Bergmál - 01.12.1952, Síða 18

Bergmál - 01.12.1952, Síða 18
B E R G M Á L dæmis var mér full ljóst, að Alexandra Andreyevna — en svo hét hún — elskaði mig ekki, en virti mig hins vegar nokkurs eða öllu heldur bar vinarhug til mín. Og þótt hún hafi ef til vill ekki skilið þessa kennd,sjálf, þá að minnsta kosti bar framkoma hennar þessu glöggt vitni. Þú getur sjálfur gert þér þetta allt í hugarlund. En,“ bætti lækn- irinn við, sem hafði þulið þess- ar sundurlausu setningar með andköfum og mjög vandræða- lega, „ég er víst kominn úr fyr- ir efnið — þú getur varla sett þig í mín spor ... En nú skal ég taka upp þráðinn aftur og halda mér við hann.“ Hann lauk við tebollann og hóf máls aftur með rólegri röddu: „Jæja, þá. Sjúklingnum fór dagversnandi. Þú ert ekki lækn- ir og getur þess vegna tæplega rennt grun í, hvað gerist hið innra með þeim, sem finnur að veikindin eru að sigra. — Hvað verður um trú hans á sjálfum sér? Menn verða allt í einu svo hjálparvana; það er ó- lýsanlegt. Og þá finnst læknin- um hann hafa gleymt öllu, sem hann kunni áður og að sjúkling- urinn sé hættur að treysta hon- um og að fólk hljóti að sjá, hve -------------- Desember vanmegnugur hann er og lýsi þess vegna sjúkdómseinkenn- unum með tregðu; að það sé horft á hann með tor- tryggni og það sé hvísl- að ... Það er hryllilegt! Það hlýtur að vera til eitthvert ráð, hugsar hann með sér, ráð við þessum sjúkdómi, ef það aðeins væri mögulegt að muna eftir því. Ætli það sé ekki þet.ta? Hann reynir — nei, það bregzt! Hann bíður ekki, þangað til meðalið er farið að virka ... Hann reynir eitt meðal, og svo annað. Stundum reynir hann að fletta í lækningabók — og þarna kemur það, hugsar hann! Og stundum, það veit guð, velur hann aðferð af handahófi og fel- ur sig forsjóninni á vald ... En svo er sjúklingurinn kominn í dauðann og ef til vill hefði ann- ar læknir getað bjargað honum. „Ég verð að ráðfæra mig við aðra lækna,“ segir hann. „Ég vil ekki bera ábyrgðina á þessu einn.“ Og hvílíkur rati sýnist hann ekki vera, þegar hann seg- ir slíka hluti! En svo lærist hon- um að taka þessu með ró. Það skiptir engu máli til eða frá. Sjúklingur deyr — en það er ekki honum að kenna; hann fór með hann eftir reglunum. En það, sem er honum enn meiri 16

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.