Bergmál - 01.12.1952, Qupperneq 12

Bergmál - 01.12.1952, Qupperneq 12
Desember Bergmál ---------------------- einu sinni að segja Manga frá stórum fiski, sem hann var næst- um búinn að veiða. „Álíka stór og meðalhvalur, var það ekki,“ rpurði Mangi ísmeygilega. „Ég hafði hval fyrir beitu,“ svaraði Jói. Þessa sögu er ekkert sérlega auðvelt að segja. Ykkur kann að furða á því. Sagan er alls ekki sem verst og lítur vel út á prenti. Söguhetjurnar þekkja allir og fiskisögur eru fremur vinsælar. En hvað er þá að? Endahnút- ur sögunnar eða lykillinn að henni felst í síðustu setning- unni: „Ég hafði hval fyrir beitu.“ Sagan nær hámarki sínu þarna og miðast öll við þessa setningu. En varastu að hafa eftirmála — ekki stakt orð í viðbót. Þetta virðist í fljótu bragði ekki nein vísindi, en það eru þessi smáatriði, sem skilja milli góðra og leiðinlegra sögu- manna. 5. Vertu ekki allt of hrifinn af sjálfum þér. Þú átt að njóta þess að segja söguna, en þú mátt ekki skellihlæja að þinni eigin fyndni, hvorki eftir né áð- ur en þú segir hana. Og segðu aldrei — ALDREI — sögur, þar sem þú ert sjálf(ur) hetjan. Þú mátt ekki hafa betur en hinn náunginn, ekki fara með sigur af hólmi. Það skiptir engu, hversu sakleysislega þú laum- ar þessu inn í söguna, það verð- ur óðar farið að stinga saman nefjum um þig og tala um þenn- an, sem sé að segja frægðarsög- ur af sjálfum sér. Og það verður þér áreiðanlega lífstíðarstarf, að fá menn ofan af þessari skoð- un ef þú stígur slíkt víxlspor. 6. Lærðu söguna, svo að þú kunnir hana. Það er e. t. v. ekki nauðsynlegt að læra hana frá orði til orðs, en þú ættir að leggja hana vel niður fyrir þér oft og mörgum sinum, áður en þú „ýtir úr vör“. Þetta er nauð- synlegt til þess að geta sagt söguna reiprennandi og með réttum áherzlum. Og hér eins og ævinlega, þegar maður þarf að koma fram sem ræðumað- ur, margborgar sig að vera vel og rækilega þjálfaður og undir- búinn. Maður nokkur var á heimleið að næturlagi, allvel hífaður og mætti öðrum svipuðum í Austurstræti. „Heyrðu vinur,“ sagði sá, sem var á heimleið. „Veiztu hvað klukkan er.“ „Já,“ svaraði hinn. „Þakka þér kærlega fyrir," sagði sá fyrrnefndi og hélt áfram heim á leið. 10
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Bergmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.