Víðförli - 01.03.1947, Side 5

Víðförli - 01.03.1947, Side 5
HORFT ÍIT í HEIM O O því meira metin sem lengra líður frá. Þeir flekkir, sem svikulir kirkjumenn þýzkir hafa sett á skjöld kirkjunnar með tiHæti við nazismann, eru dapurleg víti til varnaðar, en megna ekki að hylja heiður þeirra, sem héldu uppi rnerki kristinnar játn- ingar og létu ekkert gengi nazískra vopna, hvorki innan Þýzka- lands né utan, hilla frá sér trúnaðinn við Biblíuna og grund- völl kirkjunnar. Öll styrjaldarárin háði hinn vakandi hluti þýzku kirkjunnar baráttuna við heiðið siðleysi, oflæti og kúgun stjómarvaldanna. Dæmi um hug þeirra og dirfsku eru ummæli biskupsins í Wúrtemberg, dr. Wurrns, er hann flutti í heyranda hljóði á fyrri árum stríðsins, þegar þýzki herinn var enn sigur- sælasti her sögunnar. Hann sagði: „Vér vinnum ekki þetta stríð, og vér eigum heldur ekki skilið að vinna það". Og enn sagði sami maður: „Víst vildi ég geta hvatt menn til þess að treysta þjóðarforystunni. En mér er það ekki mögulegt. Stað- reyndirnar gera það ómögulegt. Alit hið æðsta og dýrmætasta, sem Guð hefur trúað þýzku þjóðinni fyrir, er troðið í svað'ið". Jlómvers'ka kirkjan. í þessari baráttu sneru evangelískir menn og rómverskir bökum saman í Þýzkalandi. Alkunn um allan heim er einurð og óbilgirni rómverskra manna slíkra sem Faulhabers kardínála í Alúnchen og von Galens biskups í Múnster. Rómverska kirkjan í Þýzkalandi hefur staðið fast og ötullega gegn nazismanum og páfinn hefur berlega stutt hana til þess, svo sem sjá má t. d. af bréfi hans til biskupa sinna þar í landi 1937, einu merkasta skilríki, sem nokkurn tíma hefur frá páfastólnum komið. Söm var afstaða rómv. kirkjunnar í Niðurlöndum og Póllandi. Þar var hún í fylkingarbrjósti andstöðunnar gegn kúgun og harðstjórn innrásarliðsins. Það er athyglisvert, að hún gekk sumsstaðar til víðtækrar og náinnar samvinnu við evangelísk kirkjufélög, einkum í Hollandi. Þar stóðu allar kirkjudeildir að og undirskrifuðu sameiginlega yfirlýsingu, og hefði slíkt ein- hverntíma þótt fyrirsögn þar í landi, a. m. k. á dögum her- togans af Alba!

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.