í deilunni. — 1.
nóvember þykist stjórn S. R. búin undir það að
halda fund, — og hafði þá dagana áður látið bera
út bréf til hundraða landmanna úr ýmsum stétt-
um þar sem þeir voru eggjaðir lögeggjan að
mæta á fundinum til að berjast gegn „komrnún-
istum“. Þessi sjómannafélagsfundur sem land-
menn voru boðaðir til á svona sérkennilegan hátt
mitt í harðvítugri hagsmunabaráttu milli sjó-
manna og útgerðarmanna hlaut að verða eitthvað
sögulegur, enda brást það ekki. — Að fyrirlagi fé-
lagsstjómar hefst starf fundarins með því að kos-
31
VlNNAN OG VERKALÝÐURINN