Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Síða 53
ÞORSTEINN FINNBJARNARSON:
Esperantonámskeið fyrir byrjendur
| j| £ • ii
Arni Böðvarsson, sem þekktur er af hin-
u,m ágœtu esperanto-námskeiðum í „Vinn-
unni“, hefur ekki séð sér fært að annast
þetta námskeið lengur, og hefur VINNAN
OG VERKALÝÐURINN fengið Þorstein
Finnbjarnarson gullsmið til að annast það,
vel fceran esperantista og áhugasaman verk-
lýðssinna. Jafnframt er í ráði að birta öðru
hvoru í þessum dálki ýmiskonar lesmál á
esperanto — svo sem fróðleiksmola varðandi
esperantistahreyfinguna o. fl. — Ritstj.
Orðasafn
bon-a góður
ec jafnvel
edz-o eiginmaður
gazet-o blað (til
að lesa)
gi það
ili þeir
ilia þeirra
jes ja
kutim-e vanalega
nom-o nafn
nov-a nýr
nur aðeins
tre mj ög
voc-o rödd
Lausn 1. verkefnis
a) Li laboras en la domo. Kie estas
la urbo? La urbo estas tie. Mal-
granda filo kaj granda patro. La mal-
granda filino ankau estas en la
granda domo. Kiu estas tie? Li ne
estas tie. La filo laboras hejme.
b) Faðir og sonur. Móðir og dótt-
ir. Faðirinn vinnur, og móðirin vinn-
ur líka. Faðirinn vinnur í borginni.
Hvar vinnur sonurinn? Hann vinnur
líka í borginni. Hvar vinnur móðirin ?
Hún vinnur í heimilinu. Hvar er hús-
ið? Húsið er þarna. Hver er í húsinu?
Móðirin er í húsinu. Þetta hús er
þarna. Þessi sonur er ekki í húsinu.
Húsið er við götuna í stóru borginni.
Litla dóttirin er í stóra húsinu. Þarna
vinnur móðirin. Hún vinnur heima.
2. leskaíli
Infano nur estas malgranda homo,
jes, gi ec estas malgrandega. Cu in-
fanoj estas bonaj ? Jes, ili estas bon-
egaj. La laboristo laboras en la mal-
nova domo. Cu la infanoj laboras?
Ne, ili kutime ne laboras. La infanoj
de la laboristoj estas bonaj infanoj.
La edzino de la laboristo estas patrino.
Cu si estas nur kutima patrino? Jes,
kaj si ankau estas tre bona patrino. Li
estas bona patro. La urboj de Islando
nur estas tre malgrandaj. Voco de Is-
lando estas nomo de gazeto.
Málfræði
Viðskeytið ist táknar þann, sem hef-
ur að atvinnu það, sem stofn sagnar-
innar segir: labor-ist-o verkamaður, af
labori að vinna, kant-ist-in-o söng-
kona, af kant-i að syngja (kant-ist-o
söngmaður, in kvenkynsending, sbr.
síðasta r.ámskeið). •— Viðsk. eg tákn-
ar aukningu og viðsk. et smækkun:
bel-eg-a forkunnar fagur, bel-et-a snot-
ur, af bel-a fallegur. — Þegar smá-
orðinu cu er bætt framan við orða-
samband, verður það spyrjandi: Cu
li estas laboristo? Er hann verkamað-
ur? Sbr. Li estas laboristo = Hann er
verkamaður. Athugið vel, að orða-
röðin ræður engu um það í esperanto,
hvort orðasambandið eða setningin er
spyrjandi, heldur verður alltaf að nota
eitthvert spurnarorð (t. d. kie, hvar,
eða kiu, hver, þegar þau eiga við), og
þá er cu algengast. — Fleirtala mynd-
ats með -j aftan við eintöluorðsmynd-
ina: infano, barn, infanoj börn, bonaj
infanoj góð börn. — Forsetningin de
táknar eignarfall (eiganda): edzino
de la laboristo kona verkamannsins,
nomo de homo nafn manns.
Framburður
Gætið vel áherzlunnar á næstsíðasta
atkvæði! — Hljóðið g er borið fram
líkt og j í ensku, c svipað ensku ch
(eða ísl. tsj), z er raddað s og ] radd-
að s. Nánari skýring þessara hljóða
verður gefin síðar.
2. verkefni
a) Þýðið skriflega á íslenzku esper-
antokaflann hér að ofan.
b) Þýðið skriflega á esperanto:
Hvar er litla barnið kennarans? Það
er í nýja húsinu ásamt (kun) börnum
verkamannsins. Stóra konan litla
kennarans er ágæt eiginkona. Gamli
kennarinn er faðir hans.
í blöðum borgaranna er stundum sagt frá
flótta frá Austur-Þýzkalandi, þar sem alþýð-
an ræður nú ríkjum, yfir í „frelsið" í Vest-
ur-Þýzkalandi, þar sem auðvaldsskipulagið
er enn við líði. — Vitað er að sögur þessar
hafa lítið sannleiksgildi og sagðar hér í
vestrinu í ákveðnum tilgangi. Hinsvegar er
sú staðreynd látin liggja í þagnargildi, að
mjög færist nú í vöxt flótti manna frá Vest-
ur-Þýzkalandi til Austur-Þýzkalands. Hér
á ekki aðeins verkafólk hlut að máli, held-
ur einnig fólk úr ýmsum starfsstéttum. —
Nýlega gekk t. d. lögregluþjónn frá Vestur-
Berlín, að nafni Walter Maticeh, yfir í lög-
reglu alþýðuríkisins í Austur-Berlín. Ilann
skýrði svo frá, að hann hefði verið í lögregl-
unni síðan 1946, en eftir að hlutverk hennar
hefði verið breytt úr því að vera til verndar
almenningi, í það að ofsækja friðarvini og
vera á hælum þeim er keyptu vörur í Aust-
ur-Berlín, hefði hann fengið óbeit á starf-
inu. Hann kvað fjölda lögreglumanna hlýða
því nauðugir að handtaka friðarvini og ráð-
ast á atvinnuleysingja, og þá helzt af ótta
við að lenda í tölu hinna 400.000 atvinnu-
leysingja í vesturhlutanum. ■— Samtímis
gekk og úr þjónustu lögreglunnar í Vestur-
Berlín lögregluskrifarinn Breitman. Hann
hafði búið í austurhlutanum og skýrði þessa
ákvörðun sína á þann veg, að honum hafi
gefizt kostur á að fylgjast með þróuninni í
báðum hlutum borgarinnar og því veitzt
létt að velja þar á milli.
*
Skipshöfnin á gufuskipinu „Omeros“,
þar sem talsverður hópur fyrrverandi skæru-
liða, grískra og spænskra, var saman kom-
inn, gerði nýlega verkfall í Kiel til að
spyrna gegn 30% launalækkun. Skipsút-
gerðin hótaði að refsa verkfallsmönnum,
m. a. með því að framselja hina grísku sjó-
menn grískum stjómarvöldum. Þýzkir sjó-
menn lýstu því yfir, að þeir myndu svara
með samúðaraðgerðum, ef á þyrfti að halda,
til að hindra framsal grískra stéttarbræðra.
VlNNAN OG VERKALÝÐURINN
47
i