Bergmál - 01.02.1948, Síða 54

Bergmál - 01.02.1948, Síða 54
B E R G M Á L --------------------------------- F E B R Ú A R Samband yðar við stúlkuna, sem myndin er af, getur hafa verið einungis hugrænt, barnslegt og saklaust. Yður virðist því, að þér hafið ekkert að játa fyrir unnustu yðar. En vegur ástarinnar er mjór og vandfarinn. Nútímafólk gerir kröfur til gagnkvæms frjáls- lyndis í ástamálum. Sumt fólk verður þó alla ævi gamaldags og við- kvæmt í þessum efnum, hversu róttækt sem það annars kann að geta orðið á öðrum sviðum. Hjón verða að uppfylla siðferðiskröfur hvors annars í yztu æsar, ef vel á að fara. Þau verða að mætast í ást sinni af heilum hug, jafnvel hugrenningasyndum, sem á mann sækja, verður að bægja frá sér. Það er ekki hægt að lifa hjúskaparlífi án fórna. Þetta með myndina eru í rauninni smámunir, ef að er gætt. Þar eð unnustu yðar er myndin svona mikill þyrnir í augum, verðið þér að láta að vilja hennar í þessu efni. Reynið að setja yður í hennar spor. Hvernig þætti yður það t. d., ef hún léti í herbergi sínu hanga mynd af ungum og myndarlegum pilti, og léti þess getið öðru hvoru, yður til uppörfunar, hvílíkur ágætismaður þetta væri, að hennar dómi? Myndi það nokkuð bæta úr skák, þótt hún hefði sjálf tekið myndina og væri montin af hve vel það hefði lánazt? Trúlofaður einu sinni enn. Frá því ég var á þrettánda ári hef ég orðið að sjá fyrir mér sjálfur. Þegar ég var 16 ára eignaðist ég fyrstu „kærustuna“. Hún var þrem árum eldri en ég. Sú næsta var níu árum eldri. Nú er ég 27 ára gamall og sú þriðja í röðinni er 29 ára. Ég hef lengi hugsað svo, að konur væru hver annarri líkar. Það skiptir því ekki svo ósköp miklu máli hverri maður giftist, geti maður fellt sig við hana í sambúð og hjónabandið verði illinda- lítið. En nú, þegar ég hef verið samvistum við þessa unnustu mína í fimm ár, og heitið að giftast henni, er viðhorf mitt allt í einu breytt. Nú er mig farið að dreyma um sérstaka konu, er ýmsum kostum á að vera búin. Mynd hennar í huga mínum á ekkert sam- eiginlegt með unnustu minni. Ég veit að bæði hún og aðstand- endur hennar myndu taka það mjög nærri sér, ef ég yfirgæfi hana. 52

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.