Bergmál - 01.02.1948, Síða 25
1 9 4 8 ———--------------------------------------- B E R G M Á L
„Að myrða saklausa menn getur aldrei undir neinum atvikum
skoðast rétt“, sagði litli presturinn.
„Skothríðin á París var þó ekki annað en morð framin á saklaus-
um mönnum“, sagði Flanningan, „og þó kom allur hinn siðaði
heimur sér saman um að breyta þessu ljóta orði „morð“ í annað,
sem hljómar betur: „stríð“. í augum Þjóðverja var þetta réttlátt;
hví skyldu þá Feningarnir ekki hugsa svipað um þessar sínar
sprengingar?“
„Enn þá hafa þær þó ekki sýnt neitt hreystiverk af sér, en aðeins
hótanir“, sagði skipstjórinn.
„Er þó ekki grunur á því“, mælti Flanningan, ,,að skipið „Dott-
erel“ hafi verið sprengt upp. Ég hef talað við menn í Ameríku,
sem fullyrtu að svo hefði verið“.
„Þá hafa þeir logið“, sagði skipstjóri. „Það sannaðist seinna, að
orsökin var gas í kolunum — en eigum við ekki að tala um eitthvað
annað, því að þetta getur orðið til þess, að kvenfólkið verði and-
vaka næstu nótt“.
Flammingan hafði í þessu samtali haldið fram skoðun sinni nreð
stillingu og sannfæringarkrafti, sem bar Ijósan vott um meiri
menntun en ég hefði trúað honum til að hafa. Ég gat ekki annað
en dáðst að þessum manni, sem gat talað með slíkri rósemi um
þetta og hafa í huga slíkt áform. Eins og ég áður gat um, hafði hann
drukkið töluvert af víni, en þótt kinnar hans væru orðnar nokkuð
rauðar, var hann samt mjög faslítill og stilltur. FTann gaf sig síðan
ekkert út í tal hinna og virtist vera í djúpum þönkum. Fjöldi af
innbyrðis gagnstæðum hugsunum barðist í huga mér. Hvað átti ég
nú að gera? Átti ég að ljósta öllu upp núna í áheyrn skipstjóra og
farþega? Eða átti ég heldur að tala einslega við skipstjóra? Um
stund var ég nær því sem ákveðinn, en lenti aftur í hin fyrri vand-
ræði, því að þegar á átti að herða brast kjarkinn, því að þetta gat
þó verið misskilningur frá upphafi til enda. Dick hafði heyrt allar
mínar ástæður og fundið þær léttvægar. Ég ákvað því að Iáta allt
gang sinn gang. Það var sem ég yrði kærulaus. Hví skyldi ég vera
að hjálpa mönnurn, sem voru blindir sjálfir fyrir hættunni? Það
væri þó skylda yfirmannanna á skipinu að vernda okkur, en ekki
okkar skylda að vara þá. Ég drakk tvö glös af víni og skjögraðist
23