Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Síða 49
Bréf frá finnskri telpu
„Mér finnst að stríð sé heimskulegt, vegna
þess að það deyja svo margir í því, sem ekki
vilja strfð.
Pabbi minn féll 1939. Ég fékk aldrei að
sjá hann nema á mynd. En ég er viss um að
hann vildi ekki stríð.
Ég veit líka hve margt fallegt, sem menn-
irnir hafa húið til, eyðileggst í stríði. Og ég
veit líka hve margir eru svangir á stríðs-
tímum og mörg ár á eftir, vegna þess að
elcki er til nógur matur.
Það eru mörg börn, sem eiga engan pabba
og spyrja oft: hvar er pabbi minn, því önn-
ur böm eiga pabba. 011 börn vilja eiga sinn
pabba.
Það eru margir fleiri hræðilegir hlutir,
sem fylgja stríðinu og þess vegna er ég á
móti stríði. Ég hugsa oft um það hvað allt
er gott þegar friður er. En núna er stríð í
Kóreu, sem ég hef lesið um. Þar eru nú
mörg börn, sem eiga ekkert heimili og pabbi
þeirra kemur aldrei aftur heim. Fólkið þar
vill ábyggilega ekki stríð, það vill ábyggi-
lega heldur lifa í friði, læra, vinna og hugsa
um sitt. Það er erfitt að hugsa sér að nokk-
ur maður skuli vilja stríð.
Það er líka skrýtið, að fá þetta svar: Ut
með þig, vertu ekki að ónáða okkur, þegar
maður er að safna undirskriftum undir
Stokkhólmsávarpið. Það ættu allir að vinna
fyrir friðinn.
ANNE LI PARVIAINEN, 11 ára.“
(Lauslega þýtt úr sænsku).
Þar næst er matarlímið, sem leyst er í 54
pela af heitu vatni, helt út í, • hrært vel í á
meðan. — Látið í glerskál, skreytt með
þeyttum rjóma.
Síldarsalat
Smjör og hveiti er látið bakast upp í
potti, þynnist hæfilega með kjötsoði og
rauðrófulög. Sósan er tekin af eldinum. I
Fjölleikahúsið i Moskva, höfuðborg
Ráðstjórnarríkjanna, stendur ná-
Ircgt miðborginni og er hið mesta
eftirlceti borgarbúa. A helgum eru
haldnar þar sérstakar sýningar fyr-
ir börnin. — Myndin sýnir stúlku,
sem er dýratemjari, leika sér við
Ijón.
hana er látið sinnep, salt, pipar, lítill rifinn
laukur, 2 epli, 1 síld og jafnt af hverju:
kjöti, asíum, soðnum kartöflum, rauðrófum;
allt skorið niður í litla ferhyrnda bita.
Hrært varlega saman við sósuna. Ávaxtalit-
ur eftir þörfum. — AS síðustu er salatið
skreytt með harðsoðnum eggjum og látið
standa 2—3 klst. áður en þess er neytt. •—
Borðað með smurðu brauði.
Smælki
Meðal skemmtiatriða í fjölleikahúsi í
Texasborg í Bandaríkjunum s.l. sumar var
einn gríðarstór shimpansi er sýndi listir
sínar á reiðhjóli. Meðal ánægðra áhorfenda
var kona, sem gaf gleði sinni útrás með
skellihlátri. En apinn sem hefur tekið hlut-
verk sitt mjög alvarlega brást reiður við og
kastaði reiðhjólinu í höfuð hinnar hlátur-
mildu konu. Ekki er þess getið hversu kon-
unni varð við en hún fékk 300 dollara skaða-
bætur.
• *
— Pabbi, segir guð þér alltaf, hvað þú
átt að skrifa í prédikunina?
— Já, barnið mitt, það gerir hann.
— Af hverju ertu þá alltaf að nota strok-
leðrið?
*
Ungur maður sem átti laglega en nokkuð
lausláta unnustu, skrifaði einum keppinauta
sinna svohljóðandi bréf:
„Með því að ég hef fengið vissu fyrir því,
að þér hafið kysst unnustu mína á ónefndum
stað nú fyrir skömmu, þá skora ég á yður
að koma á skrifstofu mína næsta fimmtu-
dag kl. 10, svo að við getum gert út um
málið.“
Hann fékk svohljóðandi svar:
„Ég undirritaður, sem hef fengið eitt ein-
tak af dreifibréfi yðar, leyfi mér að tilkynna
yður, að mér er sönn ánægja að mæta á hin-
um auglýsta fjöldafundi."
(ívo-^j
Einu sinni voru tveir drengir svo felldi Gummi turninn fyr- og þá var úti friðurinn
sem léku sér — ir Sigga —
VlNNAN OG VERKALÝÐURINN
43