Víðförli - 01.03.1947, Blaðsíða 34
32
VÍÐFÖRLI
Sá landslýður þá gjörla, að válega sækti að, og' hinsvegar, að
sú vá kom þessum tveim eigi að óvörum.
I fyrstu þótti rétt að freista þess, hvort þetta hernámslið
færi ekki að háttum siðaðra manna og virti alþjóða lög og rétt.
Með það í huga vann Berggrav biskup að því, fremstur manna,
að stofnað var til ríkisráðs, er tæki við stjórn og völdum í en-
um hernumdu hlutum Noregs. Þessi viðleitni Berggravs var
mjög misskilin og misvirt meðal Norðmanna erlendis og ann-
arra. En síðar sást, að honum og félögum hans gekk það eitt
til að firra þjóðina þeim voða, er algjört hernám leiddi af sér,
og einnig að bægja þeirri smán frá dyrum, að landráðamað-
urinn Quisling tæki við stjórnartaumum.
En brátt sást, hvert eðli og innræti nazistanna var og ætlan
bræðra þeirra í Noregi. — „Ríkisráðið" starfaði fáa mánuði
aðeins og fékk raunar aldrei þau völd, er því bar. í september
1940 var það afnumið og Quisling tók aftur leppstjórn fyrir
Þjóðverja, þingið var svipt umboði sínu og konungur sviptur
vöidum, allt að fyrirskipan Hitlers. Þá var sýnt, hvers vænta
mátti.
Fyrstu árekstrar milli kirkjunnar og nazista voru við út-
varpið. Þar var sá háttur á, að morgun og kvöld hvers dags
fór fram stutt guðsþjónustugjörð, auk þess sem útvarpað var
messu hvern helgan dag. Nazistum og quislingum var í mun,
að þessar guðsþjónustur færu fram á þann veg, er hugnazt gæti
lífsskoðun þeirra og tilgangi. En prestarnir voru bundnir vígslu-
heiti sínu, játningum kirkju sinnar og Guðs orði og gátu því
eigi þóknazt þessum nýja sið. — Gömul er og sú hefð kirkjunn-
ar að biðja af stól fyrir yfirvöldum, konungi og öllum þeim, er
Guð hefur búið myndugleika. Þessu hélt kirkjan áfram, þótt
konungur og stjórnarvöld væru landflótta. Og gazt enum nýju
ráðamönnum ekki að. Lauk þessu á þá lund, að hernaðarvöld-
in tóku öll ráð litvarpsins í sínar hendur og fengu kirkjubæn-
inni breytt svo, að konungur og stjórn voru þar ekki nefnd
beinum orðum. Eftir þetta fengust engir prestar til að flytja
guðsþjónustu í útvarpið nema þeir fáu, er fylltu flokk Quislings.