Bergmál - 01.12.1952, Page 55
GESTABOÐ
Þessi stutta grein er eftir einn
af þekktustu kvikmyndastjórn-
endum og jafnframt einn af vin-
sælustu húsbændum, sem gesta-
boð halda í Hollywood. Hann
heitir Gottfried Reinhardt.
Ef til vill má segja, að hann
taki nokkuð djúpt í árinni um
sumt það, er hér fer á eftir, en
óneitanlega hefðu margir gott
af því, að lesa þessa grein, enda
þótt þeir færu ekki eftir henni
alveg bókstaflega.
Því fer víðs fjarri, að vanda-
laust sé að hafa heimboð eða
samkvæmi í heimahúsum.
Nokkrar meginreglur er nauð-
synlegt að hafa hugfastar og ef
það er gert, mun allt ganga að
óskum og þú verður fyrirmynd-
ar húsbóndi, eða húsmóðir, heim
að sækja.
1. Gættu þess vendilega, að
ekki fari of vel um neinn gest-
anna; þér líkar kannske ekki
þessi talsmáti, en þessi regla er
gullvæg. Ef þú sérð um, að sem
allra fæstir af gestunum séu í
þægilegum stellingum, þá eru
allar horfur á, að boðið takist
vel.
Ef öllum gestunum líður vel
og geta hreiðrað of notalega um
sig, þá lognast allur gleðskapur
út af og ekkert verður úr neinu.
Og það sem verra er, menn ger-
ast svefnugir og taka að geispa
og gapa um tíuleytið.
Það eru til margar leiðir til
að sjá um þetta og ein þeirra er
að hafa húsnæðið of lítið, svo
að öllum finnist það sé verið að
troða ofan á sér. Ef gestirnir eru
bara nógu margir og húsnæðið
nægilega lítið, þá er mikið feng-
ið.
Ég hefi stundum setið veizlur
í Hollywood, þar sem húsin voru
svo stór, að manni virtust þau
myndu verða jafn-tóm þótt a.
m. k. 25.000 manns kæmu í við-
bót. Ef þú kemur 25 manns
þægilega fyrir í stofunni hjá
þér, þá skaltu bjóða minnst 50.
2. Færðu fólk ekki saman,
þótt þú haldir að einhverjir tveir
hljóti að hafa sömu áhugamál.
í fyrsta lagi gizkarðu venju-
lega ranglega á slíka hluti. Það
53