Bergmál - 01.12.1952, Blaðsíða 44
TORTRYGGNI
Smásaga eftir Mossford Oliver
6
Aðeins tveimur mánuðum
eftir komu okkar úr brúðkaups-
ferðinni skutu ófreskjurnar og
tvíburasysturnar afbrýði og tor-
tryggni upp kollinum á heimili
okkar, eins og illvígir útsvars-
skattheimtumenn.
Morgunn nokkurn, er ég var
að raka mig, heyrði ég að póst-
maðurinn barði að dyrum. Þeg-
ar ég kom inn í borðstofuna til
morgunverðar, þótti mér sem ég
sæi Mabel í flýti ýta einhverju
undir diskinn sinn.
„Nokkur bréf í morgun,“
spurði ég.
með 5‘/io kílómetra hraða á
klukkustund. Hve lengi er,
samkvæmt þessu frá Akur-
eyri til Dalvíkur?
I. verðlaun fyrir rétta lausn
er ársáskrift Bergmáls.
II. verðlaun einn árg. Berg-
máls, innb.
Senda þarf lausnir fyrir 20.
desember n. k.
„Ekkert til þín,“ svaraði Ma-
bel, og hóf þegar að skeggræða
um kjól, se mhana langaði til
að kaupa, frú Jones, nágranna-
konu hennar, sem væri eitur-
naðra að kvenmanni, fiskverðið
og öll þessi umræðuefni, sem
standa hjörtum kvenna svo
nærri.
Ég snæddi morgunmatinn
þegjandi, niðursokkinn í hugs-
anir mínar, meðan Mabel bolla-
lagði. Ég er ekki hnýsinn að eðl-
isfari, en þegar Mabel vék sér
augnablik inn í eldhúskytruna,
ýtti ég í flýti diskunum til hlið-
ar. Undir disknum var nýopnað
bréf til hennar. Utanáskriftin
var með karlmannshendi, sem
ég kannaðist óljóst við. Ég setti
diskinn aftur yfir bréfið — og
braut heilann um þetta allan
daginn.
Ég vonaði, að hún mundi
víkja að þessu um kvöldið, þeg-
ar ég kæmi heim. Nei, aldeilis
ekki. Hún talaði um þetta og
hitt í sannleika sagt, um allt
42