Vinnan og verkalýðurinn - 01.05.1955, Qupperneq 22
Verkfallið á ísafirði 1926
Mjölnir skreekir, margir kurra
munu ef kaupið lœkkar svo,
á hann að scekja þorskinn þurra
þurra i kampaniið, sko?
Vilji þið piltar vinna af kappi
verður króna goldin hér,
sinna ef vilt ei svona happi
sjáðu hvort að betur fer.
Sumir þarna vildu vinna
vagninn hlóðu i skorpunni:
„Þó ég fengi miklu minna
mér er þörf á vinnunni."
Að sér vindur Valdi og fleiri,
vagninn hrökk af teinunum,
sá var flokkur miklu meiri
móður svall í beinunum.
Hlaut að stöðvast vitlaus vinna
vildi enginn fara í slag.
Verkstjórarnir vœrðum sinna:
„við skulum reyna næsta dag."
Hann upp rann srvo hýr og bliður
hölda vakti kaupdeilan,
sást þar margur sveinninn fríður,
sýsli og varalögreglan.
Nú var ei um gott að gera
gagnnvart fögru hnöppunum,
reyna sig þó bezt að bera
og báðum standa á löppunum.
Eykur ragnið „almáttugur"
opnar sagna skoruna:
sýnum gagn ei sviki dagur
settu i vagninn boruna.
Farirðu ei höldur frá án tafa,
fœrðu gjöld i steininum.
Oddur völdin hélt sig hafa
hjó á skjöldinn fleininum.
VERKFALLSRIMA
Hér fer á eftir verkfallsríma frá árinu
1926. Efni henhar er kaupdeila á ísafirði í
febrúar það ár. Atvinnurekendur vildu
lækka tímakaupið að mun frá því árið
áður eða um 20—30 aura um tímann.
Mjölnir, sem minnst er á, er fisktökuskip,
sem ekki fékkst afgreitt vegna deilunnar.
Syre er norskur beljaki, sem bæjarfógetinn
hefir fengið í aðstoðarlögreglu sína gegn
verkfallsmönnum. Finnur, sem um getur
í rímunni, er Finnur Jónsson ,síðar alþing-
Farðu Syre að fleina þingum
fjendur rýra sláðu i hel,
hann sér snýr að her óringum
hugði nýr að duga vel.
Siggi þrútinn hljóp til happa
hussins út með grundunum,
œtlaði að stúta efldum kappa
undir grútar tunnunum.
Nálgast sýsla nauðir trylltar,
norðmann felldi Bjarnason:
„Meiddi hann ekki manninn piltar?
Mér er þrotin bjargar von."
Frcegur undir offiséri
einga stundu hefir bið
likur hundi heim þá sneri
sem horn er bundið rófu við.
Oddur dvelur ekki lengur
unnið vel sem hefir þar,
fyrtur heli heim sá gengur
hjartað fela buxurnar.
Kreppa í lófa karlar putann,
konur verka fylkja sér,
Mjölnir fór með fjórða hlutann
fisks, ei leizt að biða hér.
60
VINNAN og verkalýðurinn