Bergmál - 01.02.1948, Síða 52

Bergmál - 01.02.1948, Síða 52
F E B R Ú A R B E R G M Á L drukkið var kaffi við sameiginlegt borð. Ef satt skal segja finnst mér unnusti minn ekki nema rétt í meðallagi matprúður, og kemur mér ekki til hugar að setja út á hans borðsiði við liann sjálfan. Ég hef þessa skoðun fyrir mig. Eða haldið þér að ég ætti að sýna honum sömu hreinskilni og hann mér? í fyrstu umferð við kaffiborðið var brauðfatið rétt fyrst að honum. Hann fekk sér á sinn disk og rétti það síðan til mín. í næstu umferð kom fatið fyrst til mín og gerði ég þá eins og hann hafði gert, fekk mér fyrst og ætlaði síðan að rétta honum. Hann var þá með sinn disk á lofti, svo að ég spurði vin- gjarnlega: „Á ég að setja á diskinn hjá þér?“ Hann svaraði snúð- ugt: „Ef þú hefðir kunnað þig, hefðurðu rétt mér fyrst, áður en þú byrgðir upp sjálfa þig“. Þeir, sem næstir okkur sátu, heyrðu þetta auðvitað, en ég lét sem ekkert væri. Ég reyndi að breiða yfir þetta með því að halda uppi borðræðum, enda þótt hann gerði mér erfiðara með því að setja upp svip og sitja þegjandi urn stund, móðgaður yfir ónærgætni rninni og ókurteisi. Svona auðmýkingar geta orðið þreytandi, þegar til lengdar lætur. Aldrei biður hann mig afsökunar, þótt hann sýni mér opin- bera ónærgætni. Öllu verð ég að taka með þögn og þolinmæði. Alltaf verð ég að vera glöð og ánægð og samþykkja, að hann hafi rétt fyrir sér, ef illindalaust á að vera milli okkar. Kúguð unnusta. S v a r : Ég hygg að ég svari yður bezt með því að tilfæra nokkur orð úr einni af bókum Dale Carnegie: „Það er eitt af aðaleinkennum heimskra ofláta, að það er aldrei hægt að gera þeim til hæfis. Meðvitað eða ómeðvitað þjást þeir af vanmáttarkennd. Þeim finnst ekki nóg tillit tekið til þeirra, þeirra vilja, þeirra skoðana, þeir njóta ekki eins mikillar virðingar og þeir viidu, e. t. v. verða þeir líka að viðurkenna með sjálfum sér að afrek þeirra, séu ekki mikil. Margur er sá maðurinn, sem lítið hefur getað látið að sér kveða á vinnustað sínum, meðal starfsfélaga sinna eða á opinberum vettvangi, er bætir sér það upp með því að vera harðstjóri á heimili sínu, vondur við konu sína og börn“. 50

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.