Bergmál - 01.12.1952, Side 30
B E R G M Á L
en ekki samkvæmt reikulum
sýndarsjónarmiðum hugsjúkra
draumóra, er líkust því að finna
fast land undir fótum eftir
margra vikna sjóferð á úfnum
sjó. Draumóramaðurinn kann
að kalla þrúgur raunveruleik-
ans súrar, en sá, sem hefur
smakkað þær, er fullviss þess,
að loks hafi hann notið einhvers,
sem er ósvikið.
Hvaða ráð eru þá til að brjóta
þessar viðjar aðgerðaleysis og
sj álf stortímingar.
Haga athöfnum okkar eins og
ómögulegt væri, að þær gætu
mistekizt.
Losum okkur fyrst og fremst
við allan tvískinnung og kvíða,
allan ótta um, að við séum
hlægileg og lítilmótleg. En ein-
mitt þessar áráttur eru mestu
skaðvaldar í lífi okkar og starfi.
Fyrsti árangur slíkrar afstöðu
er geysimikil, ný lifsorka, sem
nú brýst fram, en við vissum
ekki áður að í okkur byggi. Vit-
und okkar skynjar nýja mögu-
leika og ókannaðar brautir. Við
beinlínis teygjum úr okkur og
njótum hins unna frelsis. Orku
þeirri, er áður var eytt í að
halda óttanum og kvíðanum
undir yfirborði dagvitundar og
fóðra hinar gagnslaus sýndar-
athafnir í heimi draumóra eða
----------------Desember
á baksviðum og skúmaskotum
athafnalífsins, er nú beint í
rétta átt, að jákvæðum, skap-
andi og raunhæfum viðfangs-
efnum. Þegar við höfum vanizt
hinu nýja viðhorfi, verður okk-
ur ljóst, að hinn fyrri ótti okk-
ar og uggur var meira en nei-
kvætt, huglægt fyrirbrigði. Er
við högum okkur eins og óttinn
og kvíðinn væru mikilvæg og
hættuleg öfl, gerum við þau að
sjálfstæðum, skaðvænlegum öfl-
um í lífi okkar. Þau verða að
snýkjudýrum, sem þroskast á
kostnað alls þess, er heilbrigt
var í fari okkar. En er við ger-
um óttann útlægan, leysast úr
læðingi hæfileikar, sem að vísu
höfðu alltaf verið til, en aldrei
komið að notum sökum þess,
að lífsorku skorti til að beina
þeim að hæfilegum viðfangsefn-
um .
Annar ávinningur af þessu
nýja viðhorfi er sá, að við finn-
um miklu síður til þreytu. Það
er alltaf svo margt ógert, og við
höfum engan tíma til þess að
eyða tímanum í þunglyndi eða
lífsleiða.
Sumum mun ekki virðast, og
það með réttu, auðvelt að byggja
hið nýja viðhorf á orðum ein-
um. Það þarf meira til en í-
myndunaraflið eitt, ef við vilj-
28