Bergmál - 01.12.1952, Page 67
ORÐSENDÍNG
til lesenda Bergtnáls
Nú fyrir jólin kemur út skáldsagan „EIGINKONA LÆKNIS-
INS“ eftir hina mikilvirku og víðlesnu skáldkonu, Maysie Greig.
Saga þessi birtist, sem framhaldssaga í Bergmáli undir nafninu
„Lœknisjrúin“, og náði óvenju miklum vinsældum, enda er hún
sérstæð og heillandi fyrir alla þá, sem ánægju hafa af vel gerðum
skáldsögum.
Vegna hinna fjölmörgu lesenda Bergmáls, sem gert hafa fyr-
irspurnir um það, hvort saga þessi yrði ekki gefin út sérprentuð,
hefir Bergmál nú gert þann samning við útgefanda bókarinnar,
að þeir, sem hefðu hug á að nota þessa úrvals-skáldsögu til jóla- og
vinar-gjafa geta pantað hana hjá Bergmálsútgájunni, Hofteig 28,
Reykjavík og fengið hana fyrir aðeins kr. 50.00 í góðu bandi. —
Annars verður útsöluverð bókarinnar kr. 65.00. — Sendið andvirði
bókarinnar — kr. 50.00 — með pöntuninni til Bergmálsútgáfunn-
ar og þér fáið bókina jafnskjótt senda yður að kostnaðarlausu.
UppÍag bókarinnar er mjög takmarkað, svo að lesendur Berg-
máls ættu að tryggja sér eintak, sem allra fyrst.