Bergmál - 01.02.1948, Page 56

Bergmál - 01.02.1948, Page 56
B E R G M Á L ------------------------------------- F E B R Ú A R Þá er liann svo óþolinmóður og leiður á mér. En þegar ég er í góðu skapi erum við ósegjanlega hamingjusöm saman. Ég veit samt ekki nema réttast væri af mér að slíta trúlofun okkar. Ég held að við eigum ekki skap saman. Við höfum þekkzt í þrjú ár. En ég get ekki lagt trúnað á það, að unnusta mínum þyki eins vænt um mig og liann segir. Það veldur kannske nokkru um ógleði mína og þunglyndi, að mér leiðist í skrifstofunni, þar sem ég vinn. Ef ég fengi starf, sem væri betur við mitt hæfi, fyndi ég kannske meir til mín og þá kæmi meira jafnvægi á líf mitt. Ranka. S v a r : Ekki hef ég mikla trú á því, að það réði úrslitum um líðan yðar, ef þér skiptuð um starf, nema þá þér tækjuð að yður vinnu, sem þér yrðuð að hafa allan hugann við, svo að yður gæfist minni tími til þess að hugsa um sjálfa yður. Ég held nefnilega að aðalmeinið sé það, að þér eruð of mikið upptekin af sjálfri yður og dálítið eigin- gjarnari en hollt er. Þér eruð ein þeirra kvenna, sem gera sér leik að því að stækka í eigin augum allt, sem miður fer og á móti blæs, unz hinir ímynduðu erfiðleikar verða yður ofviða. Það er ekki nóg með það, að þér leggið árar í bát og gefizt upp. f móðursjúkri ör- væntingu og sjálfstyftun viljið þér einnig varpa frá yður því, sem hamingjan hefur þrátt fyrir allt gefið yður. Þér liafið meiri ástæðu, en flestir aðrir, til þess að vei'a ánægð. Unnusti yðar ann yður, enda þótt þér gerið allt, sem í yðar valdi stendur, til þess að gera honum lífið leitt. En ef þér hafið hugsað yður að halda því áfram, að meta og mæla ástaratlot lians og þolin- mæði, væri kannske mannúðlegast að lofa honum sem allra fyrst að losna við yður. En hvernig væri nú að hugsa heldur sem svo: Hví skyldi ég ekki, sem er nú svona ósjálfstæð að upplagi og þurf- andi fyrir samúð unnusta míns og uppörfun, gera allt, sem í mínu valdi stendur, til þess að hann uni sér í návist minni og sé ham- ingjusamur? 54

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.