Bergmál - 01.02.1948, Blaðsíða 17

Bergmál - 01.02.1948, Blaðsíða 17
1 9 4 8 -------------------------------------------- B E R G M Á L um, sem héngu rétt fyrir ofan þilfarið. Ég lagðist því þar fyrir og horfði upp í heiðan himininn, þjáður af sjósótt og þessum hræði- legu hugsunum. Ég velti í huga mínum orðum þessara tveggja manna, sem ég nýlega hafði hlustað á, til þess að vita, hvort unnt væri að fá nokkra aðra ráðning á þeim, en þá sem ég hafði fengið og þóttist viss um að væri sú eina rétta. Skynsemi mín neyddi mig til að játa, að það væri ómögulegt. Mér fannst að ég hafa svo öfl- ugar sannanir og líkurnar væru svo miklar fyrir því að grunur minn væri réttur; fyrst að þeir komu síðastir allra út á skipið, til þess að farangur þeirra yrði ekki rannsakaður. Nafnið „Flannigan" bar einhvern keim af írsku sprengitundurssamsæri, en nafnið „Muller“ hafði aftur á sér jafnaðarmanna- og morðingjablæ. Þeirra íbyggna framferði og orð þau, að áform þeirra hefði orðið að engu, ef þeir hefðu komið of seint; og óttinn fyrir því að einhver tæki eftir þeim. En sterkasta sönnunin var þó sá litli ferhyrndi kistill með hananum á lokinu og orðin, að mönnum mundi víst verða bilt við ef hleypt yrði af, af vangá. Var það hugsanlegt, að hér gæti verið að ræða um annað en menn frá einhverju leynilegu stjórn- leysingjafélagi, sem sendir hefðu verið til þess að sprengja skipið og allt, senr á því væri, í loft upp. Hinn hvíti þráður, sem ég sá, að annar þeirra stakk niður í kistilinn, var efalaust einhver leiðslu- þráður eða uppkveikja, sem nota skyldi við sprenginguna. Sjálfur hafði ég heyrt hljóð koma upp úr kistlinum, og hlaut því hér um eitthvað vélatól að ræða. Hvað gat legið í orðunum: „kvöld“. Var það áform þeirra að fremja þetta hræðilega verk fyrsta kvöldið, sem þeir væru á skipinu? Við þessa hugsun féll kaldur sviti um mig allan og lét mig gleyma alveg þjáningum sjóveikinnar. Ég hef hvorki verið gæddur líkamlegu né siðferðilegu þreki um dagana. Er þó mjög sjaldgæft, að sama manninn vanti hvort tveggja. Ég hef þekkt margan mann, mjög kvíðafullan fyrir hverri líkams- hættu, en að öðru leyti gæddan sjálfstæði og miklu sálarþreki. Þó að leitt sé, verð ég sjálfur að játa, að hinn einmanalegi lífsferill minn hefur stutt mjög að því, að vekja hjá mér ótta og óbeit á að gjöra nokkuð það, sem bæri mikið á eða yfir höfuð að láta aðra taka eftir mér. Og fyrir öllu þess konar hef ég kviðið miklu meira, en þótt ég hefði átt að mæta líkamlegri misþyrmingu. 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bergmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.