Bergmál - 01.02.1948, Page 27

Bergmál - 01.02.1948, Page 27
1 9 4 8 ---------------------------------------------- B E R G M Á L „Ef þú þykist viss um það“, sagði Dick með alvörusvip, „þá er það sannarlega skylda þín að láta skipstjórann vita það“. „Það segir þú satt“, svaraði ég, „og það ætla ég mér að gera. Það er þetta gamla uppburðarleysi, sem er mér alltaf til meins. En það er þó það eina, sem hægt er að taka til bragðs“. „Farðu þá og gerðu það þegar í stað“, sagði Dick, „en í öllum bænum láttu mín samt ekki getið“. r „Ég ætla að tala við hann þegar hann kemur ofan af skipstjóra- pallinum“, svaraði ég; „en á meðal ætla ég að hafa augun á þeim“. „Segðu mér svo hvernig það gengur“, sagði Dick og gekk burt frá mér, til þess að leita uppi stúlku þá, sem sat næst honum við borðið, að því er ég liélt. Nú datt mér í hug báturinn, sem ég hafði legið í um morgun- inn, að ég skyldi vitja þangað og hugsa mig þar betur um, hvað gera skyldi. Það gerði ég líka og þaðan gat ég haft auga á þessum tveimur félögum. Svo leið ein klukkustund. — Skipstjórinn var stöðugt uppi á stjórnpallinum og var að tala þar við einn af far- þegunum, fyrrverandi sjóliðsforingja, auðvitað um eitthvað, sem snerti sjómannafræði. Nú var orðið svo dimmt, að ég gat naumlega grillt Flanningan og félaga hans í myrkrinu. Þeir stóðu alltaf í sömu sporum að heita mátti. Nokkrir af farþegunum voru enn þá uppi á þilfarinu, en flestir voru gengnir niður í farrýmin. Undar- leg kyrrð ríkti bæði yfir sjó og vindi. Það eina, sem heyrðist, var skröltið í skipsskrúfunni. Svo leið enn hálftími. Skipstjóri var enn uppi á stjórnpallinum. Það var sem hann ætlaði aldrei að koma niður þaðan. Taugar nn'nar voru svo viðkvæmar, að ég hrökk við í hvert sinn, sem ég heyrði fótatak á þilfarinu. Ég gægðist upp úr bátnum og sá að þessir tveir grunsamlegu félagar höfðu fært sig til og stóðu að kalla mátti alveg beint undir bátnum, sem ég lá í. Birtuna frá einu af ljóskerunum lagði beint framan í andlitið á Flanningan. Muller sá ég að bar þá fyrr umgetnu kápu á hand- leggnum. Ég hneig aftur á bak í bátinn. Þessi hræðilegi dráttur minn kostaði nú 200 mannslíf. Ég hafði lesið um þá óttalegu hefnd, sem njósnurum væri búin. Hið eina, sem ég gat, var að liggja graf- kyrr og hlusta á, hvað þeir tautuðu. „Þetta er góður staður“, sagði annar. 25

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.