Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Síða 38

Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Síða 38
S V Á SI SVALDAL: Haustljóð Syrtir að nótt yjir sollnum mari. JJppi eru segl á sumarfari. Hnigin eru blómstur og himinsól. Sópar kaldur gustur vor sumarból. Brott eru fuglar í fegri lönd. Háar stríða bylgjur á hamraströnd. Hœrra rís þó sorg af hjarta míns grunni. Siglir hún í nótt er í sumar ég unni. V____________________________________________/ — Verkfall þeirra hafði staðið eina viku á fimmta mánuðinn, — og vitað var að hetjur hafsins höfðu ekki getað safnað miklum forða fjár né vista þrátt fyrir langan vinnudag á togurunum undanfarin ár. — Öll daghlöð höfuðstaðarins nema Þjóðvilj- inn höfðu allan tímann unnið gegn málstað sjó- manna. Forysta Sjómannafélags Reykjavíkur hafði verið frá upphafi andhverf sjómönnum og löngu komin opinberlega í lið með útgerðar- mönnum. Þeir er kjörnir voru á landmannafund- inum í Listamannaskálanum til samningaumleit- ana með félagsstjórn höfðu undirritað með henni sáttatilboðið. Akranes fyrst og Keflavík síðar höfðu látið blekkjast til að fallast á miðlunartil- lögu sáttanefndar og Vestmannaeyjar verið kúg- aðar með úrskurði úr leik, Fyrir eindæma fólsku- verk stjórnar Sjómannafélags Reykjavíkur höfðu sjómenn verið gerðir útlagar í sínu eigin stéttar- félagi þegar þeir þurftu mest á félagi sínu að halda. Hér dró því að leikslokum. Enda þótt miðlunartillagan væri að forminu samþykkt með litlum meiri hluta var það á allra vitorði að þar með voru sjómenn ekki að tjá kjörum þeim er í boði voru jákvæði sitt. í 32 Reykjavík voru t. d. 277 já gegn 143 neium, í Hafnarfirði 81 já gegn 53 neinm. A Siglufirði og Neskaupstað var það fellt. „Með svona forystu og slíkar innanfélagsaðstæður sem fundurinn í Listamannaskálanum leiddi í ljós sáum viðokkur til neydda að láta staðar numið að þessu sinni, þótt kjörin séu með öllu óviðunanleg,“ voru yfir- leitt tilsvör sjómanna er greitt höfðu síðasta sátta- tilboðinu jákvæði. Þannig lyktaði þessari merkilegu sjómanna- deilu, en helztu atriði lrinna nýju samninga eru þessi: 12 stunda hvíld á sólarhring á öllum botn- vörpuveiðum, þegar ekki er siglt með afla til út- landa. M. ö. o. 12 st. hvíld á öllum veiðum nema á venjulegum ísfiskveiðum. Á ísfiskveiðum hafa hásetar 17% af söluverði afla þegar 20% hafa verið dregin frá í löndunar- kostnað o. fl. eða hver maður 0.55% af söluverði upp að 8000 £ sölu, en af því sem fram yfir yrði 85%, skipt í 30 staði. Á saltliskveiðum kr. 4.75 á tonn, eins og fyrr er sagt, pr. mann. Hver maður skal hafa 40 kr. á tonn af 1. og 2. flokks lýsi, en 10 kr. á tonn af 3. og 4. flokks lýsi. Á karfaveiðum og öðrum veiðum til mjöl- vinnslu fær hver maður 2,25 á tonn. Fastakaup er óbreytt eða kr. 1050 í grunn. * Sjómenn eiga aS ráða í sjómannafélagi Verkfall þetta er að mörgu leyti athyglisvert. — Hér var háð eitt af lengstu verkföllum í sögu landsins í einni þýðingarmestu starfsgrein þess. í 3—4 mánuði stendur þetta verkfall án þess að útgerðarauðvaldið sýni hinn minnsta vott óþolinmæði. I.oks er það tvennt enn sem gerir þessa deilu minnistæða: Það er hinn eindæma ræf- ildómur og ótrúmennska stjórnar Sjómannafélags Reykjavíkur annars vegar og afbnrða þrautseigja og samheldni sjómanna Ixins vegar. Hið langa verkfall án minnstu geðbrigða í her- búðum útgerðarauðvaldsins verður ekki einvörð- ungu skýrt þann veg, að fyrir togurunum hali það legið hvort eð var að leggjast inn í sund yfir sum- armánuðina, vegna markaðsvandræðanna, því vit- að er að nokkur hópur skipa gekk á karfaveiðar í allt sumar eins og fyrr er að vikið og útgerðar- menn við Faxafhxa og víðar buðu í stað verkfalls- ins karfaveiðisamninga upp á sömu kjör og giltu á Akureyri og í Neskaupstað eða meira en helm- ingi betri kjör en þau sem horfið var frá á salt- fiskveiðunum í vor. — Hér átti því stjórn Sjó- mannfél. Reykjavíkur að velja milli verkfalls á VlNNAN OG VERKALÝÐURINN

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.