Vinnan og verkalýðurinn - 01.05.1955, Side 43
Fylkingar hans voru enn samein-
aðri, enn stæltari í verkfallslok en í
byrjun þess.
Um 3000 manns tóku þátt í þeim
fundum verklýðsfélaganna þar sem
samningarnir voru samþykktir. Af
öllum þessum mikla fjölda greiddu
langt innan við 100 manns atkvæði
gegn samningunum, fyrst og fremst
menn, sem í eldi baráttunnar hefðu
talið rétt að halda verkfallinu áfram.
í ýmsum félögum voru samningarn-
ir samþykktir samhljóða. —
Lærdómar þessa mesta verkfalls
íslenzkra verkamanna og verka-
kvennakvenna eru miklir og marg-
víslegir og þarfnast vandlegrar at-
hugunar. Hér verður látið nægja í
biii, að minna á nokkur atriði.
í þessu verkfalli braut verkalýð-
urinn á bak aftur tilraun ofstækis-
fyllsta hluta borgarastéttarinnar til
þess að slá niður verklýðshreyfing-
una og koma á fasisma í landinu.
Verklýðnum tókst þetta, vegna frá-
bærrar einingar sinnar, vegna traustr-
ar og hygginnar forystu verkfalls-
manna, vegna sigursins á síðasta
þingi Alþýðusambands íslands.
Verkfallið er stórfelld sönnun þess,
að þegar verklýðsflokkarnir standa
saman, ér verkalýðsstéttin ósigrandi
afl, faglegt og stjórnmálalegt.
Jafnframt því að taka til úrbóta
innri veilur verklýðssamtakanna, fé-
lagslegar, fjárhagslegar o. s. frv., þarf
verkalýðurinn að stefna að því, að
stjórnmálaleg eining hans verði ekki
síðri en hin faglega.
Undir því að það takist sem fyrst,
eru ekki aðeins kaup og kjör komin,
heldur frelsi og framtíð íslenzka
verkalýðsins, islenzku þjóðarinnar.
S T Ö K U R
Stefnt í voöa viröist mér
völtum gnoðum þegar
skaps á boða brotna hér
bylgjur liroðalegar.
Ýtnsan vanda líður lund
lostin eigin gremi
Mannsins andi marga stund
mettast órósemi
Sveinbjörn Beinteinsson.
VINNAN og verkalýðurinn
er tímarit sem helgað er verkalýðssamtökun-
um.
Gerizt áskrifendur.
Afgreiðsla og ritstjórn, Skólavörðustíg 19,
sími 7500.
VINNAN og verkalýðurinn
81