Bergmál - 01.12.1952, Síða 54

Bergmál - 01.12.1952, Síða 54
Bergmál hjálparhella, Gísli,“ sagði hann, „þá gætir þú tekið að þér að verða yfirdælu-meistari hér á staðnum.“ Gísli ljómaði af ánægju. Þetta leit ekki sem verst út, loksins virtist vera not fyrir hann. „Það þarf að dæla öllu vatni til hússins frá lindinni uppi í holtinu, dælan er í sambandi við tanka uppi á loftinu,“ sagði Georg. „Komdu með mér út í dæluskúrinn og ég skal sýna þér gripinn. En til þess að tryggja okkur nóg vatn til af- nota yfir daginn, þarf að dæla um tvö hundruð slög fyrir há- degi og annað eins síðdegis.“ „Þetta vil ég, með mestu á- ---------------- Desember nægju taka að mér,“ sagði Gísli brosandi. „Þetta er fjandans erfiði og ef þú treystir þér til að taka þetta að þér, þá munum við alveg losa þig við allt annað vafstur," sagði Georg með áherzlu. Alla vikuna gladdist Gísli yf- ir því að mega hamast við að dæla, bæði árdegis og síðdegis. Nú fannst honum, að hann leggja til þá hjálp, sem honum bæri, og minntist ekki á, að fá að gera neitt annað. En auðvitað sagði Georg hon- um aldrei frá því, að allt vatn til hússins kom frá vatnsveit- unni í þorpinu og þessi dæla hafði ekki verið í sambandi við neina tanka í síðast liðin tvö ár. Ég er hraustur, ég er veikur, ég er hryggur, glaður þó; ég er óhræddur, ég er smeykur, ég er snauður, ríkur nóg. Ég elska gjörvalt, allt þó hata allt ég veit og neitt ei skil; öllu bjarga og öllu glata, á augna-bliki sama’ ég vil. Ég er fús og ég er trauður, ég ber glaður votan hvarm, ég er lífs og ég er dauður, ég er sæll og bý við harm. i Ég er óður, ég er hægur, ég kýs allt og ekkert vil; ég um alla jörð er frægur, ég hef aldrei verið til. í lífi og dauða meðan má munninn væta’ á stútnum, í sorg og gleði sýp ég á sextán potta kútnum. „Þótt hann rigni’ og þótt ég digni, og þótt hann lygni aldrei meir,“ frafh skal stauta blauta brautu, buga þraut, unz fjörið deyr. 52

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.