Bergmál - 01.12.1952, Blaðsíða 56
Bergmál ---------------------
eru engar líkur til þess, að t. d.
tvo kennara langi til að tala
saman — miklu líklegra, að það
séu síðustu mennirnir, sem
langar til að vera saman. Það eru
venjulega þeir, sem þig sízt
grunar, sem hafa mest gaman
að tala saman. Flestar eldri
konur langar til dæmis mest til
að vera í nágrenni við „jórtur-
gæjana“ og coca-cola drykkju-
mennina.
Leyfðu gestunum að vera þar,
sem þeir eru og fara þangað, sem
tilviljunin setur þá. Ein ástæða
af mörgum til þess að fólk fer
yfirleitt 1 heimboð er sú, að
það hittir þar ólíklegustu mann-
tegundir.
3. Hafðu aldrei alveg nóg á
boðstólum, hvorki af matföng-
um eða víni. Ef fólk drekkur of
mikið hneigist það til að haga
sér eins og flón og þá færðu ó-
afturkallanlegan og óyfirstígan-
legan viðbjóð á því um aldur
--------------- Desember
og ævi. Auk þess verða menn
syfjaðir og slappir af að drekka
of mikið og svo gæti farið, að
helmingur gestanna lægi „dauð-
ir“ í valnum, þegar þú ætlar að
fara að kveðja. Gestir eru því
aðeins skemmtilegir og vakandi,
ef þeir fá aldrei nógu mikið af
mat og drykk.
4. Gættu þess vel, að gestirn-
ir geti hvergi fundið sér sæti.
Láttu þá standa og sveima um
kring, en ekki setjast niður. Á
móti hverju meinum sem situr
er hæfilegt, að a. m. k. þrír
standi. Og ef nauðsyn krefur,
skaltu koma stólunum þínum í
geymslu hjá nágrannanum, ef
þú hefir of marga.
— Jæja, finnst ykkur þetta
nokkuð yfirtak flókið? Og það
merkilegasta af öllu er ,að ég er
ekki að gera að gamni mínu,
þetta er allt heilagur sannleik-
ur. — Og það hrífur!
Látum oss biðja:
blessist vor iðja,
blindfullir allir vér séum í kvöld,
höldum nú ræður,
rennum út bræður
á smáskammta-lækningum leið er vor
öld.
Landsjóður þiggur
þú að sért dyggur
þegn, sem að borgar þín brennivíns-
gjöld.
Varhug gjalda, horfi halda,
hitta valda braut um leir;
þótt han rigni og þótt ég digni,
þá mun lygna síðarmeir.
54