Bergmál - 01.02.1948, Page 46

Bergmál - 01.02.1948, Page 46
F E B R Ú A R B E R G M Á L stöðulaust í mörg ár á eftir, án þess að bila. Fólkinu gazt vel að hin- um nýja nágranna. Það bauð honum heim til sín, í veiðiferðir og „Bridge“-spil. Árið 1932 varð hann enskur ríkisborgari og var nú aðlögun hans að enskum háttum fullkomnuð. Þessi landkrabbi frá Sviss, hafði mikinn áhuga á sjónum. Honum virtist líða mjög vel í sjávarþorpinu enska. Hann var orðinn svo rótgróinn í Kirkwall að honum féll það miður að þurfa að fara nokkuð burt jafnvel til að heimsækja vini og ættingja í Sviss. Vegna þess komu ættingjarnir í heimsókn til hans sumarmánuðina. Ýmsir af ættingjum hans urðu afar hrifnir af Kirkwall og létu í ljósi þá löngun sína að setjast að í Englandi eins og Ortel. Hann aðstoðaði þá á allan mögulegan máta og útvegaði þeim vinnu í héraðinu. Albert fékk mikið af bréfum frá ættingjum sínum í Sviss, og sem góður sonur skrifaði hann öldnum föður sínum minnsta kosti einu sinni í mánuði. En það vildi nú svo til að hinn aldni faðir var eng- inn annar en Canaris aðmíráll og hinir mörgu ættingjar voru for- ingjar úr leyniþjónustu nazista. En Ortel var aldrei svo mikið sem grunaður. Börnin í bænum komut fljótt að því, að Albert átti alltaf eitthvað af svissnesku súkkulaði. Honum þótti vænt um börnin og gaf þeim alltaf súkkulaðibita þegar þau komu inn í búðina til hans. Lífið í Kirkwall var friðsælt og rólegt. En nú brauzt út styrjöldin. Albert Ortel varð sá fyrsti til að hengja sambandsfánann brezka „the Union Jack“ yfir búðardyr sínar. Hann keypti stríðsskulda- bréf meir en flestir aðrir. „Það er fjarri því að ég sé hlutlaus", sagði hann. „Ég er Breti nú en ekki Svisslendingur“. Hann sagði að sér félli það mjög miður að aldurinn skyldi hindra hann frá því að vera tekinn í herinn, en hann gerði allt, sem hann gat á heima- vígstöðvunum, hann hlustaði mikið á stríðsfréttir. Ortel var fyrirtaks leikari, það var ekki betur hægt að fara með hlutverkið. Það mun aldrei vitnast hvaðan hann hafði upplýsingar sínar um varnir í Scapa Flow. Voru það ef til vill börnin, sem sögðu honum í sakleysi sínu það, sem þau höfðu heyrt heima, þegar hann lokkaði þau með súkkulaði sínu? Eða voru það hafnarverkamenn- irnir? Eða var það lausmálgur sjóliði? Það veit enginn, en staðreynd- irnar liggja fyrir. Mánuði eftir að styrjöldin brauzt út, vissi Ortel 44

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.