Bergmál - 01.02.1948, Síða 6

Bergmál - 01.02.1948, Síða 6
B E R G M Á L F E B R Ú A R þurrkaði síðan úr skegginu. „Mér hefur verið sagt að þú hafir einnig tekið til fanga margar ambáttir", sagði hann síðan liægt, og eins og með varúð. Scipío leit á hann. „Hver segir það?“ Hinn yppti öxlum. „Það er sagt að þú hafir einnig haft með þér frá Bret- landi undurfagra, kornunga, ljóshærða ambátt?" „Já, það er satt, Jacundus. Hún heitir Gísella og er höfð- ingjadóttir. Hár hennar er sem spunnið gull og augun blá sem himinninn". „Flún hlýtur að vera mjög fögur“, sagði Jacundus. „Hún er fegurri en allt, sem fagurt er“, anzaði Scipío og klappaði nú saman höndunum. í sömu andrá kom inn svartur þræll, Koogu. Hann fleygði sér flötum frammi fyrir herra sín- um. „Þú kallaðir herra“, sagði hann. „Færðu Gísellu hingað“. Svertinginn fór og Jacundus drakk meira vín. „Þú hefur ef til vill frétt það, Scipío, að Nero hefur skilið við konu sína, Poppeu?“ Scipío kinkaði kolli. „Ég veit það. — Fögur kona Poppea — fögur sem syndin, Jacundus“. „Já, kæri vinur, Nero er vand- látur á konur“, anzaði Jacund- us, enn brosandi. Dyratjöldunum var slegið til hliðar og kona gekk inn í her- bergið. Hún var klædd næfur- þunnri skikkju og bar liana eins og ambátt var skylt. Ljóst, fag- urt liárið, var sett upp í hnút í hnakkanum. Stór, blá augun virtu óttaslegin hina tvo karl- menn fyrir sér. Jacundus fylgdi hverri hreyfingu hennar eftir með athygli. Scipío reisti sig upp til hálfs. „Þetta er Gísella", sagði hann. Jacundus kinkaði kolli. „Lag- leg“, sagði hann aðeins. Stúlkan kom nær. Hreyfingar hennar voru þrungnar með- fæddum yndisþokka. „Hún er gyðju líkust", sagði Jacundus, hrifinn. Scipío brosti ánægjulega. Hann gladdist óutnræðilega af herfangi sínu. Jafnfögur kona og Gísella fannst ekki í Róma- borg. Jacundus var risinn á fætur og gekk nú umhverfis hana og athugaði gaumgæfilega, frá öll- um hliðum. Augun gneistuðu af girnd. Scipío virti hann fyrir sér um stund, síðan sagði hann: 4

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.