Bergmál - 01.02.1948, Síða 59
1 9 4 8 ------------------------------------------- B E R G M Á L
annarri eins óþreyju og nú. Seinni hluta dagsins sagði hann við
Sesselju: „Ég vona að þú farir nú að láta skynsemina ráða, því fyrr
því betra“.
„Svona gætir þú ávarpað bókarana", svaraði hún kalt.
Þetta jók á vandræði hans. Hvað mundi verða um hjónaband,
sem byrjaði með þessum hætti. Hann varð að sigrast á henni, annað
var óhugsanlegt.
En um kvöldið gerðist sama sagan aftur. Sesselja lokaði sig inni í
gamla herberginu sínu og Karl gerði nokkrar árangurslausar til-
raunir til að komast inn. Honunr datt í hug að sækja liamar og
brjóta lásinn en þótti minnkun að slíku tiltæki.
í þess stað barði hann að dyrum tengdaföður síns, gekk inn, fékk
sér sæti og tók að hlæja. Reiði hans og blygðun fékk útrás í heimsku-
legum, slitróttum hláturhviðum. Nú fannst honum þetta allt svo
frámunalega vitlaust og hlægilegt.
Aldrei hafði ltann grunað að hann mundi lenda í slíku.
Þeir töluðust við um stund, síðan bauð Karl góða nótt og fór.
Sesselja, sem heyrði mann sinn koma frá herbergi föður síns, varð
ekki lítið vonsvikin þegar hann gekk fram hjá dyrum hennar án
þess að reyna að opna. Hún hafði þó ætlað að velgja honum undir
uggum í þetta sinn. Daginn eftir voru þjónustustúlkurnar glens-
gjarnar fremur venju. Ráðskonan setti upp sakleysissvip og spurði
ungu frúna hvernig henni líkaði að vera gift. „Það er yndislegt",
svaraði hún, en baðst undan svona spurningum bæði nú og fram-
vegis. Karl hafði leynda fyrirætlan. Tækifæri til að framkvæma hana
fékk hann síðari hluta dagsins, meðan Sesselja var úti. Hann fór inn
í herbergið hennar, tók lykilinn úr skráargatinu og lét þar annan,
sem ekki gekk að skránni. Hann hló með sjálfum sér að þessu her-
bragði.
Um kvöldið höfðu þau gesti og voru lengur á fótum en venja
var til. Þegar gestirnir voru farnir stóð Karl upp og gekk til dyranna.
„Góða nótt, Sesselja“, sagði hann hljómlaust.
„Viltu ekki kyssa mig?“ spurði hún lágt og blíðlega.
Hann sneri sér við og stóð kyrr. Nokkur þögn.
„Hvers vegna ætti ég að gera það?“ Hann sagði þetta áherzlulaust
og án svipbreytinga.
57