Bergmál - 01.02.1948, Síða 13

Bergmál - 01.02.1948, Síða 13
B E R G M Á L 1948 hinn alþekkti andatrúarmaður Raumer sagði einhverju sinni, að hann hefði aldrei þekkt mann, sem hefði verið eins vel lagaður til að taka á xnóti yfirnáttúrlegum fyrirbrigðum, sem ég. Hvernig sem þessu er nú varið, þá er það sannleikur, að mér leið engan veginn vel, þegar ég var að ryðja mér braut gegnum mannfjöldann, sem stóð á þilfarinu og æjrti og hljóðaði, sumir grátandi en sumir hlæjandi og skríkjandi. Ef ég hefði fengið að vita, jafnvel þó ekki hefði verið fyrr en á því seinasta andartaki, hvað ég átti að þola og reyna á þeim næstu 12 klukkustundum, mundi ég eflaust hafa hent mér í land af skip- inu. Skipstjóri leit á úrið, kallaði og sagði: „Af stað“, og stakk úr- inu aftur í vasa sinn. „Af stað“, hrópaði stýrimaðurinn. Gufublístran hvein við og vinir og kunningjar farþeganna flýttu sér í land. Landfestin önnur var leyst og var verið að draga lausabryggjuna upp. Allt í einu heyrðist óp frá foringjapallinum, að bíða skyldi við. Tveir menn komu lilaupandi niður að skipakvínni og bentu og böðuðu út höndunum, og var auðséð að þeir ætluðu að ná í skipið. „Bíðið við“, grenjaði skipstjórinn. Þessir tveir menn komust út á skipið, rétt í því, sem hin landfestin var leyst. Síðan var bryggjan dregin upp og skipið var laust frá landi. Opin gullu við bæði á skipinu og í landi, og veifað var með vasaklútunum nokkra stund. Síðan leið skipið tignarlega út úr höfninni, og stefndi út á hið breiða haf. Þessi hálfsmánaðarferð var nú vel byrjuð. Farþegarnir hurfu smátt og srnátt niður í farrúmin, til þess að leita sér að rúm- stæði og líta eftir farangrinum. Út frá gestasalnum mátti hevra smelli í töppum, þar sem nokkrir, sem orðið höfðu að skilja við vini og vandamenn í Boston, höfðu tekið til þess úrræðis að deyfa saknaðartilfinninguna með nokkrum glösum af víni. Ég gekk fram og aftur á þiljunum, og horfði á og virti samferða- menn mína fyrir mér. Flest af þeim voru þessi vanalegu andlit, eins og sjást við slík tækifæri. Þar var ekkert, sem var nokkuð sérlega einkennilegt. Ég tala af þekkingu, því að mannsandlit eru mín sér- staka fræðigrein. Þegar ég rek augun í eitthvert öðrum fremur ein- kennilegt andlit, geymi ég mynd þess í huga mér og skoða hana og rannsaka í ró og næði, sem grasafræðingurinn grösin, heimfæri II

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.