Bergmál - 01.02.1948, Síða 42
B E R G M Á L----------------------------------------F E B R Ú A R
leið: „VIÐ GERÐUM ÞAÐ. PRIEN“. Aðmírállinn réði vart við
sig af sigurgleði. Hann hringdi upp Hitler og Dönitz og sagði þeim
fréttrnar. Því næst hringdi hann til Deutsches Nachrichten Bure-
au1), og skýrði nákvæmlega frá afreksverki Gúnther Prien skipherra,
hetju þýzka flotans, er hann að næturlagi skaut tundurskeytum úr
kafbát sínum og sökkti brezka orustuskipinu Royal Oak í herskipa-
læginu Scapa Flow, sem fullyrt var að ógerningur væri að komast
inn í fyrir óvinakafbáta.
Aldrei fyrr hafði óvina kafbátur komist inn í Scapa Flow og aldrei
hafði nokkur látið sér detta slíkt í hug. En Pearl Harbour Englands
hafði auðveldlega orðið skotspónn hins þýzka ofurhuga. Scapa Flow,
sem var álitið sterkasta flotavígi í heimi hafði orðið fyrir þýzkri
árás.
Á hálftíma fi'esti skýrði þýzka útvarpið frá þessum sigri allan
næsta dag. Fyrst þessi árás tókst svona vel, þá sýndi það sig að þýzki
flotinn stóð ekki langt að baki flota bandamanna. — En sigurinn
steig nazistaforngjunum til höfuðs. Sérfræðingar þeirra í flotamál-
um ráðgerðu fyrirsáturshernað kafbáta á skipaleiðum bandamanna
við Noreg, ísland og jafnvel við Stóra-Bretland. Eftir árásina á
Scapa Flow þóttust sérfræðingarnir þess fullvissir að Þýzkaland
kæmist vel af án stórra skipa. Þýzkaland mundi vinna orustuna á
hafirxu með kafbátum.
Móttökuhátíð fyrir hina þýzku hetju frá Scapa Flow, var undir-
búin. Aldrei fyrr í frægðarsögu Þýzkalands mundi sigurvegara
fagnað eins og nú skyldi gert. Blómum átti að rigna yfir hann og
hersveitir af ungum stúlkum í hvítum klæðum áttu að ganga í skrúð-
fylkingu á eftir honum, syngjandi honum lofgerðarkvæði, þýzku
hetjunni. Nokkrum dögum síðar kom kafbáturinn B—06 til Kiel.
Það var illt í sjóinn og veðrið leiðinlegt, en það hindraði ekki
þúsundir manna og kvenna í að fagna skipshöfninni. Samkvæmt
áætlun rigndi blómurn yfir Prien kafbátsforingja. Hann var opin-
berlega sæmdur æðsta heiðursmerki þýzka flotans, viðtöl við hann
birtust í öllum helztu útvarpsstöðvum í Þýzkalandi. Voldug veizla
var haldin honum til heiðurs í aðalstöðvum flotans og á eftir sigur-
1) Þýzk fréttastofnun
40